Skessuhorn - 26.09.2012, Side 23
23MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2012
við Kalli með hljóm sveit og ég var há
seti á grá sleppu báti hjá tengdapabba,
hon um Bjarna heitn um Krist ó fers
syni, nokkr ar ver tíð ir. Eft ir nokk ur ár
hjá Akri byrj aði ég að vinna sjálf stætt
með fé laga mín um Pétri Erni Jóns
syni. Það var 1978 og tveim ur árum
síð ar stofn uð um við Tré smiðj una
Jað ar með Guð mundi Sam ú els syni.
Við vor um í verk taka brans an um og
byggð um m.a. fyrsta á fanga Grunda
skóla eft ir út boð. Við byggð um líka
Sam vinnu banka hús ið sem þá var kall
að og núna er kennt við Arion banka.
Það hús var flók ið í bygg ingu og stórt.
Við luk um við bygg ingu húss ins bæði
að utan og inn an á frem ur skömm um
tíma og vor um með frá bær an mann
skap með okk ur í því. En þess ir tím
ar voru erf ið ir þeg ar verð trygg ing in á
lán um var ný byrj uð og ekki síst eft
ir að það gerð ist að kaup gjalds vísi töl
unni var kippt úr sam bandi við láns
kjara vísi töl una. Þessi staða reynd
ist bæði fyr ir tækj um og ein stak ling
um erf ið og það fór ekki vel fyr ir okk
ar fyr ir tæki sem hafði þá byggt nýtt
verk stæð is hús. Við seld um all ar eign
ir Tré smiðj unn ar Jað ars s.f. 1986 en
það dugði ekki til. Lög um gömlu
sam eign ar fé lög in voru skýr, eig end ur
báru fulla á byrgð á skuld um sam eign
ar fé laga. Við eig end urn ir þurft um að
taka á okk ur veru leg ar skuld ir við slit
á fé lag inu. Ekk ert kenni tölu flakk í þá
daga eins og síð ar hef ur tíðkast.“
Hann aði bún að
til bretta smíði
Hér var kom ið fram á ní unda ára tug
inn og eitt af því sem þeir fé lag ar Jón
Trausti og Pét ur Örn tóku sér fyr ir
hend ur eft ir slit Jað ars s.f. var að smíða
vöru bretti og kassa til notk un ar fyr
ir Járn blendi verk smiðj una á Grund
ar tanga. Bún að ur til fram leiðsl unn ar
var frum hann að ur af Jóni Trausta og
síð an út færð ur í sam vinnu við völ und
inn og járn smið inn Guð jón Ó lafs son
á Akra nesi, Gonna, sem smíð aði hann.
Jón Trausti seg ir að tölu verð vinna
hafi ver ið í smíði brett anna næstu árin.
,,Með tím an um bætt ist við fram leiðsla
á vöru brett um fyr ir frysti hús in hér á
Skaga og einnig bretti fyr ir Sem ent
verk smiðj una. Pét ur Örn flutti til Sví
þjóð ar 1988 þannig að ég var meira
og minna einn í þessu og leidd ist það
og seldi Tré smiðj unni Akri allt gall er
í ið ári seinna fyr ir verð sem dugði fyr
ir skuld um að mestu. Ég held að þessi
sala hafi einmitt orð ið til þess að Akri
bauðst svo skömmu seinna að taka þátt
í lok uðu út boði á bretta fram leiðslu
fyr ir Sölu mið stöð hrað frysti hús anna.
Akur kom út úr því með lægsta til boð
ið. Þessi bretta fram leiðsla vatt því upp
á sig og skap aði tölu verða og stöðuga
vinnu í mörg ár hjá Akri,“ seg ir Jón
Trausti en um þetta leyti var starfs
tími hans í tré smíð un um að líða und ir
lok. Eft ir stutt an tíma í báta smiðj unni
Knörr skipti hann um starfs vett vang.
Allt gott nema kaup ið
„Árið 1991 byrj aði ég að vinna á
vernd uð um vinnu stað á Vest ur landi
eins og hann hét þá og núna er Fjöliðj
an. Í fyrstu var þetta nær ein göngu
vinnu stað ur fyr ir þá sem höfðu orð
ið fyr ir á föll um vegna slysa eða veik
inda og dott ið út af vinnu mark aðn um.
Verk efn in mið uð ust við að hæfa fólk
þannig að það kæm ist með tím an um
aft ur út á vinnu mark að inn. Að grunn
in um til er þetta enn mark mið ið með
Fjöliðj unni sem hef ur breyst meira í
átt ina til iðju og hæf ing ar fyr ir fatl
aða ein stak linga þó vinnu þátt ur inn sé
nán ast jafn sterk ur og áður,“ seg ir Jón
Trausti sem var deild ar stjóri í Fjöliðj
unni al veg fram í á gúst lok en þá lét
hann af störf um vegna ald urs.
„ Þetta var mjög gef andi og
skemmti leg vinna, ynd is leg ur tími.
Þarna kynnt ist ég og vann með mörg
um fjöl breyti leg um og skemmti leg um
per sónu leik um. Ég hef stund um sagt
að þetta hafi allt ver ið gott nema laun
in. En það hætti reynd ar fljót lega að
skipta miklu máli. Þeg ar mað ur eld ist
eru það önn ur gildi sem taka yfir og
skipta meira máli. Ég á kvað að hætta
núna frek ar en eft ir þrjú ár. Ég vildi
gera það áður en ég yrði gamli kall inn
sem all ir vildu ef til vill losna við. Þetta
er nefni lega mjög krefj andi vinna sem
verð ur að gefa sál ina í, ann ars verð
ur mað ur bara af skipt ur. Fólk er svo
næmt. Svo var ég kvadd ur á síð asta
vinnu deg in um í há deg is verði þar sem
all ir voru mætt ir og ég fékk af skap lega
fal lega ræðu sem hún Ás laug Þor
steins dótt ir hélt fyr ir hönd sam starfs
fólks og hún hafði líka teikn að skop
mynd sem hún færði mér. Þetta þótti
mér mjög vænt um og vil nota tæki
fær ið og þakka þeim öll um í Fjöliðj
unni sam ver una öll þessi ár sem og
öðru sam starfs fólki í versl un, smíð um
og hljóm sveit um í gegn um tíð ina,“
sagði tón list ar mað ur inn, versl un ar
mað ur inn, tré smið ur inn, iðju þjálfinn
og grá sleppukarl inn Jón Trausti Her
vars son að end ingu.
þá
Vöru bíll inn með fyrstu bretta kass ana, sem Jón Trausti hann aði, á leið í Járn
blendi verk smiðj una á Grund ar tanga.
Hljóm sveit in Rap sódía sem starf aði á átt unda og ní unda ára tugn um: Krist ján Ein
ars son, Lár us Sig hvats son, Guð mund ur Jó hanns son, Jón Trausti og Guð mund ur
Gunn laugs son.
Lið Grundarfjarðar í fótbolta stóð
sig vel í sumar og komst upp í
hina nýju þriðju deild sem komið
verður á fót fyrir næsta sumar.
Blaðamaður Skessuhorns spjallaði
við Ragnar Smára Guðmundsson
fyrirliða liðsins, en það lenti í þriðja
sæti í C riðli þriðju deildar í sumar
á eftir Kára frá Akranesi og Víði
úr Garðinum. Liðið fór í umspil
um sæti í nýju þriðju deildinni
og sigraði Létti léttilega 61. Í
þriðju deildinni á næsta ári verða
lið víðsvegar af Íslandi og má þar
nefna þrjú lið frá Austfjörðum,
eitt af Hvolsvelli og eitt lið frá
Grenivík. „Já, það verður alveg
hrikalega mikið ferðalag á okkur
næsta sumar," segir Ragnar Smári
um dreifingu liðanna í deildinni.
Gekk illa í byrjun
tímabils
Þó Grundfirðingar hafi lent í þriðja
sæti telur Ragnar Smári að liðið
hafi spilað undir væntingum ekki
síst vegna slakrar byrjunar. „Við
spiluðum í rauninni aðeins undir
væntingum í sumar. Þetta gekk
þó þokkalega og hefði getað farið
verr, en það hefði einnig getað farið
betur. Við komumst í umspilsleik,
sem við unnum, og tryggðum
okkur sæti í þriðju deildinni nýju.
Vandamálið hjá okkur var að við
fengum þjálfara svolítið seint
fyrir þetta tímabil þannig að liðið
púslaðist ekki saman fyrr en eftir
fjóra, fimm leiki. Okkur gekk hálf
illa í byrjun tímabilsins og við
töpuðum fyrstu tveimur leikjunum
og vorum svolítið í jafnteflisbrasi
áður en við komumst á skrið," segir
Ragnar Smári.
Liðið endurvakið
Lið Grundarfjarðar var endurvakið
fyrir nokkrum árum og í þeirri
vinnu tók Ragnar Smári virkan
þátt. „Við ákváðum að endurvekja
liðið haustið 2009 og sumarið
2010 var fyrsta tímabilið okkar og
það sumar stóðum við okkur ekki
nógu vel og enduðum með fimm
stig, eftir að hafa unnið einn leik
og gert tvö jafntefli. Þá vorum við
að þreifa fyrir okkur í þessu en við
vorum þó með marga stráka. Við
vorum ekki með neinn þjálfara
þannig að ég og Tryggvi Hafsteins
sáum í rauninni bara um æfingar
og þess háttar. Við lentum mikið
í því að þurfa að smala í lið, en
einhvers staðar verður maður
að byrja. Við strákarnir vorum
allir hættir hjá Víkingi Ólafsvík
út af tímaleysi, bæði höfðum við
ekki nægan tíma og komnir með
fjölskyldur og með alvöru vinnu.
Atvinnumannadraumurinn í
fótbolta var úti. Þá ákváðum við,
þar sem maður nennti ekki að
hanga heima allt sumarið, að athuga
hvort það væri ekki grundvöllur
fyrir þessu. Við byrjuðum á fullu og
fengum dálitla rassskellingu fyrsta
árið og þá var annað hvort að hætta
eða að setja einhverja alvöru í þetta.
Þetta var ákveðið „reality check"
hjá okkur, hvort við ætluðum að
halda áfram í þessu rugli og vera
alltaf neðstir eða hvort við ætluðum
að gera þetta af alvöru. Þá ákváðum
við Tryggvi að það væri erfitt fyrir
okkur að vera vinir strákanna,
þjálfarar auk þess að sjá um liðið.
Þá var ráðinn þjálfari og farið í
þetta af fullri alvöru. Það reyndist
mikill kostur, því þá var bara einn
sem sá um þetta og menn hlustuðu
bara á hann," segir Ragnar Smári.
Vaxandi áhugi samhliða
gengi Víkings
Í leikmannahópi Grundarfjarðar er
mikið af reynsluboltum í bland við
unga drengi. „Við erum bæði með
stráka sem hafa verið að spila áður
og allt upp í úrvalsdeild. Þjálfarinn
okkar í fyrra var til dæmis búinn að
spila í mörg ár í úrvalsdeild. Síðan er
þetta samblanda af ungum strákum
hérna af Nesinu. Margir úr okkar liði
hafa líka spilað með Víkingi Ólafsvík.
Fjölbrautaskólinn í Grundarfirði
hefur hjálpað mikið til við að halda
ungum heimastrákum hérna á
svæðinu. Þeir eru ekki að fara suður
að spila með liðum í Reykjavík,"
segir Ragnar Smári. Hann spáir því
að vegna gengis Víkings Ólafsvík
í sumar muni vinsældir fótbolta á
Snæfellsnesi vaxa mikið. „Áhuginn
hjá yngri krökkunum á eftir að vera
mikill þegar öll stóru liðin koma
hingað vestur að spila. Ég spái því
að það verði algjör sprenging í
fótboltaiðkun á Nesinu í vetur og
næsta sumar. Þetta verður eins og
æðið sem kemur alltaf yfir mann
þegar það eru stórmót í gangi. Þá
flykkjast alltaf allir á æfingar."
Stuðningur
skiptir miklu
Þrátt fyrir flott gengi Grundarfjarðar
í sumar telur Ragnar Smári að næsta
sumar gæti reynst liðinu erfitt. „Næsta
ár förum við í ennþá meiri alvöru þar
sem við erum komnir í alvöru deild.
Þannig að við verðum að herða okkur
aðeins og herja líka á styrktaraðilana
okkar. Fyrirtækin hérna í bænum hafa
verið ótrúlega dugleg við að styrkja
okkur. Víkingur Ólafsvík hefur líka
verið að styrkja okkur með ungum
strákum sem hafa verið að spila með
okkur. Við þurfum að reyna að byrja
snemma í vetur og koma okkur í gott
form fyrir næsta sumar. En uppúr
stendur að þetta er mjög spennandi
verkefni sem við erum að fara í.
Bæjarbúar hér í Grundarfirði hafa
stutt vel við bakið á okkur og mætt
alveg ótrúlega vel á völlinn. Ég vil
hvetja alla til að halda áfram að mæta
svona vel næsta sumar," segir Ragnar
Smári að lokum.
sko
Meiri alvara á næsta ári
Rætt við Ragnar Smára Guðmundsson fyrirliða
knattspyrnuliðs Grundarfjarðar
Ragnar Smári Guðmundsson er fyrirliði knattspyrnuliðs Grundarfjarðar sem næsta sumar byrjar í nýrri þriðju deild í
boltanum.