Skessuhorn


Skessuhorn - 13.11.2013, Síða 22

Skessuhorn - 13.11.2013, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 13 . NÓVEMBER 2013 Föstudagurinn 8. nóvember var helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu. Slíkur baráttudagur var fyrst haldinn árið 2011 og er mark- miðið með deginum að vekja sér- staka athygli á málefninu og hversu alvarlegt einelti er. Í tengslum við baráttudaginn árið 2011 undirrit- uðu fulltrúar stjórnvalda, sveitar- félaga, félagasamtaka og opinberra stofnana þjóðarsáttmála gegn ein- elti. Í ár var sjónum beint að skóla- samfélaginu og þá sérstaklega fram- haldsskólum. Víðast hvar voru á dagskrá ýmsir táknrænir viðburðir sem tengjast málefninu á einn eða annan hátt, samskiptaverkefni, jafn- ingjafræðsla, vinadagar og fleira í þeim dúr. Allir viðburðirnir áttu það sameiginlegt að hafa það að markmiði að beina umræðunni að einelti og alvarlegum afleiðingum þess og ekki síst mikilvægi jákvæðra og uppbyggilegra samskipta. Í til- efni dagsins ómuðu bjöllur, klukkur, trommur og skipsflautur í sjö mín- útur um allt land, ein mínúta stóð fyrir hvern dag án eineltis. Hér á Vesturlandi var dagsins minnst með ólíkum hætti í skólum. Einelti er ofbeldi Einelti er grafalvarlegt samfélags- mein og afleiðingar þess má finna víða. Einelti virðist þrífast á ótrúleg- ustu stöðum, bæði meðal barna og fullorðinna. Algengast er þó að ein- elti eigi sér stað í skólum en einn- ig hefur borið á því á nýjum miðl- um svo sem í gegnum netið eða far- síma. Töluverð umræða hefur ver- ið um þolendur eineltis undanfarin ár í fjölmiðlum og hafa margir þol- endur þess stigið fram og sagt sína sögu. Margar frásagnirnar eru slá- andi og finnst flestum með ólíkind- um að slíkt eigi sér stað á okkar litla landi árið 2013. Einelti er ofbeldi og hafa marg- ar skýringar verið gefnar á hugtak- inu. Flestar eiga þær sameiginlegt að þar kemur fram að einelti er áreiti eða ofbeldi, líkamlegt eða andlegt og beinist að einstaklingi sem erf- itt á með að verjast því. Það felur í sér að einstaklingur er tekinn fyrir með síendurtekinni stríðni, niðrandi ummælum og sögusögnum, hótun- um, líkamlegu ofbeldi eða félags- legri höfnun og útskúfun. Einelti getur því átt margvíslegar birtingar- myndir og eru afleiðingar þess mjög alvarlegar. Þolendur þjást almennt af mikilli vanlíðan og í verstu tilfellum taka þeir sitt eigið líf. Þó svo að öll umræða um einelti sé af hinu góða og öflugt forvarnarstarf sé unnið í flestum skólum er ljóst að það dug- ar ekki til að vinna bug á einelti. Ekki nema brot af málum koma upp á yf- irborðið og þrátt fyrir vaxandi for- varnarstarf virðist erfitt að uppræta vandamálið. Foreldrar, kennarar, hið opinbera og samfélagið í heild sinni þarf að grípa til róttækra aðgerða og standa vörð um rétt fólks til að lifa í sátt og samlyndi. Við þurfum öll að skuldbinda okkur til að hafa góð áhrif á nánasta umhverfi okkar og vera góð fyrirmynd til að vinna bug á þessu samfélagslega böli. grþ SAFT, samfélag fjölskyldu og tækni, stóð nýverið fyrir könnun á netnotkun barna og unglinga hér á landi. Markmið könnunarinnar var að afla upplýsinga um notkun barna og unglinga á netinu og nýta í kjöl- farið þær upplýsingar til vitund- arvakningar um möguleika nets- ins og örugga netnotkun barna og unglinga. Í könnuninni voru þátt- takendur m.a. spurðir um ýmis- legt er varðar einelti með sérstakri áherslu á netið og farsíma. Börnin voru spurð hvort þau hefðu orðið fyrir einelti á netinu eða í gegnum farsíma og sömuleiðis hvort þau hefðu sjálf einhvern tímann sett inn eða sent skilaboð, texta eða mynd á netið eða í gegnum farsíma sem var andstyggileg í garð annars ein- staklings. Foreldrar voru jafnframt spurðir hvort börn þeirra hefðu orðið fyrir einelti á netinu, um við- brögð þeirra og líðan barnanna í kjölfarið og hvort þeir vissu til þess að börn þeirra hafi lagt önnur börn í einelti á netinu. Líklegra að börn verði fyrir einelti í skólanum en á netinu Þegar börnin voru spurð hvort þau hefðu sjálf orðið fyrir einelti þ.e. verið strítt, áreitt, ógnað eða skilin útundan, ýmist í skólanum, á net- inu eða gegnum farsíma, kom í ljós að fleiri höfðu orðið fyrir einelti í skólanum en á netinu. Rúmlega 19% sögðust hafa orðið fyrir einelti í skólanum, eða á meðan skólastarf stóð yfir, á sl. 12 mánuðum, þar af 7,8% einu sinni í mánuði eða oftar. Ekki var marktækur munur á svör- um eftir því hvort um var að ræða stelpu eða strák eða hversu gömul börnin voru. Þegar kom að einelti á netinu sögðust 9% aðspurðra hafa orðið fyrir einelti á netinu einhvern tím- ann á sl. 12 mánuðum. Þar af sögð- ust 1,9% hafa orðið fyrir því einu sinni í mánuði eða oftar og 7% sjaldnar eða tilgreindu ekki hversu oft þau höfðu orðið fyrir einelti á netinu. Ekki var marktækur mun- ur á svörum eftir því hvort um var að ræða stelpu eða strák eða hversu gömul börnin voru. Þegar litið er til nágrannalanda okkar kemur í ljós að Íslending- ar eru á svipuðu róli og nágrann- ar þeirra þegar kemur að einelti á netinu. Samkvæmt niðurstöð- um EU kids online könnunarinnar sem gerð var 2009-2011 í 25 Evr- ópulöndum (þó ekki á Íslandi) kom í ljós að hlutfall barna og unglinga sem orðið höfðu fyrir einelti á net- inu var 12% í Danmörku, 11% í Svíþjóð og 8% í Noregi. Hlutfall barna sem orðið höfðu fyrir ein- elti í öllum 25 þátttökulöndum EU kids online könnunarinnar í heild var 6%. Rétt rúmlega 5% íslenskra barna og unglinga sögðust hafa orðið fyr- ir einelti í gegnum farsíma, þ.e. ver- ið strítt, áreitt, ógnað eða þau skil- in útundan. Þar af sagðist innan við 1% hafa orðið fyrir því einu sinni í mánuði eða oftar. Í öllum 25 þátt- tökulöndum EU kids online könn- unarinnar í heild var hlutfall þeirra sem sögðust hafa orðið fyrir einelti í gegnum farsíma 3%. Í fyrri SAFT mælingum var ekki spurt um einelti með sambæri- legum hætti og nú. Samanburður við eldri niðurstöður bendir hins vegar ekki til þess að einelti á net- inu eða í gegnum farsíma hafi auk- ist hér á landi frá árinu 2009. Samskiptasíður og skyndiskilaboð algengasti farvegurinn Þau börn sem höfðu orðið fyrir einelti á netinu á sl. 12 mánuðum voru í kjölfarið spurð hvar á netinu eineltið hefði átt sér stað. Líkt og í öðrum Evrópulöndum eru sam- skiptasíður og skyndiskilaboð al- gengasti farvegurinn fyrir einelti á netinu. Yfir helmingur þeirra sem höfðu orðið fyrir einelti sögðu að eineltið hefði átt sér stað á sam- skiptasíðum eins og Facebook og rúmlega 36% sögðu að það hefði átt sér stað í skyndiskilaboðum eins og á MSN, Snapchat eða Facebo- ok chat. Töluvert færri eða einn af hverjum 10 nefndi leikjasíður og 7,5% tölvupóst. Naumlega þriðj- ungur sagði eineltið hafa átt sér stað annars staðar á netinu. Þá voru þau börn sem höfðu orð- ið fyrir einelti á netinu eða í gegn- um farsíma á sl. 12 mánuðum spurð í hverju eineltið hefði falist. Al- gengast var, bæði þegar um var að ræða einelti á neti og í gegnum far- síma, að börnunum hefðu verið send andstyggileg og særandi skila- boð (texti, mynd eða vídeó). Á net- inu var einnig algengt að þau hefðu verið útilokuð úr grúppu eða við- burði á netinu. Einnig sögðu rúmlega 15% þeirra sem höfðu orðið fyrir einelti á netinu og 19% þeirra sem höfðu- orðið fyrir einelti í gegnum far- síma að eineltið hefði falist í því að andstyggilegum og særandi skila- boðum um þau hefði verið dreift til annarra eða á vefsvæði sem aðr- ir gátu séð. Börn upplýsa foreldra sína ekki um einelti Rúmlega 40% þeirra barna sem höfðu orðið fyrir einelti á netinu sögðust hafa sagt foreldrum sín- um frá því sem gerst hafði og tæp 54% þeirra sem höfðu orðið fyrir einelti í gegnum farsíma. Þegar for- eldrarnir voru sjálfir spurðir hvort barn þeirra hefði verið lagt í einelti á netinu á síðastliðnum 12 mánuð- um svöruðu rétt rúm 4% játandi en eins og fram kom hér á undan sögðust 9% barna hafa orðið fyrir einelti á netinu á sl. 12 mánuðum. Ekki var marktækur munur á svör- um eftir því hvort um var að ræða foreldri stráks eða stelpu en for- eldrar barna í 7.- 10. bekk voru lík- legri en foreldrar yngri barna til að svara spurningunni játandi. Ef lit- ið er til nágrannalanda okkar eru töluvert færri foreldrar sem segja að börn sín hafi orðið fyrir einelti á netinu hér á landi en í nágranna- löndunum. mm Íbúar í þéttýli í Snæfellsbæ fengu margir hjörtu á hurðina sína síð- asta fimmtudag. Tilefnið var að nemendur í 5. til 10. bekk Grunn- skóla Snæfellsbæjar voru að vinna verkefni í tengslum við kærleik- ann tvo daga í liðinni viku. Nem- endum var skipt í hópa þvert á ár- ganga. Unnu börnin ólík verk- efni sem öll tengdust kærleikan- um. Boðið var upp á að búa til vinabönd, starfa við leiklist, dans, klípusögur voru sagðar, slagorða- gerð og á einni stöðinni bjuggu nemendur til hjörtu sem þeir skrifuðu kærleiksrík skilaboð á. Verkefninu lauk svo með því að nemendur dreifðu hjörtunum til íbúa og vinnustaða í Ólafsvík. Nemendur í 1. til 4. bekk létu sitt ekki eftir liggja og bjuggu einnig til hjörtu með kærleiksorðum sem dreift var til íbúa í Rifi og á Hell- issandi. Með þessu verkefni vildu nemendur og starfsfólk Grunn- skóla Snæfellsbæjar leggja áherslu á að rækta kærleikann í samfé- laginu og vinna gegn einelti en föstudagurinn 8. nóvember var baráttudagur gegn einelti. þa/ Ljósm. Kristín Helga Guðjónsdóttir. Á þessu skólaári mun Grunnskól- inn í Borgarnesi innleiða verkefni sem heitir Vinaliðar. Í fréttabréfi skólans, sem nýverið kom út, er sagt frá þessu. Þar segir að í upp- hafi verði unnið eftir Vinaliða- verkefninu í 4.–6. bekk skólans en stefnt að því að taka það upp í öll- um bekkjadeildum ef vel tekst til. Vinaliðaverkefnið er sett upp þann- ig að vinaliðar eru valdir af bekkjar- félögum sínum og skipuleggja þeir leiki og hreyfingu í löngu frímín- útum í skólanum. Vinaliðar mega ekki hafa orðið uppvísir að einelt- isþátttöku, annars fá þeir ekki hlut- verkið. Verkefnið er upprunnið í Noregi þar sem 785 grunnskólar hafa tekið verkefnið upp með góð- um árangri. Markmið vinaliðaverk- efnisins er m.a. að stuðla að fjöl- breyttari leikjum í löngu útivist- inni. Þá á það að leggja grunn sem gerir nemendum kleift að tengjast sterkum vinaböndum. Ef vel tekst til á það að minnka togstreitu milli nemenda og hampa góðum gildum svo sem vináttu, virðingu og því að allir fái að taka þátt. Samhliða góð- um eineltisáætlunum er markmið- ið með Vinaliðaverkefninu einnig að draga úr einelti og auka vellíðan nemenda í skólum. mm Börn upplýsa foreldra sína ekki um einelti Nemendur í Snæfellsbæ unnu með kærleikann Vinaliðaverkefni tekið upp í Grunnskólanum í Borgarnesi Baráttudagur gegn einelti haldinn um allt land

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.