Skessuhorn - 13.11.2013, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 13 . NÓVEMBER 2013
Hvernig leggst næsta
ferðasumar í þig?
Unnar Bergþórsson, Húsafelli
Mér líst gríðarlega vel á næsta
ferðasumar. Ég held að tæki-
færin verði mörg. Við sem störf-
um í ferðaþjónustunni þurfum
bara að einbeita okkur að því að
nýta sóknarfærin. Það stefnir í
mikla fjölgun ferðamanna.
Spurning
vikunnar
(Ferðaþjónar á Vesturlandi spurðir
á fundi í Reykholti)
Um síðustu
helgi bættir
ungur og efni-
legur varnar-
maður frá ná-
grannafélaginu
Aftureldingu í hóp Skagamanna í
knattspyrnunni. Skagamenn gengu
þá frá tveggja ára samningi við Arn-
ór Snæ Guðmundsson sem ver-
ið hefur fyrirliði Aftureldingar síð-
ustu ár og á að baki þrjá leiki með
U19 landsliðinu. Í frétt á heimasíðu
ÍA segir að Skagamenn bindi mikl-
ar vonir við þennan unga og efni-
lega leikmann sem getur leyst af
hendi stöðu miðvarðar, bakvarðar
og miðjumanns. Gunnlaugur Jóns-
son virðist ætla að byggja Skagalið-
ið upp á ungum og efnilegum leik-
mönnum í bland við reyndari leik-
menn. ÍA leikur sem kunnugt er í
1. deild næsta sumar, en þess má
geta að Þorvaldur Örlygsson sem
þjálfaði Skagaliðið undir lok síðasta
tímabils er nýráðinn þjálfari HK
sem Gunnlaugur Jónsson þjálfaði
síðasta sumar og kom upp í 1. deild.
Segja má að óbeint hafi ÍA og HK
því haft þjálfaraskipti. þá
Skagamenn töpuðu sín-
um fyrsta leik í 1. deild
Íslandsmótsins í körfu-
bolta þennan veturinn
þegar þeir heimsóttu Þór
á Akureyri sl. föstudagskvöld. Ak-
ureyringum tókst að vinna naum-
an sigur í leiknum 73:71. Þór er á
toppi deildarinnar ásamt Tindastóli
með 8 stig, en bæði lið hafa unn-
ið alla sína leiki. ÍA er í þriðja sæti
með sex stig, en þar fyrir neðan er
t.d. Höttur frá Egilsstöðum með 4
stig, sem Skagamenn fá einmitt í
heimsókn á Jaðarsbakka nk. föstu-
dagskvöld.
Þórsarar byrjuðu betur gegn ÍA
fyrir norðan á föstudagskvöldið.
Höfðu talsverða yfirburði í fyrsta
leikhluta en eftir hann var staðan
26:13. Skagamenn löguðu stöðuna
í öðrum leikhluta, sem þeir unnu
með fimm stiga mun. Staðan í hálf-
leik var 40:32 fyrir Þór en það voru
Skagamenn sem komu ákveðn-
ir til seinni hálfleiks, spiluðu þá
grimma vörn og náðu að jafna fyr-
ir lok þriðja leikhluta 53:53. Allt var
í járnum í síðasta leikhluta en gest-
unum tókst að lokum að sigra með
aðeins tveggja stiga mun. Hjá ÍA var
stigahæstur Jamarco Warren með
31 stig, Ómar Örn Helgason skor-
aði 10, Áskell Jónsson, Birkir Guð-
jónsson og Erlendur Þór Ottesen
gerðu 9 stig hvor og Trausti Freyr
Jónsson þrjú. Hjá Þór var banda-
ríski leikmaðurinn Jarell Clayton
atkvæðamestur með 17 stig. þá
Stjórn knatt-
spyrnufélags ÍA
hefur komist
að samkomu-
lagi við Garðar
Gunnlaugsson
um að fram-
lengja samning hans við félagið
um eitt ár. Garðar bætist þar með
í hóp félaga sinna Páls Gísla Jóns-
sonar markmanns og Jón Vilhelms
Ákasonar miðvallarspila og sóknar-
leikmanns sem einnig framlengdu
samninga sína við félagið á dögun-
um. Þeir þrír eru því allir til með að
taka þátt í slagnum með ÍA liðinu í
1. deildinni næsta sumar. þá
Stjórn körfuknattleiksdeildar
Skallagríms komst
í liðinni viku að
samkomulagi við
Mychal Green að
hann spilaði ekki
meira fyrir félagið.
Björn Bjarki Þor-
steinsson formað-
ur stjórnar körfu-
knattleiksdeildarinnar segir að leit
sé hafin að arftaka Mychals og von-
ast sé til að hún taki skamman tíma.
Í tilkynningu frá stjórninni segir að
hún vilji þakka Mychal fyrir góð
samskipti og óskar honum alls góðs
í framtíðinni. Jafnframt verði arf-
taki hans kominn í fallegasta körfu-
boltabúning landsins, gulan og
grænan, innan skamms. þá
Síðasta laugardag fór fram á Garða-
velli á Akranesi sjötta og síðasta
mótið í haustmótaröðinni sem
Bílver og GrasTec buðu upp á nú
í haust. Spilaðar voru níu holur
og leikið í tveimur forgjafaflokk-
um samhliða liðakeppni þar sem
þrír kylfingar mynduðu lið. Þátt-
takendur í mótaröðinni voru 55.
Í frétt á heimasíðu golfklúbbs-
ins Leynis segir ánægjulegt hvað
félagsmenn voru virkir í að taka
þátt og fjölmenna hverju sinni, en
að jafnaði voru 35-40 sem spiluðu
á hverjum laugardegi. Veðrið lék
við kylfinga í lokamótinu líkt og
alla hina laugardagana en ávallt
var spilað inn á sumarflatir þrátt
fyrir að komið hafi verið langt inn
í haustið og kominn vetur sam-
kvæmt almanakinu þegar síðustu
mótin fóru fram. Verðlaunaafend-
ing og lokahóf fór fram að loknu
mótinu síðastliðinn laugardag.
Helstu úrslit urðu þau í móta-
röðinni að í punktakeppni með
forgjöf frá 0 -17, sigraði Jón Ár-
mann Einarsson með 65 punkta.
Þar næst komu jafnir Þórður Elí-
asson og Guðjón Viðar Guðjóns-
son með 56 punkta, en Þórð-
ur náði öðru sætinu í bráðabana.
Í punktakeppni með forgjöf 18+
var líka hörkukeppni þar sem þrír
efstu menn fengu allir 62 punkta.
Úrslitin réðust í bráðabana og þar
endaði efstur Halldór Fr. Jóns-
son. Næstur kom Magnús Da-
nél Brandsson og í þriðja sæti varð
Júlíus Pétur Ingólfsson.
Í liðakeppninni sigruðu „þrír
endajaxlar“ en liðið skipuðu Jón
Ármann Einarsson, Eiríkur Karls-
son og Brynjar Sæmundsson. Í
öðru sæti varð „brunaliðið“ skip-
að Halldóri Fr. Jónssyni og feðg-
unum Herði Kára Jóhannessyni og
Jóhannesi Karli Engilbertssyni. Í
þriðja sæti urðu „kranamenn,“ Búi
Gíslason, Guðjón Viðar Guðjóns-
son og Páll Halldór Sigvaldason.
þá/ Ljósm. gs.
Önnur lota aðaltvímennings
Briddsfélags Borgarfjarðar var spil-
uð mánudagskvöldið 11. nóvember.
Sveinbjörn og Lárus frá Hvanneyri
spiluðu manna best og skoruðu
68%. Það dugði þeim til að lyfta sér
upp í annað sætið á mótinu. Dóra
og Rúnar í Borgarnesi spiluðu af
miklu öryggi og skoruðu næst mest
og leiða því mótið í heildina. Guð-
mundur skipti um makker milli
kvölda og kom nú með hinn tví-
burann, Unnstein. Þeir náðu miklu
flugi og þriðja sætinu fyrir kvöldið.
Stefán og Sigurður Már voru ró-
legri en fyrsta kvöldið, en eru þó
samt í 3. sæti heildarkeppninnar.
ij
Snæfellskonur unnu stórsigur á
Grindavíkurstúlkum þegar liðin
mættust í Hólminum sl. miðviku-
dag. Lokatölur urðu 85:55 og með
sigrinum skutust Snæfellskonur
upp í annað sæti úrvalsdeildarinn-
ar í körfubolta með 12 stig. Gest-
gjafarnir náðu þar með að hefna
taps gegn Suðurnesjastúlkunum
frá fyrstu umferð deildarinnar í
haust, en fyrir leikinn í gærkveldi
voru þessi lið jöfn að stigum. Snæ-
fellsstúlkur byrjuðu leikinn af
krafti og með hörkuvörn, komust í
8:0 eftir fjögra mínútna leik. Stað-
an eftir fyrsta leikhluta var 23:14
fyrir Snæfell. Áfram héldu heima-
stúlkur á sömu braut og var stað-
an í hálfleik 45:28. Seinni hálfleik-
urinn byrjaði síðan á sömu nót-
um og sá fyrri. Staðan var 62:39
fyrir lokafjórðunginn og úrslit-
in þá löngu ráðin. Hjá Snæfelli
var Chynna Brown atkvæðamest
með 26 stig og 9 fráköst, næst kom
Hildur Sigurðardóttir með 17 stig,
Hildur Björg Kjartansdóttir skor-
aði 12 stig og tók 14 fráköst, Hug-
rún Eva Valdimarsdóttir 8 stig,
Helga Hjördís Björgvinsdóttir 7,
Rebekka Rán Karlsdóttir 5, Guð-
rún Gróa Þorsteinsdóttir 4 og 9
fráköst, Eva Margrét Kristjáns-
dóttir 4 stig og Aníta Rún Sæþórs-
dóttir 2.
þá/ Ljósm. sá.
Hvanneyringar áttu
gott kvöld í bridds
Green farinn frá
Skallagrími
Efnilegur varnar
maður til ÍA
Garðar framlengir
Þrír góðir að spila.
Haustmótaröð í boði Bílvers
og GrasTec lokið
Spilað hefur verið við góðar aðstæður á Garðavelli þó kominn sé vetur.
Fyrsta tap Skagamanna í fyrstu deild
Stórsigur Snæfellskvenna á Grindavík
Svanborg Siggeirsdóttir, Sæ-
ferðum Stykkishólmi
Hlutirnir hafa nú tilhneigingu
til að fara heldur betur en verr
svo það leggst bara mjög vel í
mig. Ég er bjartsýn á næsta
sumar.
Kristján Karl Kristjánsson,
Ferstiklu Hvalfirði og Hótel
Sól Hvanneyri
Það verður sólríkara heldur en
það síðara og meira af ferða-
mönnum og almenn velsæld.
Sigrún Erla Eyjólfsdóttir,
Rjúkandi Vegamótum á Snæ-
fellsnesi
Það leggst mjög vel í mig.
Við eigum ótrúlega skemmti-
lega tíma framundan. Hjá okk-
ur stendur yfir spennandi upp-
bygging og við erum bjartsýn.