Skessuhorn - 13.11.2013, Qupperneq 31
31MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2013
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Laugardaginn 9. nóvember sl. var
tiltektardagur á skrifstofu Sund-
félags Akraness. Jafnframt var
margvíslegum gögnum komið til
Héraðsskjalasafns Akraness. Um
var að ræða fjölmargar fundagerða-
bækur allt frá árinu 1948. Urmull
ljósmynda var einnig afhentur safn-
inu; heimildir sem almenningur fær
nú aðgang að. Þá fengu hljóðupp-
tökur frá Útvarpi Akraness einn-
ig að fljóta með. Síðan en ekki síst
fundust bækur þar sem öll Akranes-
met ásamt Íslandsmetum Akurnes-
inga í sundi frá upphafi hafði verið
samviskusamlega færð inn áður en
tölvuöldin gekk í garð. Greinilegt
er að fyrrverandi stjórnir Sund-
félagsins ásamt þjálfurum hafa lagt
mikla vinnu í að halda þessu öllu
til haga. Í dag er hægt að fletta upp
besta tíma hvers sundmanns í hverri
grein rafrænt í þar til gerðu for-
riti. Myndin er tekin þegar Gerð-
ur Jóhanna Jóhannsdóttir héraðs-
skjalavörður tók við gögnunum af
Trausta Gylfasyni, formanni SA.
Það þótti við hæfi að á myndinni
sæist veggspjald frá árinu 1991 þeg-
ar Ragnheiður Runólfsdóttir varð
Íþróttamaður ársins en hún er ótví-
rætt ein öflugasta sundkona sem við
Íslendingar höfum átt fyrr og síðar.
tg
Inga Elín Cryer sundkona frá
Akranesi keppti nýverið á Extra-
móti SH sem haldið var í Ás-
vallalaug í Hafnarfirði. Hún
synti 800m skrið, 400m skrið og
200m flugsund. Inga Elín vann í
öllum þessum greinum og varð
jafnframt önnur stigahæst í sín-
um aldursflokki. Inga Elín synd-
ir og æfir með sundfélagið Ægi í
Reykjavík.
Inga Elín er um þessar mund-
ir að æfa fyrir ÍM-25, sem er Ís-
landsmeistaramótið í 25m laug og
verður haldið í Ásvallalaug 22.-
24. nóvember. Þar stefnir hún á
að ná lágmörkum fyrir Evrópu-
meistaramótið fyrir 25 ára og
yngri sem haldið verður í Dan-
mörku 12.-15. desember. Spenn-
andi tímar eru því framundan hjá
hinni knáu sundkonu af Skagan-
um og erfiðar æfingar, jafnframt
því að vera að aka á milli eftir
skóla til æfinga.
mm
Síðastliðinn fimmtudag samdi
knattspyrnudeild Skallagríms í
Borgarnesi við þrjá þjálfara. Einar
Þ. Eyjólfsson mun halda áfram að
þjálfa meistaraflokk félagsins, Sölvi
G. Gylfason verður aðstoðaþjálfari
hans, en hann mun einnig þjálfa 4.
og 5 flokk karla. Leifur Guðjóns-
son þjálfar síðan aðra yngri flokka
en hann mun njóta aðstoðar yngri
iðkenda. „Þjálfararnir eru allir vel
menntaðir og metnaðarfullir og
knattspyrnudeild Skallagríms lýs-
ir yfir ánægju sinni með áfram-
haldandi samstarf við þá,“ segir í
tilkynningu frá knattspyrnudeild-
inni.
Einar Þorvaldur Eyjólfsson á
langan knattspyrnuferil að baki.
Hann er uppalinn í Borgarnesi, lék
með Skallagrími upp yngri flokk-
ana en fór í ÍA í 2. flokki. Þá hef-
ur hann leikið með Bolungarvík og
Víkingi Ólafsvík, auk Skallagríms í
meistaraflokki. Hann var formað-
ur knattspyrnudeildar árin 2008-
2009, þjálfaði yngri flokka hjá fé-
laginu og tók við meistaraflokks-
liðinu um mitt sumar 2011. Knatt-
spyrnudeild réði Einar svo fyr-
ir ári síðan til að þjálfa meistara-
flokksliðið eftir að það var endur-
vakið og er því um áframhaldandi
samstarf deildarinnar og Einars að
ræða. Einar tekur um þessar mund-
ir KSÍ-VI námskeið sem haldið er
á Englandi.
Sölvi G. Gylfason hefur þrátt
fyrir ungan aldur ýmsa fjöruna sop-
ið í knattspyrnunni. Hann var 17
ára þegar hann lék fyrsta tímabilið
með Skallagrími en eftir tvö tímabil
í mfl. Skallagríms skipti hann yfir í
ÍA. Sölvi lék með mfl. ÍA sumarið
2009, kom aftur í Skallagrím 2010
en lék svo árin 2011 og 2012 með
BÍ/Bolungarvík. Síðastliðið haust
kom hann svo aftur heim og hóf að
þjálfa hjá Skallagrími og leika með
meistaraflokki liðsins. Sölvi hefur
lokið KSÍ III námskeiði hjá KSÍ.
Leifur Guðjónsson gekk til liðs
við Skallagrím síðastliðið vor frá
Leikni Fáskrúðsfirði. Hann er
uppalinn á Seltjarnarnesi og lék
með Gróttu upp alla yngri flokk-
ana. Hann þjálfaði yngri flokka hjá
Leikni Fáskrúðsfirði og hóf þjálf-
un hjá Skallagrími fljótlega eftir að
hann flutti í Borgarnes. Leifur hef-
ur lokið KSÍ III námskeiði.
mm/skallagrimur.is
Kanalausir steinlágu
Skallagrímsmenn þeg-
ar þeir mættu heima-
mönnum í Njarðvík í
úrvalsdeildinni sl. föstu-
dagskvöld. Lokatölur urðu 104:63.
Heimaliðið sýndi strax klærnar í
byrjun og var með 12 stiga forskot
eftir fyrsta leikhluta, 27:19. Yfir-
burðirnir voru enn meiri í öðr-
um leikhluta og voru heimamenn
komnir með 25 stiga forskot í hálf-
leik, 56:31. Áfram hélt sama þróun
í seinni hálfleiknum og að lokum
unnu Njarðvíkingar yfirburðasigur.
Hjá Skallagrími var atkvæðamest-
ur Grétar Ingi Erlendsson með 21
stig, Davíð Guðmundsson skor-
aði 11, Davíð Ásgeirsson 10, Orri
Jónsson 9, Egill Egilsson 8 og þeir
Trausti Eiríksson og Sigurður Þór-
arinsson 2 hvor. Hjá Njarðvík voru
stigahæstir Elvar Már Friðriksson
með 23 stig og Logi Gunnarsson
með 22 stig.
Skallagrímur er nú einungis með
tvö stig eftir fimm leiki og er með-
al neðstu liða í úrvalsdeildinni.
Ekki er ljóst hvort nýr bandarísk-
ur leikmaður verður kominn í raðir
Skallagríms þegar þeir taka á móti
Keflvíkingum í 6. umferðinni nk.
fimmtudagskvöld. þá
Skákkonan Tinna Kristín
Finnbogadóttir frá Híta-
rdal á Mýrum stendur sig
vel með íslenska lands-
liðinu í skák á Evrópu-
mótinu sem fram fer þessa
dagana í Varsjá í Póllandi.
Tinna Kristín var í gær
fyrir fimmtu umferðina
á mótinu búin að vinna
þrjár skákir af fjórum og
virðist í fantaformi. Síðast
vann hún norska stúlku í
viðureigninni gegn Nor-
egi á mánudag sem end-
aði með jafntefli, 2:2. Þar
áður vann Tinna Krist-
in svissneska skákkonu en
þar varð einnig 2:2 jafnt-
efli í viðureign liðanna. Í
annarri umferð náði Tinna Krist-
ín í eina vinning Íslands í 1:3 tapi
gegn Litháum. Ísland tapaði með
sama mun fyrir Póllandi í fyrstu
umferð og var það eina skákin sem
Tinna Kristín hún hefur tapað á
mótinu. Fyrir fimmtu
umferðina í gær, þriðju-
dag, var kvennaliðið ís-
lenska með 2 stig og 6
vinninga í 27. sæti. Pól-
verjar og Úkranínu-
menn voru efstir með
8 stig. Íslenska lið-
ið mætti ítölsku sveit-
inni í gær og ljóst að á
brattann yrði að sækja
þar sem stigamunur lið-
anna var mikill. Karla-
liðið var fyrir keppn-
ina á móti sveit heima-
manna Pólverja í gær
með 3 stig og 8,5 vinn-
ing í 27. sæti. Liðið var
efst Norðurlandanna á
mótinu. Frakkar voru
efstir karlasveita með 8 stig og átta
lið voru með 6 stig.
þá
Snæfellingar spiluðu sinn besta leik
í vetur í úrvalsdeildinni þegar þeir
fengu Grindvíkinga í heimsókn
síðastliðið mánudagskvöld. Snæ-
fell hafði fyrir leikinn aðeins unn-
ið einn leik af fjórum en lykilmenn
liðsins hafa flestir verið nokkuð frá
sínu besta í vetur. Grindvíkingar
höfðu hins vegar unnið þrjá af fjór-
um leikjum. Snæfell sigraði í leikn-
um 88:80.
Gestirnir byrjuðu betur og kom-
ust m.a. í stöðuna 12:4. Þá tóku
heimamenn í Snæfelli við sér og
voru yfir eftir fyrsta leikhluta 22:20.
Snæfellingar höfðu síðan tökin á
leiknum og í hálfleik var níu stiga
munur á liðunum, 42:33. Heima-
menn komu grimmir til seinni hálf-
leiks og gerðu hreinlega út um leik-
inn í þriðja leikhluta. Fyrir loka-
fjórðunginn var munurinn á lið-
unum orðinn 15 stig, 63:48. Þótt
Grindvíkingum tækist að saxa á
forskot Snæfellinga niður í sex stig
undir lokin var sigur Snæfells aldrei
í hættu. Sigurður Á Þorvaldsson
átti stórleik fyrir Snæfell, skoraði
23 stig og tók 12 fráköst, Vance
Cooksey skoraði 19, tók 10 fráköst
og átti 8 stoðsendingar, Jón Ólafur
Jónsson 17 stig, Sveinn Arnar Dav-
íðsson 10, Stefán Karel Ólafsson 8,
Kristján Pétur Andrésson 5 og 8
fráköst, Finnur Atli Magnússon 4
og Þorbergur H Sævarsson 2. Hjá
Grindavík var Sigurður Gunnar
Þorsteinsson atkvæðamestur með
21 stig og 11 fráköst.
Í næstu umferð sækir Snæfell
ÍR-inga heim í Seljaskóla og verð-
ur leikurinn spilaður annað kvöld,
fimmtudag.
þá/ Ljósm. Sumarliði Á. Gögnum Sundfélags
Akraness komið fyrir á
Héraðsskjalasafninu
Samið við knattspyrnu
þjálfara fyrir Skallagrím
Frá vinstri: Sölvi G. Gylfason, Einar Þ. Eyjólfsson, Leifur Guðjónsson og Ívar Örn
Reynisson, formaður knattspyrnudeildar Skallagríms.
Inga Elín undirbýr þátttöku á stórmótum í sundi
Skallagrímsmenn steinlágu í Njarðvík
Snæfell með stórleik og
sigur á Grindavík
Tinna Kristín Finnbogadóttir. Ljósm. skak.is
Skákkona af Mýrunum
stendur sig vel á EM