Læknablaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ
Aðalfundur Læknafélags
íslands árið 2000
Aðalfundur Læknafélags Íslands var haldinn
á ísafirði 25.-26. ágúst síðastliðinn. Fundurinn var vel
sóttur og fyrir honum lágu allmörg mál til
umfjöllunar. Umræðan um gagnagrunnsmálið setti
verulegan svip á fundinn. Fyrir honum lágu þrjár
tillögur um málið sem aðalfundarfulltrúum var ætlað
að taka afstöðu til. Formaður LÍ, Sigurbjörn Sveins-
son, rakti ítarlega þær viðræður sem Læknafélagið og
íslensk erfðagreining stóðu í frá febrúarmánuði og
fram i ágúst. Nánar er greint frá þeim í viðtali við
Sigurbjörn annars staðar í blaðinu. Umræður voru
málefnalegar en endurspegluðu þann grundvallar-
ágreining sem er á milli fylgismanna og andstæðinga
þróun hlýtur að vera fagnaðarefni á nýjum
Landspítala. Það gefur starfsfólki hans tækifæri til að
einbeita sér að stærri og flóknari verkefnum sem ekki
verða leyst á minni sjúkrahúsum eða læknastöðvum.
Auðvitað getur þessi þróun haft það í för með sér að
Háskóli íslands þurfi að sækjast eftir auknu samstarfi
við minni sjúkrahús og jafnvel læknastöðvar um
menntun heilbrigðisstarfsfólks. Þeirri málaleitan yrði
örugglega vel tekið.
Akranesi 20. ágúst 2000
laganna um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði.
Þeir sem höfðu ekki gert upp hug sinn að fullu settu
einnig svip á umræðuna. Pað vakti óneitanlega athygli
að einn þeirra sem til máls tóku lýsti yfir efasemdum
sínum um miðlægan gagnagrunn en jafnframt því að
hann ætti hagsmuna að gæta sem eigandi 1000 eininga
í íslenskri erfðagreiningu. Margir fýlgdu fordæmi
hans og gerðu grein fyrir efnahagslegum og/eða
starfslegum tengslum sínum við íslenska erfðagrein-
ingu eða Urði, Verðandi, Skuld.
Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ var nokkuð
ánægður með ályktun þá sem samþykkt var um
mögulegt framhald viðræðnanna við ÍE. „Pessi
ályktun dregur saman samstöðu lækna um það að
breyta þurfi vinnubrögðum hvað varðar notkun
heilsufarsupplýsinga í rannsóknarskyni, það er að afla
þurfi leyfis einstaklinga til notkunar upplýsinga um þá
og að möguleiki verið fyrir hendi að eyða
upplýsingum samkvæmt ósk einstaklinganna.
Með því að vísa til tveggja skjala, sem eru öndverð
hvað varðar meðferð upplýsinga, sem til eru eða
verða til fram að tilteknum degi skilur fundurinn það
eftir fyrir stjórn að leiða þau álitamál til lykta og bera
þá niðurstöðu undir dóm félaga í LÍ.“
Meðal efnis á aðalfundinum var málþingið:
Læknar á frjálsum markaði. Framtíð í ljósi útboða og
Læknablaðið 2000/86 603