Fjarðarpósturinn - 08.05.2014, Síða 11
www.fjardarposturinn.is 11 Fimmtudagur 8. maí 2014
Íþróttir
Handbolti:
8. maí kl. 19.45, Vestm.eyjar
ÍBV - Haukar
úrvalsdeild karla úrslit
10. maí kl. 16, Ásvellir
Haukar - ÍBV
úrvalsdeild karla úrslit
13. maí kl. 19.45, Vestm.eyjar
ÍBV - Haukar
úrvalsdeild karla úrslit
Knattspyrna:
8. maí kl. 19.15, Kaplakriki
FH - Fylkir
úrvalsdeild karla
9. maí kl. 19, Ásvellir
Haukar - Þróttur R.
1. deild karla
12. maí kl. 20, KR-völlur
KR - FH
úrvalsdeild karla
13. maí kl. 19.15, Fylkisvöllur
Elliði - Haukar
Bikarkeppni karla
13. maí kl. 19.15, Varmárvöllur
Afturelding - FH
úrvalsdeild kvenna
Handbolti úrslit:
Karlar:
Haukar - ÍBV: 29-28
Haukar - FH: 28-27
FH - Haukar: 21-24
Knattspyrna úrslit:
Karlar:
Breiðablik - FH: 1-1
Frístundaheimili
og félagsmiðstöðvar
Ef ég mætti ráða myndi ég vilja
að starfsemi frístundaheimila og
félagsmiðstöðva í Hafnarfirði
verði stórefld.
Okkar samfélag er
þannig upp byggt í dag að
foreldrar þurfa báðir að
vera á vinnumarkaði til
þess að sjá fjölskyldu
sinni farborða. Það þýðir
að börnin okkar og
unglingarnir eru ekki í
umsjá foreldra sinna eftir
skóla. Hvar eru þau þá?
Jú frístundaheimilin taka
við börnum upp í fjórða bekk. Hin
fara heim og hangsa eða fara í
tölvuna, sum eru í einhverjum
tómstundum part úr degi. Ég vil að
þessu verði breytt. Við getum leitað
til Danmörku að góðri fyrir mynd.
Í Danmörku eru frístundaheimili
(skolefritidshjem) fyrir yngstu
börn in eins og hér, en þau fá að
vera þar fram að 12 ára aldri. Eftir
að þau eru orðin tólf ára og að
tvítugu býðst þeim að koma í
félagsmiðstöð (fritidsklub) sem
opnar á hverjum degi kl. 11:30 og
er opin til kl. 22:00. Þangað geta
krakkarnir komið strax eftir skóla
og verið eins og þau vilja eða til kl.
18:00. Eldri krakkar klúbbsins
geta verið lengur eða farið og
komið aftur til kl. 22:00.
Það er ekki bara opn un ar tíminn
sem er frá brugðinn því sem gerist
hér heima og ég myndi vilja
breyta. Ekki síður er mikilvægt að
auka fjölbreytnina og starf sem ina
sem fer fram innan frístundaheimila
og félagsmiðstöðva. Í Dan mörku
fer fram mik ið fjölbreytt-
ara starf. Þar hafa börnin
og unglingarnir mögu-
leika á að velja sér marg-
víslegar vinnustofur og
afþreyingu. Þau geta
valið sem dæmi handa-
vinnu (t.d. sauma á
sauma vélar, vinna leður-
vinnu, þrykkja á efni)
myndlist (t.d. keramik,
málun, vatns litun, papp-
írs gerð, kertagerð og fl.), þar geta
þau lært að spila á hljóðfæri og
stofnað hljómsveitir. Þar er hægt
að stunda fjölbreyttar íþróttir,
stunda útivist og halda dýr (oftast
kanínur og dúfur). Í raun fer
úrvalið eftir því sem starfsmenn og
stjórnendur á hverjum stað leggja
áherslu á og kunna.
Mín skoðun er sú að við þurfum
að styðja miklu betur við þessar
mikilvægu stofnanir. Við eigum að
gera þær að aðlaðandi möguleika
fyrir börn sem vilja eyða deginum
með félögum og vinum í upp-
byggi legu umhverfi þar sem hægt
er að gera skemmti lega hluti. Stað
sem allir vilja vera á og þroska
félagsfærni sem og aðra færni sína
og auka við þekk ingu og upplifa.
Höfundur er lögmaður og
myndlistarkona og skipar
annað sæti Vinstri grænna í
Hafnarfirði.
Elva Dögg Ásudóttir
Kristinsdóttir
Eitt af stefnumálum okkar
Vinstri grænna er að stofnað verði
embætti umboðsmanns Hafn-
firðinga sem bæj ar búar geti leitað
til um leið beiningar,
ráð gjöf og álit ef þeir
eru ósáttir við
málsmeðferð og
ákvarð anatöku bæj ar ins
í málum þeirra.
Hafnarfjörður er
braut ryðjandi íslenskra
sveitarfélaga í opinni
stjórnsýslu með ákvörð-
un um birtingar gagna
með fundargerðum
allra ráða, nefnda og bæjarstjórnar.
Virkt lýðræði krefst þess að öllum
í samfélaginu sé tryggt aðgengi
að upplýsingum. Það er forsenda
samfélagslegrar þátttöku sem er
lýðræðinu nauðsynleg. Spilling,
sérhagsmunagæsla og þokukennd
stjórnsýsla mega ekki viðgangast.
Hlutverk umboðsmanns Hafn-
firðinga væri ekki síst að leiðbeina
um mögulegar kæruleiðir og leið-
beina um möguleika og heimildir
til að mál séu tekin til endur-
skoðunar. Hlutverk umboðs-
manns væri líka að útskýra og
aðstoða við túlkun á efnislegu
innihaldi ákvarðanatöku Hafnar-
fjarðarbæjar og jafnvel
að bjóða sátta miðlun í
þeim tilvikum sem líkur
eru á að ágrein ing megi
sætta með slíkri
að komu.
Umboðsmaður myndi
líka rannsaka ein stök
mál og skila áliti um
lögmæti þeirra og gæti
tekið mál til athug unar
að eigin frum kvæði.
Jafnframt væri mikil vægt að
umboðs maður Hafnfirðinga gæti
tekið líka á móti, rannsakað og
komið á framfæri upplýsingum
frá starfsfólki, viðsemjendum
bæjar ins og öðrum um réttarbrot,
vanrækslu eða mistök eða óeðli-
leg afskipti kjörinna fulltrúa af
málum í stjórnsýslu og/eða þjón-
ustu Hafnarfjarðarbæjar.
Höfundur er bæjarstjóri og
oddviti Vinstri grænna í
Hafnarfirði.
Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir
Stofnum embætti um
boðs manns Hafnfirðinga
Frá og með 19. maí n.k. verður þjónusta VÍS á höfuðborgarsvæðinu
alfarið í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3 í Reykjavík.
Guðmundur Pedersen og Sigurður Kristjánsson sem og aðrir VÍS-arar
verða þar til þjónustu reiðubúnir fyrir Hafnfirðinga líkt og þeir hafa
verið mörg undanfarin ár.
Við minnum einnig á símann í þjónustuveri VÍS, 560-5000 og á
vefinn vis.is.
VÍS | ÁRMÚLA 3 | 108 REYKJAVÍK | SÍMI 560 5000 | VIS.IS
Tími kominn á breytingar
Ársreikningar bæjarsjóðs Hafn-
ar fjarðar fyrir árið 2013 liggja nú
fyrir. Þar má sjá að þótt rekstur
bæjar ins fari batnandi er enn langt
í að fjárhagsstaðan sé viðunandi
eða ákjósanleg. Skuldir bæjar-
félagsins nema enn 40
þús und milljónum kr.,
eða 1,5 milljónum króna
á hvern íbúa. Tólf ára
valdatíð vinstri manna í
bæjarstjórn skil ur bæinn
eftir í skulda fjötrum.
Framlengdur víxill
Það er athyglisvert að
heyra meirihlutann í
bæjarstjórn hreykja sér
af því að hafa náð að
endurfjármagna skuldir bæjarins.
Eins og það sé einhver sérstakur
árangur að ná að framlengja víxil.
Við þessu hljóta Hafnfirðingar að
segja: „Meiri metnað takk“! Það
kemur því í hlut nýs meirihluta í
bæjarstjórn að taka á fjármálunum.
Og við sjálfstæðisfólk erum til-
búin. Málflutningur okkar í bæja-
rstjórn á kjörtímabilinu hefur ein-
kennst af ábyrgð og festu. Við
höfum beitt hörðu aðhaldi, lagt til
ýmsar hagræðingartillögur, komið
fram með tillögur um betri nýtingu
eigna og fjármuna sveitarfélagsins,
bent á leiðir til niðurgreiðslu
skulda og síðast en ekki síst lagt
mikla áherslu á að fjárhagsáætlun
sé virt!
Yfirbyggð knattspyrnuhús
og leikskólar
Hafnarfjörður er í samkeppni
við önnur sveitarfélög um að laða
að sér íbúa. Þá er þjónusta bæjarins
sífellt borin saman við það sem
viðgengst hjá öðrum. Og það er
vitaskuld grundvallaratriði að
bæjarfélagið standist þann saman-
burð til lengri tíma. Engum blöð-
um er um það að fletta að skulda-
klafarnir, sem að stærst-
um hluta komu til vegna
fram kvæmda gleði og
óskyn samlegrar fjár-
mála stjórn unar meiri-
hluta Sam fylk ingarinnar
á undan förnum kjör-
tíma bilum, setja bænum
þröng ar skorð ur.
Greiðslu byrði lána og
vaxta kostnaður er gríð-
ar lega mikill eða um 3,5
milljarðar króna á síðastliðnu ári.
Til að setja þessar tölur í samhengi
má benda á að sú upphæð dugar til
bygg ingar þriggja yfirbyggðra
knattspyrnuhúsa í fullri stærð og
margra leikskóla.
Stefnufesta og framsýni
Ábyrg fjármálastjórn er lykil-
atriði fyrir bæjarbúa. Grundvallar-
forsenda þess að viðsnúningur
megi verða í Hafnarfirði er að
tekj ur bæjarfélagsins aukist, skuld-
ir lækki og að þau tækifæri sem
eru til staðar séu nýtt. Það þarf að
leita allra til að gera Hafnarfjörð
eftirsóknarverðan; náum í fyrir-
tækin, náum í íbúana. Til að sú
verði raunin er mikilvægt að gildi
og hugsjónir sjálfstæðismanna
verði í forgrunni við rekstur bæjar-
ins. Vertu með okkur í að byggja
upp, breytum bænum saman.
Höfundur er oddviti Sjálf
stæðis flokksins í Hafnarfirði.
Rósa
Guðbjartsdóttir