Fjarðarpósturinn - 27.11.2014, Blaðsíða 19
FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2014
Ný verslun - Sápubúðin
Það ilmar af hreinlæti í Sápu
búðinni hans Martins Péturssonar
á 2. hæðinni í Firði. Búðin er
björt og í hillunum er mikið
úrval af alls kyns náttúruvörum,
húð og baðvörur. Sápubúðin var
opnuð sl. laugardag og segir
Martin við tökurnar hafi verið
mjög góðar. Hann segir vörurnar
vera á mjög góðu verði miðað
við sam bæri legar vörur. Þetta eru
úrvalsvörur sem allar eru unnar
úr náttúru legum efnum sem
henta húðinni mjög vel.
Í búðinni er einnig gott úrval af
gjafapökkum og þarna ættu
flestir að finna eitthvað við sitt
hæfi.
Martin Pétursson eigandi Sápubúðarinnar í Firði.
Ný þjónusta –
verslanir stækka
Áhersla lögð á vandaðar verslanir – Opið til miðnættis í kvöld
Úr & gull er ein þeirra verslana sem verið hafa í Firði öll 20 árin.
Pósturinn í stærra húsnæði
Nú er hægt að kaupa meira en
frímerki hjá Póstinum því ýmsar
gjafavörur eru nú áberandi í
pósthúsinu sem nú hefur flutt
yfir ganginn á 1. hæð og kominn
í mun stærra húsnæði. Með
flutningnum er verið að auka
þjónustuna og útvíkka.
Reyndar er ný þjónusta að
bætast við þessa dagana því í
Kaplakrika hefur verið sett upp
pósthólf sem kallast Póstbox
24/7 og getur fólk nú pantað
vörur og gefið upp sérstakt
Pnúmer og fengið pakka senda í
þetta póstbox. Hægt er að greiða
fyrir pakka og sækja allan
sólarhringinn. Pósturinn býður nú upp á miklu meira en frímerki.
Dís - Íslensk hönnun er ein af nýrri verslununum í Firði.
Dís úr litlu í stórt í Firði
Snædís Guðmundsdóttir
eigandi og hönnuður hjá Dís
íslensk hönnun hefur um nokkurt
skeið verið með verslun í
minnsta verslunarrýminu í Firði.
Svo er ekki lengur því nýlega
flutti hún yfir ganginn í miklu
stærra húsnæði þar sem hún
býður eigin vörur, hannaðar og
framleiddar af henni. Mest
áberandi eru kjólar og leggings
auk þess sem hún býður upp á
gott úrval af slám og ýmsum
fylgihlutum. Verslunin snýr út að
planinu við Hafnarborg og hefur
Snædís fengið aukna athygli eftir
að hún flutti í nýja húsnæðið í
Firði
Skór við stigaendann
Litla Símabúðin Firði orðin stór
Eftir að hafa verið svolítið úti í horni er Skóhöllin
/ Eurosko nú komin á áberandi stað á annarri hæðinni
í Firði, strax á móti rúllustiganum. Verslunin hefur
verið 12 ár í Firði og er eina skóbúðin í Hafnarfirði.
Þar fá bæjarbúar skó við hæfi og ekki síst
spariskóna fyrir jólin.
Eftir að hafa verið í „búrinu“ á
1. hæðinni hefur Símabúðin
Firði nú margfaldast að stærð og
býður nú upp á úrval af
heimilisvörum, gjafavörum og
leikföngum auk mikils úrval af
símtækjum og fylgihlutum með
símum. Úrval síma og fylgihluta
sem verið hefur undirstaðan
hefur einnig aukist mikið og nú
þurfa bæjarbúar ekki að fara út
úr bænum til að finna fylgihluti í
símana sína.
Ekki fara langt yfir skammt!
Ódýrast að kaupa inn í heimabæ