Akureyri - 09.10.2014, Blaðsíða 4
4 37. tölublað 4. árgangur 9. október 2014
Steinsmiðja Akureyrar • Glerárgötu 36 • S: 466 2800 • sala@minnismerki.is • www.minnismerki.is
Opnunartímar: Mán. - fim. kl. 13:00-18:00, föst. kl. 13:00-17:00
Frábært úrval af minnismerkjum!
Fagmennska • Gæði • Gott verð • 25 ára reynsla
Söguleg hlýindi í september
Tíðarfar í september var óvenju-
hlýtt, hlýjast að tiltölu norðan- og
austanlands þar sem hiti var víða
meir en 2 stigum ofan meðallags
síðustu tíu ára og meir en þrem-
ur stigum ofan meðalhita 1961 til
1990.
Þetta kemur fram í yfirliti frá
Veðurstofunni.
September var sá þriðji hlýj-
asti í Grímsey en þar hefur verið
mælt frá 1874. Óvenju úrkomusamt
var um allt sunnan- og vestanvert
landið en fremur þurrt á Norðaust-
urlandi.
Á Akureyri var meðalhitinn 10
gráður eða hærri en í Reykjavík,
3,6 stigum ofan meðallagsins 1961
til 1990 og 2,3 stigum ofan með-
altals síðustu tíu ára. Þetta rennir
stoðum undir að tilfinning Norð-
lendinga um að sumarið hafi verið
einstaklega langt og blítt, ekki síst í
„haustendann“, eigi við rök að styðj-
ast.
Sem fyrr segir var mjög vot-
viðrasamt um allt sunnan- og vest-
anvert landið og reyndar svo mjög
að það rigndi 1 mm eða meira 22
daga í september í Reykjavík. Í
Reykjavík mældist úrkoman 153,0
mm, en tæplega sex sinnum minni
úrkoma mældist á Akureyri eða
27,1 mm. Eru það aðeins 69 prósent
meðalúrkomu septembermánaðar
á árunum 1961 til 1990. Rigndi að-
eins sex daga alls á Akureyri í sept-
ember en sólarstundir voru jafn-
margar á Akureyri og í Reykjavíkí
september.
Meðalhiti mánaðarins var
hæstur á Seyðisfirði, 10,4 stig, en
að tiltölu hæstur á Reykjum í
Fnjóskadal, 2,5 stig yfir meðallagi.
Hæsti hiti mánaðarins mældist
22,6 stig á Skjaldþingsstöðum þann
14 september sl. -BÞ
Vinnulaunamál
fara oft fyrir dóm
„Í mín 7 ár hjá BHM man ég aldrei
eftir að hafa staðið að sátt um slík-
ar brotthlaupsbætur, enda líklega
enn sjaldgæfara að opinberir at-
vinnurekendur geri slíkar kröfur
- en maður þurfti stundum að vara
starfsmenn við þessum fræðilega
rétti,“ segir Gísli Tryggvason lög-
maður um hið svokallaða Slippmál
sem Akureyri Vikublað fjallaði um
í síðustu viku.
Frétt blaðsins fór víða en í mál-
inu var greint frá því að starfsmað-
ur Slippsins þurfti að greiða vinnu-
veitanda bætur eftir að hann hætti
störfum og vann ekki uppsagnar-
frest. Deilt er um hvort skaðabætur
mannsins til Slippsins voru ríflega
300.000 krónur eins og forstjóri
Slippsins heldur fram eða 600-700
þúsund. Starfsmaðurinn vill enn
ekki stíga fram undir nafni, en mál-
ið fór ekki fyrir dómstóla. Þá hefur
vakið athygli að í bréfi sem lögmað-
ur sendi til starfsmannsins fyrir
hönd Slippsins var hann upphaf-
lega krafinn um tæpar 2 milljónir
króna í bætur, sem forstjóri Slipps-
ins hefur sagt að ekki hafi þó stað-
ið til að innheimta að fullu. Anton
Benjamínsson, forstjóri Slippsins
vill til viðbótar benda á auk þess
sem fram er komið að í fyrra hafi
þessi starfsmaður farið túr á sjó án
þess að fá frí hjá Slippnum.
Vinnulaunamál eru algeng-
ustu dómsmál sem einstaklingar
á Íslandi höfða. Verkalýðsfélag
mannsins er enn með mál manns-
ins til skoðunar en vísbending er
um að fyrirtæki hafi beitt mismun-
andi íþyngjandi úrræðum gegn
starfsmönnum sem hætta fyrir-
varalítið störfum. -BÞ
Rassinn rekinn framan í okkur!
„Ef þessi launamál hjá bænum verða
til þess að fresta opnun skíðasvæð-
isins í Hlíðarfjalli, jafnvel um ein-
hverja mánuði, finnst mér eins og
verið sé að reka rassgatið framan
í þá sem eru að reyna að byggja
hérna upp vetrarferðamennsku.
Það er bara verið að „múna“ fram-
an í okkur,“ segir Geir Gíslason,
framkvæmdastjóri Akureyri Back-
packers.
Akureyrarbær hefur gefið út að
mögulega muni opnun skíðasvæðis-
ins verða frestað fram að áramótum
eftir að tveir verkstjórar í Hlíðar-
fjalli sögðu upp störfum. Tekist
er á um launamál. Þykir mörgum
sem bærinn bregðist einkennilega
við að telja það valkost að seinka
opnun skíðasvæðisins, enda hafi
bærinn ríku þjónustuhlutverki að
gegna bæði fyrir heimamenn og
ferðamenn.
Í opnuviðtali í Akureyri Viku-
blaði sl. sumar lýsti Geir Gíslason,
frumkvöðull í norðlenskri ferða-
þjónustu, hvernig gengi að byggja
upp vetraferðamennsku á Akureyri.
Hann sagði að stórefla yrði skíða-
svæðið, veita auknu fé til upp-
byggingar þess, enda fengi bærinn
slíka fjárfestingu margfalt til baka.
„En núna er verið að tala um að
hafa fjallið lokað á því tímabili
sem við köllum dauða tímabilið,
árstímanum sem við höfum séð sem
sóknarfæri vegna fjallsins. Þarna
erum við fyrst og fremst að tala um
innlenda ferðamanninn sem hef-
ur verið í sókn að koma hingað á
skíðasvæðið einmitt á þessum tíma.
Það er sama hvort þú rekur gisti-
stað, veitingahús eða hvaðeina, það
stórtapa allir ef þessi verður raun-
in,“ segir Geir.
Hann segir að viðbrögð bæj-
arins ógni stöðugleika sem vetr-
arferðamennska þurfi á að halda.
„Það er töluverður fjöldi sem sem
kemur hingað til Akureyrar gagn-
gert vegna skíðamennsku síðustu
tvo mánuði ársins. Ef það er mein-
ingin að ætla ekki einu sinni að
hafa opið milli jóla og nýárs er það
hreinlega grafalvarlegt fyrir þetta
svæði. Eitt er að þurfa að treysta
á snjó og frost en ef menn ætla að
ógna þjónustu og rekstri með því að
demba yfir almenning áhyggjum af
mönnun fjallsins er það algjörlega
óskiljanlegt.“
Akureyrarbær ákvað í sumar að
fella niður leið 2 hjá strætó vegna
þess að bærinn sagðist ekki getað
fundið mann til aksturs í sumar-
afleysingum. Hefur það verið rifjað
upp í tengslum við þetta mál. -BÞ
Akureyringar eru sammála um að sumarið 2014 fari í sögubækurnar. Elstu menn
muna ekki aðra eins langvarandi og samfellda blíðu og er haft á orði að sú úrkoma
sem féll í sumar hafi einkum orðið að næturlagi, meðan sólbrúnir sváfu! Þá er fólk
enn að tína ber og jafnvel kartöflur enn í jörð.
Geir Gíslason, framkvæmdastjóri Akureyri Backpackers: Hundskammar bæinn. Völundur