Akureyri - 09.10.2014, Blaðsíða 24
AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS
UM DAGINN OG VEGINN
JÓN ÓÐINN WAAGE
SKRIFAR
14.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI
Íhugun
Ég hef lengi þráð að koma ró á
hugsanir mínar. Það hefur ekki
tekist vel.
Ég hef prófað ýmsar gerðir af
íhugun. Það hefur yfirleitt gengið
út á að tæma hugann, að hugsa
ekkert. Er það hægt? Ef maður
hugsar ekkert, hvað gerir maður
á meðan? Oft geri ég bölvaða vit-
leysu á meðan ég hugsa, hverju ég
tæki upp á ef ég hugsaði ekkert?
En mér finnst það aðdáunar-
verður eiginleiki að geta róað sig
niður og náð mikilli yfirvegun og
slökun.
Margir verða svo færir í þess-
um fræðum að þeir lyftast frá
jörðinni. Ég geri mér engar vonir
um að komast á það stig, það er
eðlisfræðilega ómöglegt í mínu
tilfelli.
Ég las einu sinni um aust-
urlenska munka sem voru búnir
að ná svo mikilli færni í innhverfri
íhugun að þeir voru búnir að full-
komna þá aðferð að gjósa sæði inn
í sjálfan sig, sem sagt í öfuga átt.
Þetta þótti mér áhugavert.
Hvað ætli þeir séu að hugsa með-
an þeir framkvæma þetta? Ekk-
ert? Ó nei, ekki séns.
En ef þetta er hægt þá er þetta
eiginleiki sem að allir karlmenn
ættu að þróa með sér. Getnað-
arvarnir yrðu óþarfar, sparnaður
í þvotti á lökum yrði gríðarlegur
og enginn þyrfti að sofa lengur á
rökum bletti.
Ungir menn þyrftu þá ekki
lengur að útskýra fyrir mæðr-
um sínum að eldhúsþurrkurnar
í herberginu þeirra séu bara til
að snýta sér. Mæðurnar myndu
þá hætta að hafa áhyggjur af
krónísku kvefi sona sinna.
En við myndum þá hætta að
búa til börn. Þar fór það, best að
reyna frekar að svífa. a
Væntanlegt í Lindex, Glerártorgi
NÝ SENDING
KOMIN Í VERSLANIR!