Akureyri


Akureyri - 20.11.2014, Qupperneq 2

Akureyri - 20.11.2014, Qupperneq 2
2 43. tölublað 4. árgangur 20. nóvember 2014 Vertu viðbúinn vetrinum Mest seldu snjókeðjur á Íslandi Léttar • Sterkar • Traustar Ísnet Húsavík • s. 5 200 555 Ísnet Akureyri • s. 5 200 550 Ísnet Sauðárkrókur • s. 5 200 560 Kristbjörg Ólafsfjörður • s. 5 200 565 Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is www.isfell.is Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Fer fram á níu milljónir eftir banaslys Lögreglustjórinn á Akureyri hef- ur ákært karlmann á sjötugsaldri fyrir manndráp af gáleysi, líkams- meiðingar af gáleysi og umferð- arlagabrot. Akureyri Vikublað sagði fyrst frá því að maðurinn yrði ákærður eftir að hann var talinn hafa ekið ógætilega á Ólafsfjarðarvegi í mars sl. Þá tók hann fram úr snjó- ruðningstæki, að því að ákæru- valdið telur án nægilegrar varúð- ar. Varð árekstur við annan bíl og kona lést. Í kjölfarið fór fram um- ræða á landsvísu um framúrakstur. Lýsti talsmaður lögreglu á Akur- eyri því yfir í Akureyri Vikublaði að gáleysislegur framúrakstur á þjóðvegum landsins væri vanda- mál sem þyrfti að uppræta. Lög banna að ökumenn tefli öryggi annarra vegfarenda í tvísýnu með aksturslagi. Samkvæmt fréttastofu Rúv gerir ekkill konunnar sem lést einkarétt- arkröfur á hendur manninum og fer fram á að hann verði dæmdur til að greiða sér og börnum sínum níu milljónir króna í miskabætur, eða þrjár milljónir króna á hvert þeirra. Konan sem lést, Zofia Gnidziejko, lét auk eiginmanns eftir sig tvö börn, 4ra og 10 ára gömul. Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í síðustu viku. -BÞ Engin kona í stjórn Tækifæris Engin kona situr í stjórn Tækifæris sem nýverið keypti sjónvarpsstöð- ina N4. Steingrímur Birgisson, formaður stjórnar Tækifæris, segir spurður um skýr- ingar á þessu að mestu skipti að hafa hæfa einstaklinga í stjórn, burtséð frá kynja- vinkli. „Ef hægt væri yrði gott að hafa fólk af báðum kynjum í stjórn Tækifæris en ég stýri því ekki sjálfur hvern- ig skipað er í stjórn heldur hluthafar,“ seg- ir Steingrímur. Stjórn Tækifæris skipa auk Steingríms, Bjarni Hafþór Helga- son, varaformaður stjórnar, Dan Jens Brynjarsson fyrir hönd Ak- ureyrarbæjar, Óðinn Árnason og Rúnar Sigursteinsson. Í varastjórn er engin kona heldur. Hana skipa Sverrir Gestsson og Arne Vagn Olsen. Tækifæri hf. er fjárfestingafélag sem fjárfestir í nýsköpun á Norðurlandi. Félag- ið er í eigu fyrirtækja og sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og vestra og er því hálf- opinber stofnun. Í ljósi þess að Akureyrar- bær á fulltrúa í stjórn Tækifæris spurði blaðið Eirík Björn Björgvinsson, bæjar- stjóra á Akureyri, hvað honum þætti um að hvorki væri konu að finna í stjórn né varastjórn Tækifæris. „ Akureyrarbær til- nefnir aðeins einn mann í stjórn til eins árs sem kosin er á aðalfundi. Dan Brynjarson fjármálastjóri er fulltrúi bæjarins í dag. Mér finnst eðlilegt að þarna sé gætt kynjajafn- réttis ef því er viðkomið,“ svarar bæjarstjóri. Alls eru hluthafar 33 en stærstu eigendur Tækifæris eru auk Akur- eyrarbæjar KEA og Lífeyrissjóð- urinn Stapi. Hlutafé Tækifæris er 765 milljónir króna að því er fram kemur á heimasíðu félagsins. „Að sjálfsögðu tel ég að það væri kostur að hafa konur í þessari stjórn, ég styð fjölbreytni. En það er oft ekkert auðvelt að fá fólk til stjórnarstarfa, slík störf kalla á menntun, reynslu og þekkingu, ekki síst eru gerðar gríðarlegar kröfur til stjórnarmanna í fjármálafyrir- tækjum. Tækifæri á núna hlut í N4 og þar lögðum við mikið upp úr að fá konur í stjórn, það gekk upp og eru tvær konur af þremur í stjórn. Almennt finnst mér oft ganga illa að fá konur til stjórnarsetu,“ segir Steingrímur Birgisson. Lög voru sett í september árið 2013 um hlutföll kynja í stjórnum fyrirtækja. Lögin segja að konur skuli skipa að minnsta kosti 40% stjórnarsæta ef stjórnarmenn eru fleiri en þrír. Samkvæmt rannsókn- um hefur hlutfall kvenna í stjórn- um aukist óverulega síðan lögin tóku gildi. Hlutfall kvenna er sam- kvæmt rannsóknum á landsvísu um þriðjungur í stjórnum fyrirtækja á móti 66% karla. Formaður stjórnar Tækifæris segir að reynt hafi verið að fá konu í stjórn fyrir síðasta aðalfund. Rætt hafi verið við konur en þær hafi ekki treyst sér til starfans. Hann segist vonast til að á næsta aðal- fundi verði breyting. -BÞ Mikill skaði orðinn „Hljóðið í okkur er mjög slæmt, verkfalið hefur staðið lengi og það er farið að bíta. Samt er baráttu- hljóð í tónlistarkennurum, fólk er staðfast í verkfallinu,“ segir Hjör- leifur Örn Jónsson, skólastjóri Tón- listarskólans á Akureyri. Undir þetta taka kennarar við skólann sem blaðið hefur rætt við. Kennarar telja að skortur á virðingu og skilningsskortur á mik- ilvægi tónlistarmenntunar standi samningum fyrir þrifum. Þá sé sér- stök tregða í deilunni vegna óleystra mála milli ríkisins og Reykjavíkur- borgar sem kunni að bitna á öðrum sveitarfélögum. Hjörleifur segist kannast við þessa umræðu en segist ekki geta fullyrt neitt um þetta. En hver er skaði nemenda nú þegar? Hjörleifur svarar að verkfall- ið muni að líkindum seinka sumum í náminu. Það sé ekki síst bagalegt fyrir þá sem séu háðir því að fá einingar metnar milli skólastiga. Þá bendi allt til að um helmingur fyrirhugaðra jólatónleika á vegum skólans sé þegar kominn í uppnám en í hefðbundnu ári fara fram 90 tónleikar alls á einu námsári á veg- um skólans. „Við höfum líka miklar áhyggjur af nemendum sem stefndu að áfangaprófi eftir áramót, það er ekki víst að þeir geti þreytt þau próf.“ „Það er vont að ekki sé sam- ræmi milli aðgerða og þeirrar stað- reyndar að skapandi greinar leggja mikið fram til landsframleiðsl- unnar og þá eru mörg önnur áhrif ónefnd. Stundum líður manni eins og arfur liðins tíma svífi yfir vötn- unum,“ segir Hjörleifur Örn Jóns- son, skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri. a Bæjarstjóri: Eðlilegt að gæta kynjajafnréttis. Steingrímur Birgisson stjórnarformað- ur: „Almennt finnst mér oft ganga illa að fá konur til stjórnarsetu.“ Öryggisvarnir á heimil- um efldar eftir árásina  Sprenging hefur orðið í fyrirspurn- um sem varða auknar öryggisvarnir á heimilum Akureyringa eftir að ráðist var á fulltrúa sýslumanns á Akureyri í síðustu viku og kveikt í bíl hans. Þetta segir Helgi Jóhanns- son, framkvæmdastjóri Öryggis- miðstöðvar Norðurlands, en fyrir- tækið annast m.a. sólarhringsgæslu heimila og fyrirtækja á Norður- landi.   „Það er óhætt að segja að það hafi orðið sprenging í fyrirspurnum síðustu daga eftir atvikið á heimili fulltrúa sýslumanns á Akureyri,“ segir Helgi. „Heimilisfólk í venjulegum íbúðahverfum hér á Akureyri er auðvitað að átta sig á því að það gengur ekki lengur að hafa húsin óvarin. Rétt eins og í Reykjavík þá eru æ fleiri Akureyringar að láta setja upp hjá sér eftirlitskerfi á heimilum sínum.“ Helgi bendir á að lengi framan af hafi öryggisfyrirtæki á Norð- urlandi nær einvörðungu sinnt gæslu fyrirtækja og stofnana. Nú sé greinileg breyting að verða á því: „Það er eins og almennir borg- arar hafa vaknað upp af værum blundi.“ a Sumir segja tímann afstætt hugtak, en stundum er hann mjög áþreifanlegur. Völundur

x

Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.