Akureyri


Akureyri - 20.11.2014, Blaðsíða 9

Akureyri - 20.11.2014, Blaðsíða 9
20. nóvember 2014 43. tölublað 4. árgangur 9 NÝTT BLAÐ Á VEGUM FÓTSPORS Út er komið nýrtt blað á vegum Fótspors, SLEGGJAN. Sleggjan bætist í hóp systurblaða Akureyrar Vikublaðs fréttablað um iðnað og verður blaðinu fátt óviðkomandi í þeim efnum, segir í blaðinu. Sleggjunni var dreift með Morgunblaðinu sl. þriðjudag og kennir ýmissa grasa. Geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri fékk sl. mánudag afhentar tvær gjafir frá tveimur fyrirtækjum. Annars vegar gaf Íspan deildinni Lazyboy stól og flatskjá í sjónvarpsherbergi deildarinnar. Hins vegar gaf Lindex á Akureyri deildinni 100.000 króna peningagjöf. Forráðafólk geðdeildarinnar lýsti mikilli ánægju með gjafirnar þegar afhending þeirra fór fram. Andvirði skúrs til góðgerðarmála Skúrinn góði sem nú hefur verið seldur til Vatnajökulsþjóðgarðs. Andvirðið rennur til bágstaddra Þingeyinga. Á hádegi í gær fór fram óformleg athöfn þar sem Jarðböðin í Mývatns- sveit gáfu andvirði skúrs sem hefur blasað við gestum baðlónsins á hægri hönd þegar gengið er til baða. Að sögn forráðamanns Jarðbaðanna varð niðurstaða skipulagsbreytinga og endurbóta baðstaðarins sú að selja skúrinn sem fyrst gegndi hlut- verki gufuhúss en síðar sem varð- skýli. Vatnajökulsþjóðgarður keypti skúrinn fyrir 575.000 krónur en eigendur Jarðbaðanna ákváðu að láta féð renna til góðra mála. Veitti sóknarpresturinn í Skútustaða- hreppi gjöfinni móttöku fyrir hönd Velferðarsjóðs Þingeyinga í gær. Féð mun renna úr sjóðnum til bágstaddra íbúa í héraði og þá ekki síst í því skyni að gera jólin gleðileg. Gífurlegt úrval af gönguskíðum pakkinn frá 49.900 (skíði, bingingar, skór og stafir) SKÍÐAÞJÓNUSTAN Fjölnisgötu 4b sími 462 1713 Felgulökkun Sandblásum og lökkum felgur undir öll farartæki. Haf ið samband og kynn ið ykkur mál ið ! D r a u p n i s g a t a 7 m l s í m i 4 6 2 - 6 6 0 0 / 8 9 7 - 8 4 5 4 l p o l y a k @ s i m n e t . i s Áttu vandaðar felgur sem farnar eru að láta á sjá? Notum innbrennda duftlökkun sem er slitsterkasta lökkunaraðferð sem býðst og hentar því einstaklega vel til lökkunar á bílfelgum. Það borgar sig að láta okkur duftlakka gömlu felgurnar og gera þær sem nýjar. Lökkum / húðum einnig alla málma og gler. Er ekki tímabært að lagfæra felgurnar fyrir veturinn?

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.