Akureyri


Akureyri - 20.11.2014, Blaðsíða 8

Akureyri - 20.11.2014, Blaðsíða 8
8 43. tölublað 4. árgangur 20. nóvember 2014 VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA? Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu- póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856. LOF OG LAST VIKUNNAR LAST fær stjórnmálafræðingurinn sem orðaði það þannig í fréttum í síðustu viku að að yngri kynslóðirnar væru „dóm- harðari“ en hinar eftir könnun sem mældi að 60% landsmanna sem taka afstöðu krefjast afsagnar Hönnu Birnu. Stuðning- ur við afsögn er meiri meðal ungs fólks en eldra og lýsti fræðingurinn stöðunni í fréttum Stöðvar 2 sem meiri dómhörku meðal þeirra yngri en eldri. „Hið rétta er að ungt fólk er með prinsipp meðan sumir af hinum eldri eiga hagsmuna að gæta og kjósa því samtryggingu valdaflokkanna. Afstaða unga fólksins er ekki dæmi um dómhörku heldur von fyrir Ísland, enda nýtur innanríkisráðherra ekki trausts,“ segir háskólanemi sem hafði samband við blaðið... LOF fær gleraugnabúðin Geisli á Glerár- torgi fyrir frábæra þjónustu. Svo segir karl sem hafði samband við blaðið. Hann hafði farið með gleraugu sem hann hafði keypt í búðinni til viðgerðar og fengið frábæra þjónustu og alúðlegt viðmót. LAST fá matvörubúðir sem ekki leggja upp úr að selja gott grænmeti eða óskemmda ávexti. Svo segir Akureyringur sem hringdi í blaðið. Hann segir brögð að því að ávextir í búðum séu „loðnir“ af elli og grænmeti ónýtt. Ef kúnnarnir kvarti fái þeir hvorki skýringu né afsök- unarbeiðni. „Það þarf að auka metnað og neytendavernd, það þarf líka að bæta siðferði gagnvart kúnnum. Búðir þurfa að sýna meiri virðingu og auðmýkt,“ segir Akureyringurinn... Þú gætir verið fljótari að taka flug til Dublin en keyra til Akureyrar – og það er ódýrara! Svo segir á heimasíðu Wow flugfélagsins í kynningu á Dublinarferðum félagsins. Þetta LASTAR íbúi í Þorpinu á Akureyri og telur um „ósmekklegan“ samanburð að ræða. „Mér finnst að það séu ekki góð vinnubrögð að reyna að fá borgarbúa til að fljúga út fremur en heimsækja Akureyri. Fyrir utan að það er eins og félagið gefi sér að allir íbúar þessa lands búi fyrir sunnan,“ segir „þorparinn“ sem hringdi inn lastið. AKUREYRI VIKUBLAÐ 43. TÖLUBLAÐ, 4. ÁRGANGUR 2014 ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is. FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193. RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri. UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING 14.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND Dularfulla hljóðið heyrist á ný Enn virðist sem torkennilegt hljóð geri íbúum á Akureyri lífið leitt. Ak- ureyri Vikublað sagði frá því í vor að lágtíðnihljóð ylli sumum íbúum á Ak- ureyri andvöku. Skömmu eftir að blað- ið birti fréttina hafði fólk samband og taldi hljóðið úr sögunni. Kona, bú- sett á Eyrinni, hafði svo samband við blaðið í fyrradag og sagði að dimmt og furðulegt hljóð, eins konar lágtíðnisuð, hefði truflað nætursvefn hennar upp á síðkastið. Samkvæmt lýsingu kon- unnar lýsir hljóðið sér með svipuðum hætti og þegar blaðið greindi frá því í maí sl. að Heilbrigðiseftirlit Norður- lands eystra hefði fengið ábendingar og kvartanir vegna næturhljóða. Um tíma bárust böndin að loft- blásara í Vaðlaheiðargöngum. Ósannað þykir þó að sökudólginn sé þar að finna en furður eru þó ýmsar í Vaðlaheiðar- göngum síðan framkvæmdir hófust. Í samtali við Akureyri Vikublað fyrr á árinu sagði Alfreð Schiöth heilbrigð- isfulltrúi: „Þetta er fyrirbæri sem er ekki óþekkt í fræðunum en vissulega dálítið ráðgáta. Gæti verið lágtíðni- hljóð sem berst um langan veg. Í erli dagsins tekur enginn eftir þeim en svo þegar kvöldar og kyrrist magnast hlut- fallegur styrkur.“ Í athugasemdum við frétt blaðsins þegar hún birtist á vefnum í maí síð- astliðnum steig fjöldi fólks fram á rit- völlinn og kannaðist við hljóðið. „Mér finnst gott að lesa þessa frétt, því ég var farin að halda að ég væri geðveik eða a.m.k. illa ímyndunarveik,“ sagði einn íbúinn. Sumir telja iðnaði um að kenna, telja að um vélarhljóð sé að ræða. Aðr- ir viðmælendur blaðsins hafa hætt sér nálægt hinu yfirskilvitlega í leit að skýringum. Embætti heilbrigðis á Norðurlandi eystra er þó jarðbundnara en svo að telja að verur framandi vídda skapi hljóðin þótt sumir íbúar hafi kallað lágtíðnihljóðið draugahljóð. „Þetta er afar hvimleitt, mér finnst hljóðið koma að norðan, en ég vona að einhver botn fáist í þetta, því það er ekki hægt að sofa með opna glugga þegar verst lætur,“ segir konan á Eyr- inni sem hafði samband við blaðið. -BÞ Þegar þjóðarlík- aminn brotnar Það er svo sem ekki í frásögur færandi að maður renni til í hálku og brjóti bein. Það er alltaf að gerast. Jæja, að brjóta herðblað er reyndar fremur sjaldgæft beinbrot. Eitt af hverjum 100 brotum las ég á einhverjum vísindaþræði. En eigi að síður: Við rennum stundum til og tognum, beinbrjótum okkur eða fáum skeinu við fall. Þannig er það nú bara. Nær væri kannski að skrifa um hvunndagshetjur, daufdumba, krabbameinssjúka eða þá sem eiga mest undir góðu heilbrigðiskerfi. En ég ætla að segja litla sögu af minni viðburðum og tengja við ástand samtímans því e.t.v. vísar reynslan út fyrir sig. Það var sunnudagur þegar ég herðablaðsbrotnaði og ekki um annað að ræða en fara upp á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Reyndar óraði mig ekki fyrir því þá að ég væri beinbrotinn. Tippaði fremur á slæma axlartognun. Sömu sögu mátti segja um unglækninn sem leit örstutt á mig eftir að ég hafði beðið lengi, lengi, lengi. Löng bið einkennir alla heilbrigðisþjónustu hér á landi núna nema ef fólk lendir í lífshættu. Klukkutíma eftir að fyrsti leit á mig kom einhver annar starfsmaður og baðst afsökunar á biðinni. Þannig gekk þetta fram eftir degi uns greining lá fyrir. Þá fór maður bara heim í fatla með ávísun á ofurskammt af verkjalyfjum. Fimm dögum síðar var endurkoma á slysó. Ég hélt kannski eftir tíuþúsundkallinn sem ég hafði verið rukkaður fyrir að endurkoman væri frí, bara tveggja mínútna skoðun. En ónei. 5.500 krónur í viðbót. Nú fékk ég ávísun á sjúkraþjálfara. Þar eru fyrstu tímarnir ekki niðurgreiddir, a.m.k. 25.000 krónur í viðbót fyrir fyrstu fimm skiptin. Kominn upp í 40.000 kall og ferlið rétt að byrja. Það var þá sem ég hugsaði hvers vegna ég hefði alltaf greitt skatta. Hvert fór féð? Fólkið sem með- höndlaði mig var voða kurteist og fínt en ofhlaðið störfum og biðin var nánast endalaus. Og var ég fimm- tugur maðurinn ekki búinn að greiða skattana mína alla ævi, einmitt til að þurfa ekki að taka upp veskið ef ég lenti í slysi? Vinur minn sem býr í París tognaði nýverið í körfu- bolta. Hann fær (án þess að ganga eftir því að fyrra bragði) 40 fría tíma hjá sjúkraþjálfara þar úti. Franska ríkið greiðir. Í Bretlandi varð mér einu sinni misdægurt og leitaði lækninga. Þurfti ekki einu sinni að greiða fyrir leigubílinn sem ók mér frá heilsugæslustöð á spítala, allt hitt var frítt líka, samt hafði ég aldrei greitt breska ríkinu skatt. Hvað varð um heilbrigðiskerfi Íslands? Hvert fara skattarnir? Á sama tíma og innviðir kerfisins brotna eins og herðablöð í hálku er helsta vanda- mál forsætisráðherra hvort hann ætlar að velja sér 20 milljóna króna Benz eða 20 milljóna króna Benz, veruleikafirrtur gjörsamlega. Allir vita að þjóðarlík- aminn er brotinn en það er ekki einu sinni hægt að eiga samtal um það, því merkingu orða og hlutverki samfélagsins er viðsnúið með newspeak orðræðu að hætti Orwell. Með ritstjórakveðju Björn Þorláksson Gulrauður draumur. Ellert Hauksson, íbúi í Mývatnssveit, fangaði litfagra birtu þegar hann beindi myndavélinni sinni yfir Mývatnið úr norðri um síðustu helgi. Ellert segir líklegt að mengun frá eldgosinu í Holuhrauni hafi átt þátt í að skapa birtuna. Gulrauður draumur í boði eldjötna.

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.