Akureyri - 20.11.2014, Síða 11
20. nóvember 2014 43. tölublað 4. árgangur 11
Ákvörðun um Bakka tekin
15. desember næstkomandi
Óþreyja er í mörgum Þingeying-
um eftir því að framkvæmdir hefj-
ist við stóriðju á Bakka á Húsavík.
Þetta kom fram á fundi sem stéttar-
félagið Framsýn stóð nýverið að
á Húsavík um fyrirhugaðar fram-
kvæmdir.
Um 70 manns mættu á upplýs-
ingafund félagsins. Snæbjörn Sig-
urðarson verkefnastjóri hjá Norð-
urþingi fór yfir stöðuna og sagði
mikilvægt að snúa vörn í sókn í at-
vinnumálum. Störfum hefði fækk-
að um þriðjung á svæðinu eða um
32% á árabilinu 1990 til 2009 að
því er fram kemur á vef Framsýnar.
Snæbjörn sagði allt í fullum
gangi varðandi verkefnið á Bakka,
búið væri að skipuleggja iðnað-
arlóðir á Bakka, frekari hafnar-
framkvæmdir og vegalagningu sem
og göng frá hafnarsvæði að iðnað-
arsvæðinu í Bakka. Flestir samn-
ingar væru í höfn.
Þá væru töluverðar fram-
kvæmdir á vegum Landsvirkjunar í
gangi á Þeistareykjum sem miðuðu
að því að gera allt klárt fyrir virkj-
unarframkvæmdir um leið og
samþykkt PCC um uppbyggingu á
orkufrekum iðnaði á Bakka lægi
fyrir sem yrði vonandi um miðjan
desember. Samhliða vær Landsnet
að skoða línulögn frá Þeistareykj-
um til Húsavíkur.
Tveggja áfanga framkvæmd
Verði af framkvæmdum þarf fyrri
áfanginn á Bakka um 45 Mw af
raforku en verksmiðjan verður
byggð upp í tveimur áföngum. Talið
er að um 700 manns komi að upp-
byggingunni sem ætlað er að ljúki
haustið 2017 enda hefjist hún á
næsta ári. Eftir að framkvæmdum
líkur er áætlað að um 130 til 150
manns vinni við verksmiðjuna og
með hliðarstörfum verði starfa-
fjöldinn um 200 ný störf. Lands-
virkjun hefur sagt að endurskoðun
umhverfismats í Bjarnarflagi hafi
engin neikvæð áhrif á Bakka.
Fleiri fyrirtæki hafa sýnt því
áhuga að hefja starfsemi á Bakka
og bíða á hliðarlínunni meðan
PPC er að klára sín mál eftir því
sem frram kom á fundinum. Í máli
Snæbjörns kom einnig fram að
búið að tryggja fjármögnunina að
mestu en Þýski sparisjóðabankinn
með tryggingum frá Þýska ríkinu
sér um að fjármagna verkefnið að
mestu eða um 70%. Þá eru bundnar
vonir við að íslenskir lífeyrissjóðir
fjármagni innlenda hlutann sem
upp á vantar. Reiknað er með því
að afstaða þeirra til aðkomu að
verkefninu liggi fyrir 15. desember
n.k. Gangi fjármögnunin eftir taldi
Snæbjörn fátt því til fyrirstöðu að
framkvæmdir gætu hafist á næsta
ári.
Gögn sýna að veikt atvinnu-
ástand í Þingeyjarsýslum hefur
valdið fólksflótta. Viðvarandi fækk-
un hefur orðið í flestum sveitarfé-
lögum sýslunnar nema í Langanes-
byggð. Á sama tíma og íbúum
fjölgaði um 1,18 prósent á landinu
öllu 2013-2014 fækkaði Þingeying-
um um 1,36%. a
Skuggahliðar kvótakerfisins
Húsavík er ekki í flokki fámennra byggða með ein-
hæft atvinnulíf þannig að þörf sé á að grípa til sér-
stakra mótvægisaðgerða þrátt fyrir flutning Vísis frá
Húsavík sem kostaði bæinn 60 störf. Þetta sagði Sig-
urður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra í svari
við fyrirspurn frá Kristjáni Möller þingmanni NA-
-kjördæmis í vikunni á Alþingi.
Steingrímur J. Sigfússon, VG, sagði brotthvarf
Vísis og högg Húsvíkinga þungt sl. sumar. Hann
sagði að kvótinn væri að safnast saman. „Það verður
að auka svigrúm stjórnvalda til að tryggja einhverja
viðunandi byggðafestu í sjávarbyggðunum sem eiga
allt sitt undir sjávarútvegi.“
Össur Skarphéðinsson, Samfylkingu, sagði
kveðju ráðherra til Húsvíkinga kalda, að svara því
til að þeim stæðu engar mótvægisaðgerðir til boða
þrátt fyrir áfallið. Þau 60 störf sem hyrfu frá Húsavík
væru nánast helmingur þeirra starfa sem rætt væri
um að sköpuðust í tengslum við fyrirhugaða kísil-
verksmiðju PCC. Málið væri dæmi um skuggahliðar
kvótakerfisins.
Kristján Möller, þingmaður NA-kjördæmis, sagði
að ekki þýddi fyrir ráðherra að kenna veiðileyfagjaldi
um þróunina, því Vísir fengi mestan afslátt veiði-
gjalda allra sjávarútvegsfyrirtækja. Ráðherra svaraði
að fólk yrði að horfast í augu við að ekki sé sjálfgefið
að alls staðar verði rekinn sjávarútvegur í framtíð-
inni þar sem hann hafi verið stundaður.
Frá fjölsóttum fundi Framsýnar. Framsýn.
Bakki við Húsavík. Fyrirheitna landið í huga sumra Þingeyinga. Aðrir óttast mengun og gagnrýna einhæfni atvinnulífs. Völundur