Akureyri - 20.11.2014, Page 14
14 43. tölublað 4. árgangur 20. nóvember 2014
SPORTIÐ Akureyri.net
Símar: 848-9114 & 862-8833 | malbikun@simnet.is
www.malbikun.is
Leitaðu tilboða í síma 848-9114 eða 862-8833
eða malbikun@simnet.is
SNJÓMOKSTUR OG SANDDREIFING
Tökum að okkur snjómokstur og sanddreifingu á stórum sem litlum plönum
Góð þjónusta…vönduð vinna
„Loksins er komið að þessu móti!“
Dagana 21. og 22. nóvember fer
fram Bikarmót Kraftlyftingasam-
bands Íslands í íþróttahúsinu við
Glerárskóla. Samhliða bikarmótinu
fer fram Akureyrarmótið í kraft-
lyftingum og er það mót haldið í
fertugasta sinn. KFA (Kraftlyft-
ingafélag Akureyrar) sér um allt
mótshaldið og með þessu móti hefst
afmælismótaröð félagsins sem
fagnar 40 ára afmæli á næsta ári.
Að sögn Grétars Skúla Gunnars-
sonar hjá KFA er þetta stærsta mót
ársins og segja má að þetta sé mótið
sem menn hafa beðið eftir allt árið
og allt sterkasta kraftlyftingafólk
landsins er skráð til leiks. ,,Þetta er
síðasta mót ársins og þarna verður
öllu til tjaldað og mikil keppni um
hver verður stigahæsti lyftinga-
maður ársins. Keppendur verða 55
og af þeim koma 21 frá KFA. Hlut-
fall kvenna í mótinu er nokkuð hátt
því að þeim 55 keppendum eru 21
kona og þar af 6 koma frá KFA.
Þar sem þetta er afmælismót KFA
eigum við von á fjölda fólks til Ak-
ureyrar vegna þessa móts. Undir-
búningur hefur gengið vel og mikill
spenna í loftinu, loksins er komið
að þessu móti“ sagði Grétar Skúli
Gunnarsson.
Mótið hefst á föstudeginum
klukkan 17:00. Á laugardeginum
hefst keppni klukkan 10:00 með
keppni í léttari flokkum karla og
kvenna en klukkan 15:00 hefst
keppni í þyngri flokkum karla. a
Viktor Samúelsson frá KFA á bikarmóti Kraft 2012
Á DÖFINNI
Föstudagurinn 21. taka Hamrarnir á
móti Mínunni í 1. deild karla í hand-
bolta í leik sem fram fer í íþrótta-
höllinni. Leikur liðanna hefst leikur
liðanna klukkan 19:15.
Laugardagur 22. tekur Þór á
móti KFÍ í 1. deild kvenna í körfu-
bolta í leik sem fram fer í íþrótta-
húsinu við Síðuskóla. Leikur liðanna
hefst klukkan 15:30.
Stelpurnar í KA/Þór sækja lið
Gróttu heim í Olísdeild kvenna í
handbolta. Leikur liðanna fer fram
í Hertz höllinni og hefst klukkan
15:00.
Þá sækir Akureyri lið Stjörnunn-
ar heim í Olísdeild karla í handbolta í
leik sem fram fer í TM höllinni. Leikur
liðanna hefst klukkan 16:00.
Sunnudagur 23. Þór tekur á móti
Hamri í 1. deild karla í körfubolta í
leik sem fram fer í íþróttahúsinu við
Síðuskóla. Leikurinn hefst klukkan
16:00.
Ábendingar um efni í blaðið og
á vefinn itrottir@akureyri.net
Frábær ferð hjá Óðni
Sundmót fór fram í Ásvallalaug
14.-16.nóv sl. Krakkarnir frá Óðni
gerðu góða ferð suður og stóðu sig
frábærlega. Lið Óðins var þannig
skipað: Bryndís Bolladóttir, Nanna
Björk Barkardóttir, Elín Kata Sig-
urgeirsdóttir, Rakel Baldvinsdóttir,
Kristín Ása Sverrisdóttir og Embla
Sólrún Einarsdóttir. Einnig höfðu
þau Birgir Viktor Hannesson og
Anna Lilja Valdimarsdóttir tryggt
sér keppnisrétt en þau sáu sér ekki
fært að taka þátt vegna anna í skóla.
Þó svo að liðið hefði verið fámennt
þá var það góðmennt. Glæsilegur
árangur náðist og stelpurnar vöktu
verðskuldaða athygli. Mörg verðlaun
unnust og ekki var það síður að það
voru glæsilegar bætingar hjá liðinu.
Þær sem syntu til úrslita voru Bryn-
dís Bolladóttir, Elín Kata Sigurgeirs-
dóttir, Nanna Björk Barkardóttir og
Rakel Baldvinsdóttir. Stelpurnar
tóku verðlaun í tveimur boðsund-
um og voru hársbreidd frá því í því
þriðja. Bryndís Bolladóttir krækti
sér síðan í verðlaun í 50 og 100 m.
flugsundi og 100 m. fjórsundi og Elín
Kata Sigurgeirsdóttir fékk verðlaun
í 100 m. flugi og 200 m. flugi.
Boðsundssveitirnar skipuðu þær
Bryndís Bolladóttir, Elín Kata Sig-
urgeirsdóttir, Nanna Björk Bark-
ardóttir og Rakel Baldvinsdóttir.
Þær unnu til verðlauna í 4*200 m.
skriðsundi og 4*100 m. fjórsundi.
Bryndís Bolladóttir fer síðan með
unglingalandsliðinu til Svíþjóðar
í byrjun desember til að keppa á
Norðurlandameistaramótinu. Elín
Kata var hársbreidd frá lágmark-
inu þar. Elín Kata bætti akureyrar-
metið í 200 m. flugsundi og Bryndís
einnig í skriðsundinu. Stelpurnar
slógu síðan metið í 4*200 m. skrið-
sundi. Frábær árangur í alla staði
hjá stelpunum sem eiga sannarlega
bjarta framtíð fyrir sér.