Akureyri


Akureyri - 20.11.2014, Page 21

Akureyri - 20.11.2014, Page 21
20. nóvember 2014 43. tölublað 4. árgangur 21 Ármann Einarsson.“ Hefur fest sig á öllum heiðum landsins Magni áætlar að hann hafi spil- að um 750 sinnum með hljómsveit sinni Á móti Sól, auk allra hinna gigganna. „Það er eitthvað sígauna- líferni sem fylgir þessu djobbi, eitt- hvað óstjórnlega skemmtilegt, æv- intýraþráin, maður!“ Magni hefur spilað á böllum í nítján ár þrátt fyrir að vera að- eins 36 ára gamall. Hann hefur búið í hljómsveitarrútu um helgar mánuðum saman, farið hringinn oftar en tölu verður á komið. Hljóm- sveitarbíllinn hefur fest sig á öllum heiðum landsins, the show must go þar sem allt gengur út á að vera til í slaginn, sérhverja helgi nánast. Guðirnir hljóta að vera djammarar, því meðlimir Á móti sól hafa fætt í heiminn um 10 börn síðan Magni hóf ferill sinn í bandinu. Þau hafa öll komið í heiminn á virkum dög- um, sem er mikil tillitssemi við for- eldrana! „Þetta líf smellpassar með fjöl- skyldulífinu þegar allt kemur til alls. Maður er heima á virkum dög- um og þá er ég frábær húsfaðir. Svo fer ég í túr um helgar eins og sjómaður. Ef maður er vel giftur er svona líf enginn samfelldur slagur, þvert á móti.“ Varð snarruglaður þarna úti... Magni segir að það hafi aldrei kall- að á sig að reyna að meika það í útlöndum. „Hér á Íslandi eru 320.000 manns og ef Íslendingur búandi á Íslandi nær að verða góð- ur í einhverju fær hann vinnu við það. Utan landsteinanna þarftu að leggja þig þúsundfalt fram til að ná árangri, því þar er samkeppnin svo miklu meiri. En hvað með þátttökuna í SuperNova, sumarið sem lands- menn sátu límdir um miðjar nætur og fylgdust með glæsilegri þátttöku Magna í beinni útsendingu í keppni í Bandaríkjunum. Var það ekki til- raun til alheimsmeiks og þurfti ekki sterk bein til að þola þá miklu athygli sem glaði sveitadrengurinn að austan öðlaðist á einnu nóttu? „Ég firrtist nú dálítið þarna úti, varð hreinlega snarruglaður svo ég orði það hreint út. Þetta var of mikið fyrir mann sem kom úr 100 manna sveitarþorpi. Í dag hugsa ég aldrei um þessa keppni, hún er þá- tíðin,“ svarar Magni og verður ögn alvarlegur á svipinn. Vill ekki hallmæla höfðuborginni, en... Hann segist alltaf hafa verið reglu- maður, hafi aldrei prófað neitt sterkara en Captain Morgan og aldrei átt í vandræðum með hann. En jafnvel fyrir mann sem lifir reglulífi (sem hreint ekki er sjálf- gefið í lífi þeirra sem leggja allt undir á sviðinu) virðist vegurinn frá Super Nova og norður til Akur- eyrar nokkuð langur, ekki síst þar sem Magni hefur búið árum saman í Reykjavík og megnið af giggunum hans á sér stað á suðvesturhorninu. Hvernig bar það til að Akureyri varð næturstaður ykkar Eyrúnar Huldar Haraldsdóttur og sona ykk- ar þriggja? „Þegar Eyrúnu bauðst íslensku- kennarastaða við MA var það stór- kostlegur heiður og við fluttum norður árið 2007 og bjuggum hér fyrir norðan í þrjú ár, kunnum vel við okkur. Svo fórum við aftur suð- ur, bjuggum önnur þrjú ár þar. Það bættist við baranahópinn og allt varð flóknara. Nú ætla ég ekki með neinum hætti að hallmæla höfuð- borginni okkar, en maður stækkar ekkert við sig í húsnæði þar svo auðveldlega. Einn daginn hringdi Eyrún í mig þar sem ég var fastur í umferð á Miklubrautinni og sagði að staða hefði losna við MA og að hún hefði fundið frábæra íbúð á Akureyri. Ég veit betur en að and- mæla konunni minni, hún er skýr- ari aðilinn í þessu sambandi þannig að ég bara sagði ókei, flott.“ Við þönbum kaffið og ræðum kosti þess og galla að búa á Akur- eyri. Honum finnst stærð bæjarins fullkomin. Nánast öll þjónusta sem þurfi og svo hafi bæst við fúnda- mental stofnanir eins og ToysRus, Lindex og Elco! „Ég fíla taktinn hérna, hann er hægari og stöðugri en í Reykjavík, maður fær meira út úr hverjum degi, þarf ekki að eyða hálfum deginum í akstur fram og aftur fyrir utan þann augljósa kost að hér er allt miklu ódýrara en fyrir sunnan, t.d. húsnæðið.“ Við ræðum Sjallann en þar fór fram síðasti „Palladansleikurinn“ um síðustu helgi en húsið mun loka sem dansstaður um áramótin. Mun Magni sakna Sjallans? „Ja, ekki staðarins persónulega, okkur hefur ekki gengið neitt sér- staklega vel í þessu húsi. En auðvit- að er bömmer að það sé þá enginn ballstaður eftir hérna. Rekstur- inn hefur gengið erfiðlega og það skrifast auðvitað á Akureyringa að miklu leyti.“ Svavar Knútur „beint frá býli“ Magni er dínamískur náungi. Kurteis, glaðvær og alúðlegur. Hann leggur mikið upp úr að vera gott foreldri og vill engan mann styggja. Það kemur góð í augun þegar ég ákveð að hætta mér út í umræðuefnið samfélagsmál. Tölu- verð umræða hefur blossað upp um hvort listamenn eigi í auknum mæli að huga að samfélagspólitískum álitaefnum í þágu aukins réttlætis. Svavar Knútur (sem ég hélt að væri „latte“ en Magni leiðréttir mig og segir hann sveitamann „beint frá býli“ hefur náð til fjöldans og orðið mörgum innblástur. Eiga listamenn að beita karisma- og kennivaldi sínu til að taka opinberlega afstöðu til samfélagsmála í þeirri von að heiminum verði breytt til góðs? „Það verður hver að ráða því. Ég hef sterkar skoðanir á ástandinu í þessu landi en ég hef líka það sterkar skoðanir á sjáfum mér að ég veit betur en svo að reyna að halda fram að ég viti allt. Ég leyfi mér að vona að allir inni á Alþingi a.m.k. haldi að þeir viti hvað þeir séu að gera, ég vona að þetta lið sé að störfum af heilindum. En stundum fær maður því miður annað á tilf- inninguna.“ Ísland á hræðilegum stað núna Hann bætir við: „Mér finnst íslenskt samfélag eiginlega á hræðilegum stað. Enginn hefði trúað því fyrir 20 árum, hvernig samfélagið er orðið með sín hræðilegu commentakerfi og einhverkonar andleysi. Það er skylda allra Íslendinga að reyna að hafa einhver áhrif á samfélagið og að vissu leyti held ég að það sé auðveldara fyrir fólk sem er vant að koma fram eins og t.d. tónlistarmenn eins og Svavar. Mér finnst frábært að Svavar sé að gera þetta og ég skil reyndar ekki að fólk hafi ekki tekið aftur til við mótmæli fyrr en núna. Er ástandið eitthvað skárra nú en þegar þjóðin fór út árin 2008-2009 og barði pönnurnar úti á torgum? Eru ekki innviðir samfélagsins að verða bensínlausir? Í grundvallar- atriðum borga ég skatta til að hafa mennta- og heilbrigðismálin í lagi, hverjum er ekki drullusama hvort húsnæðislánið stendur í 24 eða í 25 millum, ég hef meiri áhyggjur af því að ef einhver nákominn mér veikist þurfi sá hinn sami hugsamlega að liggja inni í tómum birgðaskáp á Landspítalanum vegna plássleys- is og tækjaskorts. Bæði heilbrigðis – og skólakerfið virðast orðin ein- hver brandari í augum þeirra sem stjórna hérna. Það eru borguð léleg laun, endalaus verkföll, skapandi greinar undir hnífnum en samt eru það listirnar sem hafa bjargað þjóð- inni og rifið hana upp úr andleysinu síðustu árin.“ Íslenska skinhelgin Magni tekur sér stutta málhvíld en heldur svo áfram: „Hvað er eiginlega mikilvægara af því sem íslenskt er en Björk, Of Monsters and Men, Airvaves og það allt sem Íslendingar hreykja sér af? Samt fá skapandi greinar engan stuðn- ing. Heldur fólk að listin sé sjálf- sprottin, að það þurfi ekkert að styðja við hana? Sumir sem ég þekki eru hársbreidd frá því að gef- ast upp á búsetu hérna. Það er ekki sjálfsagður hlutur að ætla sér að lifa á því að spila á hljóðfæri í dag svo ég nefni sérstaklega mína stétt til sögunnar. Það er alveg eins mik- ilvægt fyrir samfélög að borgaarnir læri tónlist eins og stærðfræði en áherslurnar eru ekki í neinum takti við þá staðreynd, verkfall tónlistar- kennara sýnir það.“ Okkur er orðið heitt í hamsi, sem er eðlilegt. Ísland er ónýtt var yfirskrift pistils sem hlotið hfur metdreifingu í netheimum síðustu daga. Auðvitað er Ísland samt ekkert ónýtt. Bara laskað. Vonandi hressist það. Fyllir upp í gat fyrir jólin Við tæmum kaffibollana og ég spyr hvort örli á jólaskapinu. Magni svarar að það muni bresta á með jólaskapi eigi síðar en 12-13. des- ember. Þeir Summi í Hvanndals- bræðrum hafi tekið eftir gati í jólatónleikahaldi hér fyrir norðan, engin, Frostrós, ekki neitt. „Okkur vinunum fannst við verða að bæta úr og ákváðum að telja í jólatón- leika í Hofi og skírðum þá Norður- ljósin. Við munum mest megnis not- ast við norðlenskt vinnuafl, annað hvort fólk sem býr hér eða bjó hér. Það verður Stúlknakór Akureyrar- kirkju, Óskar úr Skagafirði, Birgitta frá Húsavík, Pálmi Akureyringur og svo mamma Jól, Helga Möller. Helga er jólin og það verða þrennir tónleikar þessa helgi. Það verður að nota þetta hús,“ segir Magni og er rokinn að kenna krakka á hljóðfæri – í Tónræktinni. Það hlýtur að vera gaman að vera nemandi hjá rokk- stjörnunni. Hinni manneskjulegu rokkstjörnu sem hefur fest sig með hljómsveitarbílum á öllum heið- um landsins en kemst þó jafnan á áfangastað. Ef grannt er skoðað snýst lífið kannski einmitt um það. Að komast frá einum stað til annars og leita nýrra tækifæra. Stundum er nóg að horfa beint í augun á fólkinu sem manni er kærast til að finna þau tækifæri... VIÐTAL Björn Þorláksson MYNDIR Völundur Jónsson „Mér finnst Ísland eiginlega á hræðilegum stað núna.“

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.