Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.01.2011, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 27.01.2011, Blaðsíða 6
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 4. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR6 Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Blaðamaður: Sigurður Jónsson, sími 421 0004, siggi@vf.is Auglýsingadeild: Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is Útlit, umbrot og prenvistun: Víkurfréttir ehf. Auglýsingagerð: Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is og Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011 Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Upplag: 8500 eintök. Dreifing: Íslandspóstur Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is 141 776 UM HV ERFISMERKI PRENTGRIPUR Ritstjórnarpistill Víkurfrétta Páll Ketilsson, ritstjóri Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 2. febrúar. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is Agnes Garðarsdóttir, 51 árs. „Enginn bóndi hjá mér.“ Guðrún Rósa Guðmundsdóttir, 60 ára. „Gaf honum blóm og bauð honum út að borða.“ Guðbjört Ingólfsdóttir, 57 ára. „Gaf honum þorramat að borða.“ Kristín Jóna Hilmarsdóttir, 47 ára. „Gaf honum blómvönd og leyfði honum að grilla um kvöldið.“ Þórunn Þórarinsdóttir, 78 ára. „Gaf honum fallegan blómvönd.“ Spurning vikunnar // Hvað gerðir þú fyrir bóndann á bóndadaginn? siggi@vf.is Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17. Athugið að föstudaga er opið til kl. 15. Kristján Helgi Jóhanns-son er 31 árs slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá Brunavörnum Suðurnesja. Kristján starfaði um tíma sem pípulagningarmaður en hann er með sveinspróf í því fagi frá Iðnskólanum í Hafnarfirði. Hann á ekki margar einingar eftir til að klára stúdentinn en Kristján er alltaf á leiðinni að mennta sig meira. Fótboltinn hefur ávallt tekið mikið af hans frítíma en Krist- ján reyndi fyrir sér sem leik- maður hér á árum áður með þokkalegum árangri. Fæturnir voru á endanum orðnir eins og ríkisstjórnin er í dag, það var ekkert hægt að treysta á þá og nánast allt slitið sem slitn- að gat en núna ganga þeir á þrjóskunni einni saman, þó hægt sé. Kristján ákvað að trappa sig niður frá fótboltanum með því að fara í stjórn knattspyrnu- deildar Keflavíkur. „Þetta tek- ur bara helmingi meiri tíma frá mér en þegar ég var leik- maður,“ sagði Kristján. „En ég er einstaklega heppinn að eiga ofboðslega skilningsríka og yndislega eiginkonu, Írisi Sig- urðardóttur, sem styður mig í einu og öllu.“ Saman eiga þau þrjú börn, Söru Lind 8 ára, Jóhann Elí 3 ára og Ágúst Inga 3 mánaða. Hvað gerir þú í vinnunni? „Það er kannski einn af kost- um vinnunnar, maður veit aldrei í hverju maður getur lent. Vinnan er yfirleitt mjög fjölbreytt en við störfum bæði sem slökkviliðs- og sjúkra- flutningamenn en þó eru fastar rútínur sem við förum í gegnum. Til að mynda eftir- lit með bifreiðum og búnaði, mjög reglulegar æfingar og vettvangsferðir þar sem við skoðum fyrirtæki og stofnanir svo eitthvað sé nefnt“. Hvernig líkar þér við vinnuna þína? „Mér líkar mjög vel við vinn- una. Fjölbreytt, góðir vinnu- félagar og vaktakerfi sem mér líkar vel við, enn sem komið er. Væri samt til í að fá betr- umbætur á vinnuaðstöðunni okkar sem er orðin mjög döp- ur, vægt til orða tekið. Erum búnir að sýna mikla þol- inmæði hvað það varðar en hún er alveg á þrotum“. Er þetta gefandi starf? „Mjög gefandi starf. Við lend- um oft í aðstæðum sem krefjast þess að við getum unnið undir miklu andlegu og líkamlegu álagi og ef ég tala fyrir mína hönd hefur það lagt mikið inn í minn reynslubanka. Vinnan er þannig úr garði gerð að við hittum mikið af fólki og í lang- flestum tilvikum getum við aðstoðað eða veitt hjálparhönd sem er mjög gefandi“. starfið mitt - segir Kristján Helgi Jóhannsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður um starfið sitt Hvert er draumastarfið? „Stór spurning en afar lítið um svör. Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég er ekki búinn að mennta mig meira. Ég veit ekki enn hvað mig langar að gera en það kemur að því“. siggi@vf.is „Veit aldrei í hverju maður getur lent“ Stjórnlagaþing er miklu stærra mál en atvinnuleysið á Suðurnesjum Það er hreinlega grátlegt að horfa á ótrúlegar tölulegar staðreyndir varðandi álver í Helguvík á meðan allt er í strand í því máli. Á sama tíma berast fréttir af því að rúmlega helmingur fyr- irtækja á Suðurnesjum telji samkvæmt könn- un Creditinfo að þau muni lenda í alvarlegum vanskilum eða þroti á næstu tólf mánuðum. Forstjóri Norðuráls sagði á fundi í Stapa á fimmtudag að álver í Helguvík, myndi eins og álverið á Grundartanga, eiga veruleg viðskipti við um 300 fyrirtæki þegar allt færi í gang. Norðurál kaupir þjónustu af innlendum aðilum fyrir 10 milljarða á ári. Bara þessi viðskipti við fyrirtækin skapar um eitt þúsund störf. Aldrei höfum við Suðurnesjamenn heyrt forsætisráðherra standa upp á Alþingi, berja í borðið og segja að svona ástand væri ekki líðandi. Forsætisráðherra sem nú er við völd er meira í mun að bjarga Stjórnlagaþingi sem skapar engin störf í fram- tíðinni. Og þetta á að heita velferðarstjórn. Um 1600 manns ráfa um göturnar á Suðurnesjum án atvinnu á meðan þúsundir vel launaðra starfa bíða í Helguvík. Norðurál er tilbúð að fara á fulla ferð og öllum undirbúningi er lokið. Ríkisstjórnin segir að ekkert standi upp á hana en forstjóri Norðuráls sagði að annar ríkisstjórnarflokkurinn ynni mark- visst gegn verkefninu og að hluti hins flokksins fylgdi með. Fleiri þættir stoppuðu framgang þess og að hægt væri að ganga frá orkusölusamningi HS Orku og Norðuráls, m.a. að Magma málið væri í upplausn, virkjanaleyfi á Reykjanesi óafgreitt þrátt fyrir að hafa verið í vinnslu á annað ár, sífelldar rangfærslur að álverið útiloki önnur verkefni og fleira nefndi forstjórinn á fundinum. Í máli hans kom fram að framkvæmdir árlega í Helguvík myndu skila beint 7 milljörðum í ríkiskassann og að 20 milljarðar af 50 milljarða framkvæmdakostnaði væri inn- lendur. Nettó áhrif á hið opinbera eru áætluð um 12 milljarðar eða 1 milljarður á mánuði. Um 2 til 3 þús. manns fá atvinnu. Um tvö þúsund störf skapast til framtíðar þegar álver er fullbyggt. Á Suðurnesjum eru flestir af þeim um 1600 atvinnulausum iðnaðarmenn, ófaglært fólk eða ekki með háskólamenntun. Í álverinu munu störf fyrir báða þessa hópa skapast í hundruða vís og fá hærri laun en almennt gerist. Norðurál er með álver á Grundartanga og því er mark takandi á þessum tölum. Það væri ánægjulegt að sjá forsætisráðherra standa upp á Al- þingi, berja í borðið og segja að það sé ekki hægt að horfa á íbúa og fyrirtæki á vonarvöl á Suðurnesjum. Stjórnvöld verða að hætta að draga lappirnar í þessu stóra máli. Það er alvarlegt þegar forstjóri Norðuráls segir að annar ríkisstjórnarflokkur með stuðningi hins standi hreint og beint gegn byggingu álvers. Vonandi hefur hann rangt fyrir sér. Eftir uppákomuna á Alþingi í gær verður manni samt spurn: Er Stjórnlagaþing virkilega stærra mál en ófremdarástand á Suðurnesjum?

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.