Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.01.2011, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 27.01.2011, Blaðsíða 18
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 4. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR18 DVD MARKAÐUR DVD-mynda sölumarkaður Er að Baldursgötu 14 á móti Skyndibarnum. Opið alla daga frá 13.00 - 18.00 út janúar. Mikið magn titla, gott verð. Verið velkominn. VOT TAÐAR LÍFR ÆNAR HÚÐVÖRUR N Ý T T Í H E I L S U H Ú S I N U K E F L A V Í K L A V E R A H Ú Ð V Ö R U R 2 0 % K Y N N I N G A R A F S L Á T T U R Á N P A R A B E N O G A N N A R A A U K A E F N A S N Y R T I F R Æ Ð I N G U R V E R Ð U R Á S T A Ð N U M , F Ö S T U D A G I N N 2 8 . J A N Ú A R , K L . 1 4 -1 8 HRINGBRAUT 99 KEFLAVÍK Matreiðslumeistarar Lava, veitingastaðar Bláa lónsins höfðu umsjón með veitingum á viðburði Iceland Naturally sem fram fór í Scandinavian House í New York. Bleikja, lax, humar, lamb og skyr var á meðal þess sem beið gesta. Hátt í 250 gestir sóttu viðburðinn og var fjöldi blaða- manna á meðal þeirra. Tískusýning 66°North á 2011 línu fyrirtækisins var aðalatriði viðburðarins. Íslensk tíska, mat- ur og drykkir sem voru í höndum Reyka Vodka féllu í góðan jarðveg á meðal gesta viðburðarins. Viktor Örn Andrésson, yfirmatreiðslumeistari Lava, og Magnús Héðinsson yfirmaður veitingasviðs Bláa lónsins voru ánægðir með viðburðinn og viðbrögð gesta við íslenskum mat. „Það var mjög ánægjulegt að finna hversu mikinn áhuga gestir höfðu á matnum sem við bárum fram þetta kvöld. Ferskleiki og hrein- leiki er einkennandi fyrir íslenskt sjávarfang og gestirnir kunnu vel að meta gæði matarins,“ sagði Viktor. Matreiðslumeistarar Lava í New York Viktor Örn Andrésson, yfirmatreiðslumeistari Lava, veitingastaðar Bláa lónsins. UppáHaLdS... Kvikmynd: Inception. Sjónvarpsþættir: How I Met Your Mother. Hljómsveit: Muse. Skemmtistaður: Coco-Bongo í Mexíkó. Vefsíða: www.surfthechannel.com en þar getur maður horft á sjónvarpsþætti frítt. Staður: London í Englandi. Drykkur: Pinacolada Skyndibiti: Of dannaður fyrir skyndibita. Lið í enska boltanum: Liverpool, því miður. Fag í skólanum: Stærðfræði. Kennari: Gunnlaugur Sigurðsson stærðfræðikennari. Hann er mjög ástfanginn af sínu fagi. SpURNINgaR… Hvert er framtíðarstarfið? Vonandi verð ég læknir en það er alla vega stefnan og þá lýtalæknir. Hvor er betri í fótbolta, Messi eða Ronaldo? Lionel Messi því hann er ekki svona mik- il Hollywood-stjarna eins og Ronaldo. Hvaða fimm vefsíður skoðar þú mest (fyrir utan facebook)? Mbl.is, visir.is, pressan.is, surfthec- hannel.com og fotbolti.net. Hvert var áramótaheitið í ár? Ég set mér ekki áramótaheit. Þetta er of mikil hjátrú að mínu mati þó þetta sé bara markmið fólks þá stend- ur aðeins brot af því við það. Borðar þú þorramat? Nei, eiginlega ekki. Alla vega ekki súrsaðan mat. Annars borða ég harðfisk, sviðasultu og þessháttar. Hvað gerir formaður MORFÍs? Hann heldur utan um keppnina, tímaramma, dagsetningu fyrir úrslitakeppnina og að allt fari eftir lögum keppninnar. Þetta starf er hrikalega skemmtilegt og ekk- ert erfitt né tímafrekt. En þegar koma upp deilumál eins og um daginn þegar MH og FVA voru að deila um hvaða dag þeir ættu að keppa, þá drógum við um dagsetn- ingu sem varð óvart aðfangadagur svo við þurftum að fresta keppninni. FS-ingur vikunnar er... Bjarki Brynjólfsson Bjarki Brynjólfsson er FS-ingur vikunnar að þessu sinni en hann tekur virkan þátt í félagslífi skólans og er metnaðarfullur námsmaður. Bjarki er 18 ára og stundar nám á náttúrufræðibraut. Hann vinnur einnig með skóla hjá föður sínum við þrif á Verkfræðistofu Suðurnesja en hefur lítinn sem engan tíma til að stunda íþróttir. „Er einfaldlega of svalur fyrir þær,“ sagði Bjarki. Bjarki tók útskriftarferðina einni önn á undan útskrift- inni en hún var til Mexíkó og er hann nýkominn heim. Einnig er Bjarki formaður MORFÍs ræðukeppninnar sem er stór hluti af félagslífi menntaskóla á Íslandi. Skyggnilýsingarfundur Þórhallur Guðmundsson miðill verður með opinn miðilsfund sunnudaginn 30. janúar kl. 20:30 í húsi félagsins að Víkurbraut 13 í Keflavík. Húsið opnar kl. 20:00. Aðgangseyrir kr. 1500,- Allir velkomnir. Stjórnin. FRÉTTAVAKT VÍKURFRÉTTA ER ALLAN SÓLARHRINGINN Í SÍMA 898 2222

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.