Víkurfréttir - 27.01.2011, Blaðsíða 7
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í YFIR ÞRJÁ ÁRATUGI! 7VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 27. JANÚAR 2011
Hjá Isavia ohf. starfa um 600 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru að sjá um rekstur
flugstöðva, uppbyggingu og rekstur flugvalla og veita flugleiðsöguþjónustu fyrir
innanlands- og millilandaflug auk yfirflugþjónustu yfir Norður-Atlantshafið. Isavia ohf.
leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna.
Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna
Umsóknum skal skilað rafrænt inn á heimasíðu Isavia www.isavia.is fyrir fimmtudaginn 17. febrúar.
Upplýsingar um störfin veitir Sóley Ragnarsdóttir, soley.ragnarsdottir@isavia.is, starfsmannaþjónusta.
Slökkvilið
Starfið felst í almennum slökkviliðsstörfum á Keflavíkurflugvelli og á Reykjavíkurflugvelli. Um er að
ræða vaktavinnu. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf upp úr miðjum maí og starfa út september-
mánuð.
Hæfniskröfur:
• Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigður, reglusamur og háttvís, hafa góða
sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldinn lofthræðslu eða innilokunarkennd
• Iðnmenntun sem nýtist í starfi eða sambærilega menntun og reynslu
• Æskilegt að hafi lokið 80 stunda fornámi fyrir slökkviliðsmenn
• Æskilegt að hafa aukin ökuréttindi
• Hafa hreint sakavottorð
Upplýsingar um störfin veitir Ólafur Ásmundsson slökkviliðsstjóri, olafur.asmundsson@isavia.is.
Flugvernd
Starfið felst í vopna- og öryggisleit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og við eftirlit á flughlöðum á Kefla-
víkurflugvelli. Óskað er eftir starfsfólki bæði í hluta- og heilsdagsstörf en um er að ræða vaktavinnu.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fyrir 1. júní og nýir umsækjendur þurfa að geta sótt 8 daga
námskeið áður en þeir hefja störf.
Hæfniskröfur:
• Góð þjónustulund
• Nákvæm og öguð vinnubrögð
• Hafa gott vald á íslenskri og enskri tungu
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Hafa góða sjón og rétta litaskynjun
• Hafa hreint sakavottorð
• Heiðarleiki
• Aldurstakmark 20 ár
Spennandi störf í
alþjóðlegu umhverfi
Isavia ohf. óskar eftir að ráða öfluga einstaklinga
í sumarstörf í slökkvilið og flugvernd