Víkurfréttir - 27.01.2011, Blaðsíða 8
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 4. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR8
Fjárhagsleg endurskipulagning
Í framhaldi af samkomulagi stjórnvalda, atvinnulífsins og fjármálafyrirtækja
getur opnast ný leið fyrir fyrirtæki þitt. Ráðmennt ehf. aðstoðar fyrirtæki
sem þarfnast fjárhagslegrar endurskipulagningar eða viðsnúnings í
rekstri meðal annars við:
• Stöðumat, þar sem farið er yfir rekstur og stöðu félagsins
og mat á eignum.
• Gerð rekstraráætlunar fyrir áframhaldandi rekstur félagsins.
RekstuR, sjóðstReymi, efnahaguR til næstu 3–5 áRa.
Mikilvægt er að slíkar áætlanir séu vel rökstuddar,
áreiðanlegar og vel gerðar.
• Samantekt á skuldum og veðsetningu eigna félagsins
ásamt mati á möguleikum á að standa undir núverandi
skuldbindingum.
• Verðmat á rekstrarvirði félagsins.
• Gerð aðgerðaáætlunar um skuldaaðlögun og viðsnúning
rekstrar, þar sem unnið er með fjármálastofnunum og öðrum
aðilum sem kunna að eiga aðild að skuldaaðlöguninni.
• Þátttöku í fundum með hagsmunaðilum sem kunna að tengjast
skuldaaðlöguninni og undibúning þeirra.
Bókhaldsþjónusta, ráðgjöf og uppgjör
Markhópur Ráðmenntar ehf. er minni og meðalstórir rekstraraðilar,
verktakar og einyrkjar. Ráðmennt veitiR peRsónulega og tRausta
þjónustu.
Þjónusta
• Bókhald
• Laun og tengd mál
• Skattskil og
ársreikningagerð
markmið
• Framúrskarandi þjónusta
• Fullkominn trúnaður
• Gagnkvæm virðing
• Að standast tímasetningar
BókhaldsÞjónusta fyrir rekstraraðila
• FRAMTALSGERÐ
• SKATTARÁÐGJÖF
• REKSTRARRÁÐGJÖF
ávinninguR þinn á að veRa meiRi en kostnaðuRinn við að ná honum
góðuR unDiRBÚninguR, vÖnDuð vinna og heiðaRleiki eR nauðsynleguR til að skulDaaðlÖgun sÉ fæR leið
Flugvallarbraut 752 • 235 Reykjanesbær • Sími: 533 1963 • GSM: 864 1963
Lítil Sandgerðismey var heldur betur að flýta
sér í heiminn snemma á
þriðjudagsmorgun. Móð-
irin, Ólöf Guðbjörg Jóns-
dóttir, var rétt komin inn
um útidyrnar á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja þegar
barnið kom í heiminn.
Barnsfaðirinn, Helgi Ár-
mannsson, hafði skutlað
henni upp að dyrum við HSS
og spurt hvort hann ætti að
koma með henni inn. Ólöf
sagði honum hins vegar
að fara og leggja bílnum.
Matthildur Birgisdóttir,
starfsmaður í afgreiðslu
Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja, stóð vaktina á sím-
anum hjá HSS þessa nótt
og sá um að opna útidyrnar
fyrir Ólöfu en stofnunin er
ávallt læst á nóttinni. Sem
betur fer sá Matthildur þegar
Ólöf kom og gat því opnað
strax. Annars hefði barnið
komið í heiminn úti á stétt.
Matthildur segir það sem
gerðist vera sannkallað krafta-
verk. Hún sé þó ennþá að átta
sig á því sem gerðist, enda
atburðarásin hröð. Hún hafi
rétt náð að hringja upp á fæð-
ingardeild eftir ljósmóður og
þá hafi barnið verið komið í
heiminn á gólfinu í afgreiðslu
HSS. Ljósmóðirin hafi hins
vegar verið snögg á staðinn
og allt hafi farið á besta veg.
Litla stúlkan hafi hins vegar
verið fljótari í förum og hrein-
lega rann út áreynslulaust að
sögn móðurinnar. Litla prins-
essan er annað barn þeirra
Ólafar og Helga en fyrir eiga
þau tveggja ára stúlku sem
er búin að koma í heimsókn
tvisvar sinnum að skoða litlu
systur sína þegar Víkurfréttir
heimsóttu hamingjusama
fjölskyldu á fæðingardeild-
ina. Þar var einnig Matthildur
úr afgreiðslunni sem tók á
móti Ólöfu og barninu fyrr
um morguninn og fékk að
halda á nýfæddu stúlkunni
sem var 3970 grömm við
fæðingu og 53 sentimetrar.
Faðirinn, Helgi Ármanns-
son, var pollrólegur þessa
nótt og var að leggja bílnum
á bílastæðinu við HSS á með-
an Ólöf var að fæða barnið
í afgreiðslunni. Honum var
vitanlega brugðið þegar hann
kom inn í afgreiðsluna og sá
að barnið var komið í heim-
inn. Hann átti frekar von á
því að Ólöf væri komin upp
á fæðingardeild og meiri
rólegheit yrðu yfir fæðing-
unni. „Þegar ég kom á staðinn
var bara allt búið,“ sagði Helgi
í samtali við Víkurfréttir.
hilmar@vf.is
Fæddi barnið á gólFinu
í aFgreiðslu Hss
„Hún bara rann út“
Afgreiðsla Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja þar sem barnið fædd-
ist á gólfinu að eldsnemma að morgni þriðjudags.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi
- Sjá einnig video á vf.is