Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.01.2011, Page 12

Víkurfréttir - 27.01.2011, Page 12
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 4. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR12 Álverið í Helguvík hefur verið eitt heitasta um- ræðuefnið á Suðurnesjum síðustu vikurnar og síðustu mánuði og hvort það verði álver á annað borð. Álverið gæti skilað 2000-3000 manns vinnu og nettó áhrif á hið opinbera er áætlað um 12 milljarða króna á ári eða um 1 milljarður króna á mán- uði. Þetta eru verulega stórar upphæðir og fjölda mörg störf en þau eru líka fjöl- breytt. Þarna myndu starfa stjórnendur og sérfræðingar, iðnaðarmenn, almennir starfsmenn í framleiðslu, þjónustufólk og verktakar í fastri vinnu en um 600 starfsmenn vinna í þessum störfum í álverinu á Grund- artanga. Víkur-fréttir náðu tali á Ragnari Guðmunds- syni, forstjóra Norður- áls, eftir atvinnufundinn í Stapanum í vikunni. Hvað þarf til þess að Norður- ál og HS Orka nái saman? „Miðað við þá samninga sem við gerðum 2007 þá eru ákveðin skilyrði sem þarf að uppfylla í þeim og eitt af því er virkjanaleyfi. Til dæmis sem þarf að klára fyrir stækkun á Reykjanesvirkjun og svo auðvitað að vinna með sveitarfélögunum og til þess bærum aðilum í frekari leyfum og skipulagi, þ.e.a.s. í Eldvörpum og Krísuvík. Það þarf sömuleiðis að eyða óvissu varðandi eignarhald á HS Orku, hvort Magma Energy fær að eiga fyrirtækið eða hvort menn ætli að semja við Magma um að taka það yfir eða jafnvel að taka það eign- arnámi. Það þarf auðvitað að fá niðurstöðu í það mál allra fyrst því það verður erfitt að ganga frá samningum um að koma af stað verkefni þegar ekki er vitað hvert stefnir í þeim málum. Sömuleiðis leggjum við áherslu á að endurskoðun raforkulaga verði lokið þannig að það sé ljóst hver flutningskostnaður er fyrir flutning á raforku fyrir stóriðju en það þarf að hafa á hreinu hver kostn- aðurinn er í raun og veru.“ Það hefur verið bent á það að þetta séu samningar á milli einkafyrirtækja en það kom nú skýrt fram á þessum fundi að það stefndi eitthvað upp á ríkið. „Einkafyrirtæki hafa vald yfir tilteknum þáttum en starfa í því umhverfi sem er skapað af stjórnvöldum á hverjum tíma. Þetta er samstarfsverk- efni á milli fyrirtækjanna og stjórnvalda, þá bæði við rík- isstjórnina og sveitarfélögin að koma þessum verkefnum á koppinn en til þess þurfa allir að taka í árarnar.“ Nú er spurt að því vikulega hérna á Suðurnesjum hvað sé að gerast í Helguvík. „Það er auðvitað ekki mik- ið að gerast þarna eins og er því eftir hrunið 2008 þá drógum við verulega úr fram- HS Orka er með tvær framkvæmdaáætlanir fyrir árið 2011. Þetta kom fram í máli Ásgeirs Margeirs- sonar, stjórnarformanns HS Orku, á atvinnumálafundi Samtaka atvinnulífsins í Stapa í gær. Framkvæmda- áætlunin sem gildir þar til annað er ákveðið gerir í raun ráð fyrir lágmarks fram- kvæmdum sem nauðsynlegar eru til að viðhalda núverandi rekstri. Áætlunin gerir ráð fyrir fjárfestingum upp á 353 milljónir króna. Stærsta einstaka fjárfesting HS Orku á þessu ári er vegna niðurdælingar og fleiri þátta í Svartsengi en áætlaðar eru 194 milljónir króna í það verk. Vegna verkefna á Reykjanesi verður varið 34 milljónum og 60 milljónir króna fara í undir- búning nýrra virkjana. Vegna rannsókna við Búlandsvirkjun fara 30 milljónir og 37 millj- ónir vegna annarra verka. Hin framkvæmdaáætlun HS Orku byggir á þeirri forsendu að framkvæmdir við nýjar virkjanir geti hafist. Ásgeir sagði að vegna óvissu væri erf- itt að tímasetja þessar fram- kvæmdir eða áætla hvernig kostnaður skiptist á milli tíma- bila eða ára. Hann sagði að til að verkefni gætu hafist þurfi ýmis atriði að vera í lagi. Virkjunarleyfi þarf að fást Þar nefnir hann að virkjunar- leyfi þurfi að fást á Reykjanesi. Miðað við drög sem nú liggja fyrir verði verkefnið bæði mun kostnaðarsamara og tímafrek- ara en gert var ráð fyrir. Þá þurfi að ganga frá sölusamningum fyrir orkuna frá virkjuninni með þeim hætti að mögulegt sé að fjármagna verkefnið. Ásgeir sagði að ganga þurfi frá breytingum á aðal- og deili- skipulagi í Eldvörpum svo unnt sé að hefja rannsóknarboranir Fjárfestar skoða að kaupa sér tryggingar fyrir pólitískum upphlaupum á Íslandi Atvinnumál á Suðurnesjum HeFUR FUlla tRú á HelgUvÍk 4 Ragnar Guðmundsson forstjóri Norðuráls í viðtali við Víkurfréttir þar. Þar þurfi einnig að tryggja samstarf sveitarfélagsins. Hann sagði að í Krýsuvík sé leyfi til borunar á fyrstu þremur hol- unum frá einum borteig en heildarmynd vanti á skipulag og sömuleiðis staðfestingu á vilja sveitarfélagsins sem er eigandi lands og auðlindar í Seltúni og Hveradölum um nýtingu auðlindarinnar. Versnandi orð- spor Íslands Í máli Ásgeirs Margeirssonar kom fram að orðspor Íslands meðal erlendra fjárfesta færi versnandi vegna pólitískra óvissu og umræðu um þjóð- nýtingu fyrirtækja. Nú væri svo komið að menn væru farnir að hugsa um að kaupa sér tryggingar fyrir pólitískum upphlaupum líkt og tíðkast í ríkjum þar sem stjórnarfar er óstöðugt og leikreglur í við- skiptum óskýrar. Hvað kostar að stækka virkjanir? Í kynningu Ásgeirs stórnarfor- manns HS Orku kom fram að stækkun Reykjanesvirkjunar um 50 MW hefur verið áætluð kosta um 14,6 milljarða króna og af því hafa 4,6 milljarðar verið greiddir. HS Orka áætl- ar að þessi kostnaðaráætlun geti hækkað um 15-20 prósent miðað við fyrirliggjandi drög að virkjunarleyfi. HS Orka fyrirhugar einnig aðra 30 MW stækkun á Reykjanes- virkjun sem er áætluð kosta um 8 milljarða króna. Þar á að vinna raforkuna úr jarðsjón- um sem nú fellur til sjávar um stokk frá Reykjanesvirkjun. Fyrri stækkun Reykjanesvirkj- unar er tilbúin til útboðs og gæti því að uppfylltum skilyrð- um um virkjunarleyfi, orku- sölusamninga og fjármögnun hafist fljótlega. Framkvæmdin er áætluð taka um tvö ár. Kostnaður yrði ekki mjög mikill fyrstu 6 mán- uðina eftir að byrjað væri en myndi dreifast nokkuð jafnt eftir það. Innlendur kostn- aður er almennt talinn um 60 prósent heildarkostnaðar en er hærri við að ljúka þessari framkvæmd þar sem túrbína og gufuþéttir eru þegar komin og nánast að fullu greidd. Á fundinum ítrekaði Ásgeri jafnframt að orkulindirnar sem HS orka nýtir eru ekki í eigu einkaaðila heldur sveitar- félaga á Suðurnesjum sem hafi tryggt sér góðar tekjur af þeim næstu 65 árin. Ef ríkið ætli sér að þjóðnýta þær verði það að ræða við sveitarfélögin um hvort þau séu til í að stytta nýt- ingartímann. hilmar@vf.is 4 Ásgeir Margeirsson stjórnarformaður HS Orku SJÁ EINNIG VIÐTAL VIÐ ÁSGEIR MARGEIRSSON Í SJÓNVARPI VÍKURFRÉTTA Á VF.IS Gunnar Ellert Geirsson frá Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi spurði hvað heimamenn gætu gert til að styðja við góð verkefni. Svarið var, að hafa hátt!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.