Víkurfréttir - 27.01.2011, Qupperneq 20
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 4. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR20
4 Dan Coaten vinnur að framleiðslu á húðverndarvörum og tei
Í fyrr verandi skotfæra-geymslu uppi á Ásbrú, þar
sem úti geisar norðangarri
og vindur, vinnur breskur
jurtalæknir að framleiðslu á
húðverndunarvörum og te
á meðan börn og unglingar
dansa ballett, jazzballet og
aðra skemmtilega dansa hin-
um megin í húsinu.
Dan Coaten lærði phytot-
herapy, eða jurtalækningar, í
heimalandi sínu. Í jurtalækn-
inganáminu var lítið jurta-
apótek hluti af skólanum og
þar lærðu nemarnir um ýmis
krem og aðrar vörur. Eftir að
námi lauk fékk Dan meiri og
meiri áhuga á því að fram-
leiða ýmsar vörur, auk þess
sem hann fór í nám í notkun
ilmkjarnaolía. Í dag hefur Dan
haldið fjölda fyrirlestra og
vinnustofa um jurtalækning-
ar og ilmkjarnaolíur, auk þess
að hafa gefið út bókina “Make
Your Own Essential Oils and
Skin-Care Products”.
En hvað dregur breskan jurta-
lækni til Íslands? Jú, það er
klassíska sagan - ástin. Unn-
usta Dan er Bryndís Einars-
dóttir, Njarðvíkingur og dans-
ari með meiru, sem rekur Bryn
Ballett Akademíuna í hinum
hluta hússins.
Það var samt ekki Bryndís
sem dró Dan til Íslands, held-
ur einmitt öfugt. Bryndís var
farin að tala um að flytja til
Frakklands, gera upp sveita-
setur og setja upp listdansskóla
þar. Dan hafði komið hingað
með Bryndísi nokkrum sinn-
um og varð ástfanginn af orku
Íslands, eldvirkninni, hreina
loftinu og vatninu og ýtti við
Bryndísi að koma heim. Ísland
var alveg í takt við það sem
Dan vildi gera og vildi að vör-
urnar stæðu fyrir. Eins og Dan
lýsir þessu “Ísland er eins og
stórt eimunarkerfi, með ísinn
efst og eldvirknina undir”. Þau
fluttu heim sumarið fyrir hrun
- en Dan sér ekki eftir því að
hafa komið.
Starfsemin hjá Dan skiptist í
tvo hluta. Annars vegar eru það
húðverndunarvörurnar, sem
seldar eru undir vörumerk-
inu Alkemistinn, en alkemisti
þýðir gullgerðarmaður. Undir
merkinu Grasakver er svo
boðið upp á jurtate. Frekari
vörur eru í pípunum, svo sem
jurtabragðefni og þurrkaðar
jurtir til matargerðar. Sérstaða
allra þessara vara liggur í því
að þær eru allar lífrænt vott-
aðar og er hreinleiki varanna
Dan mjög mikilvægur.
Dan hafði nokkra reynslu af
því að reka jurtalækningastofu
sína í Bretlandi, þó að ýms-
legt sé öðruvísi í núverandi
starfsemi. En finnur hann
fyrir miklum mun að stunda
viðskipti á Íslandi miðað við
Bretland? Dan svarar því ját-
andi: “Það er allt opnað þeg-
ar það kemur inn í landið [í
tollinum, innsk. blaðamanns].
Mér fannst það mjög skrýt-
ið til að byrja með, ekki bara
frá viðskiptalegu sjónarmiði,
heldur líka bara persónulega.
Og skattarnir eru háir”. Dan
er þó á því að gott sé að byggja
upp fyrirtæki á Íslandi og tel-
ur mikla möguleika fyrir fyr-
irtæki á Ásbrú og svæðið gott
til uppbyggingar viðskipta og
tengslamyndunar.
Í dag geta Suðurnesjamenn
nálgast vörur Alkemistans og
Grasakvers í dansverslun Bryn
Ballett Akademíunnar. Al-
kemistinn var kynntur í þætti
Karls Berndsen, Nýtt útlit, og
vörurnar fást í verslun Karls,
Beauty Bar en vörur Grasak-
vers í Yggdrasil og Búrinu.
Herrafataverslun Kormáks og
Skjaldar selur húðvörulínu Al-
kemistans sem ætluð er körl-
um. Það er klárlega nokkuð
einstakt að vera með lífræna
húðvörulínu ætlaða körlum og
segir Dan viðtökurnar þar hafa
verið mjög góðar, sérstaklega
þegar hann kynnti vörurnar
þar fyrir jólin.
Framtíðarplönin gera ráð fyrir
mun fleiri sölustöðum og að
fara með vörurnar á erlend-
an markað. Það er nú þegar
áhugi frá aðilum í Japan, Ísrael
og Bandaríkjunum. Dan er
einnig í viðræðum við fleiri
heilsuverslanir og stærri versl-
anakeðjur hérlendis. Það er
því ljóst að við eigum eftir að
sjá meira frá Alkemistanum og
Grasakveri í framtíðinni.
Hvað vill Dan segja við þá sem
hafa hugsað um að fara út í við-
skipti og rekstur? “Þú þarft að
hafa góða áætlun. Aðalatriðið
er að hafa ástríðu fyrir því sem
þú ert að gera, eiga drauminn,
og láta svo bara verða af því.
Það er alltaf hægt að fá aðstoð
frá ýmsum aðilum varðandi
áætlanir og annað þess háttar.
Svo lengi sem þetta er eitthvað
sem þig virkilega langar að
gera, þá er alveg sama hversu
erfitt þetta verður, þú heldur
alltaf áfram”.
Gullgerðarmaður
í skotfærageymslu
RISAÞORRABlÓT
Í GARÐINUM!
Starfsemin hjá Dan skipt-
ist í tvo hluta. Annars vegar
eru það húðverndunarvör-
urnar, sem seldar eru undir
vörumerkinu Alkemistinn,
en alkemisti þýðir gullgerð-
armaður.