Víkurfréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 14
14 Fimmtudagurinn 26. maí 2011VÍKURFRÉTTIR
UMSJÓNARMAÐUR
HEIÐARSKÓLA
Heiðarskóli óskar eftir að ráða umsjónarmann til
starfa frá 1. ágúst nk. Umsjónarmaður hefur m.a.
yfirumsjón og eftirlit með mannvirkjum skólans,
umsjón með öllum tækjum og tæknilegum búnaði
og gerir tillögur og/eða áætlanir um viðhald og
breytingar. Hann hefur og eftirlit með ræstingum og
þrifum húsnæðisins. Þá sér umsjónarmaður um
margskonar útréttingar og innkaup fyrir skólann.
Umsækjandi þarf að búa yfir þekkingu á viðhaldi húsa
og tækja, stundvísi, frumkvæði og snyrtimennsku.
Vera jákvæður og góður í mannlegum samskiptum.
Iðnmenntun er æskileg. Næsti yfirmaður umsjónar-
manns er skólastjóri.
Umsóknir skulu berast starfsmannaþjónustu,
Tjarnargötu 12, eða í gegnum mittreykjanes.is.
Umsóknarfrestur er til 9. júní n.k.
Starfsþróunarstjóri.
VINNUSKÓLINN
AUGLÝSIR
Vinnuskóli Reykjanesbæjar býður eldri borgurum og
öryrkjum upp á sláttuþjónustu sumarið 2011.
GJALD FYRIR HVERJA UMFERÐ ER 3000 kr.
Öryrkjar skrái sig hjá Þjónustumiðstöð Fitjabraut 1c
gegn framvísun örorkuskírteinis.
Skráning fyrir eldri borgara í síma 420-3200
MENNINGARDAG-
SKRÁ FYRIR BÖRN
Þorgrímur Þráinsson mun lesa upp úr bók sinni
Ertu Guð, afi? á Bókasafni Reykjanesbæjar
fimmtudaginn 26. maí kl. 17:00.
Auk þess verða veitt þátttökuverðlaun í
Bókaverðlaunum barnanna 2011 og sumarlestur
Bókasafnsins kynntur.
Allir velkomnir.
STAÐARVITUND -
STAÐARÍMYND
Málþing um menningu verður haldið í Bíóasal
Duushúsa laugardaginn 28. maí nk. kl. 11.00-15.00.
Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.
Rjúkandi heitt kaffi á könnunni og samlokur í
hádegishléi. Suðurnesjamenn eru hvattir til að mæta
og taka virkan þátt í framgangi menningar- og
menningarferðaþjónustu á Suðurnesjum.
Menningarfulltrúar á Suðurnesjum og
verkefnastjóri hjá SSS
Skólaslit vorannar og braut-skráning Fjölbrautaskóla
Suðurnesja fór fram laugardag-
inn 21. maí. Að þessu sinni út-
skrifuðust 64 nemendur; 47
stúdentar, 8 sjúkraliðar, 6 braut-
skráðust af starfsbraut, 5 úr
verknámi, tveir luku starfsnámi
og einn meistaranámi. Auk þess
luku þrír skiptinemar námi sínu
í skólanum. Nokkrir nemendur
brautskráðust af tveimur náms-
brautum. Konur voru 38 og karlar
26. Alls komu 39 úr Reykjanesbæ,
10 úr Grindavík, 5 úr Sandgerði
og Garði og tveir úr Vogum. Einn
kom frá Hellissandi, Ólafsvík og
Vopnafirði.
Dagskráin var með hefðbundnu
sniði. Kristján Ásmundsson skóla-
meistari afhenti prófskírteini og
flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir
aðstoðarskólameistari flutti yfirlit
yfir störf annarinnar. Andri Þór
Ólafsson nýstúdent flutti ávarp fyrir
hönd brautskráðra og Hanna María
Kristjánsdóttir kennslustjóri flutti
útskriftarnemendum kveðjuræðu
starfsfólks. Nýstúdentarnir Bjarki
Brynjólfsson, Finnbjörn Benónýs-
son og Guðbjörg Guðmundsdóttir
fluttu tónlist við athöfnina ásamt
Högna Þorsteinssyni, kennara við
Tónlistarskóla Reykjanebæjar.
Við at höf nina vor u ve it t ar
v iðurkenningar f yr ir góðan
námsárangur. Andri Þór Ólafs-
son, Bergur Theódórsson, Bjarki
Rúnarsson, Ósk Jóhannesdóttir
og Þröstur Leó Jóhannsson fengu
viðurkenningu fyrir störf sín í þágu
nemenda skólans. Bjarni Valur
Agnarsson fékk verðlaun fyrir
góðan námsárangur á starfsbraut
og Helga Steindórsdóttir, Magnús
Einarsson Smith og Telma Ýr Sig-
urðardóttir fengu viðurkenningu
fyrir góðan árangur í vinnustað-
anámi á sjúkraliðabraut. Arnþór
Sigurðsson og Stefán Már Jónas-
son fengu gjöf frá Vélstjórafélagi
Suðurnesja fyrir góðan árangur í
vélstjórnargreinum. Þær Guðbjörg
Guðmundsdóttir og Rakel Eva Æv-
arsdóttir fengu viðurkenningu fyrir
árangur í fata- og textílgreinum og
Íris Rut Jónsdóttir fyrir bókfærslu.
Mary Sicat fékk gjöf frá Háskól-
anum í Reykjavík fyrir framúrskar-
andi árangur í raungreinum og
hún fékk einnig viðurkenningar
fyrir árangur sinn í frönsku og
efnafræði. Bjarki Brynjólfsson fékk
verðlaun frá Íslenska stærðfræða-
félaginu og Verkfræðistofu Suður-
nesja fyrir góðan árangur í stærð-
fræði. Hann fékk einnig verðlaun
frá skólanum fyrir frönsku, stærð-
fræði og efnafræði. Bjarki fékk
einnig viðurkenningu fyrir störf
í þágu nemenda og verðlaun frá
danska sendiráðinu fyrir árangur
sinn í dönsku. Þá fengu skiptinem-
arnir Anna Saeki, Eva Vandyck og
Loic Worbe gjöf til minningar um
veru sína í skólanum og á Íslandi.
Um árabil hefur Sparisjóðurinn
í Keflavík veitt nemendum skól-
ans viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur og hefur Lands-
bankinn nú tekið við keflinu. Það
var Einar Hannesson útibússtjóri
sem afhenti viðurkenningarnar
fyrir hönd Landsbankans. Að þessu
sinni hlaut Bjarki Brynjólfsson
viðurkenningar fyrir góðan árangur
í tungumálum og fyrir árangur
sinn í stærðfræði og raungreinum.
Bjarki hlaut einnig viðurkenningu
fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi
og fékk að launum 100.000 kr. styrk
frá Landsbankanum.
Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti
við athöfnina styrki úr styrktar-
sjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Sjóðurinn var stofnaður af Kaup-
félagi Suðurnesja og Gunnari
Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélags-
stjóra og fyrsta formanni skóla-
nefndar Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Tilgangur sjóðsins er að efla
og auka veg skólans með því að
styrkja nemendur skólans til náms,
að styðja við starfsemi sem eflir
og styrkir félagsþroska nemenda
og að veita útskriftarnemendum
viðurkenningar fyrir frábæran
árangur í námi og starfi. Þau
Guðbjörg Jóhannesdóttir, Hanna
Kristrún Jónsdóttir, Lárus Konráð
Jóhannsson og Sóley Bjarnadóttir
fengu öll 20.000 kr. styrk fyrir góða
frammistöðu í ræðumennsku og
góðan árangur í lífsleikni. Sabína
Sif Sævarsdóttir fékk 30.000 kr.
styrk fyrir góðan árangur í söng-
keppni framhaldsskólanna. Þá fékk
nemendafélag skólans 100.000 kr.
sem viðurkenningu fyrir öflugt og
fjölbreytt félagslíf.
Foreldrafélag var stofnað við skól-
ann síðastliðinn vetur. Við útskrift-
ina afhenti félagið nemendafélagi
skólans grill að verðmæti 166.000
til að nota á sal skólans.
Við lok athafnarinnar veitti skóla-
meistari Axel Gísla Sigurbjörnssyni
gullmerki FS en hann hefur starfað
við skólann í 25 ár. Það hefur
Kristján Ásmundsson skólameist-
ari einnig gert og sæmdi Guðlaug
Pálsdóttir aðstoðarskólameistari
hann einnig gullmerki skólans.
Að lokum sleit Kristján Ásmunds-
son skólameistari vorönn 2011.
64 útskrifast – 47 stúdentar
›› Vorönn Fjölbrautaskóla Suðurnesja 2011:
Þau hlutu verðlaun og viðurkenningar við útskriftina á laugardaginn. VF-myndir: Oddgeir Karlsson