Víkurfréttir - 26.05.2011, Síða 19
Fimmtudagurinn 26. maí 2011 VÍKURFRÉTTIR 19
›› Sjóarinn síkáti haldinn í Grindavík 3.-5. júní nk.:
›› Nám er vinnandi vegur:
Fisktækniskóli Suðurnesja
Starfstengt nám á framhaldsskólastigi
Innritun á haustönn 2011
Námsbrautir í boði:
Fiskvinnslubraut
Sjómennska
Sjókokkur/matsveinanám
Netagerðarnám
Nánari upplýsingar í síma 4125940 / 4125968 og á
netföng nannabara@mss.is / olijon@fss.is og larus@fss.is
Einnig á heimasíðu skólans á facebook.com
.
Fisktækniskóli Suðurnesja, Víkurbraut 56, 240 Grindavík
svíkur eingan og gerir allt vitlaust
„Skelltu nú gömlu í gammósíurnar
og bjódd’enni á alvöru ball“
SJÓMAN
NADAGS
BALL
Hafnargötu 19 • 421 4601 • www.rain.is • rain@rain.is
Aðgangseyrir 30 silfurpeningar eða
aðeins um 1.500 krónur á núvirði.
Námskynningin Nám er vinn-andi vegur – Skólinn opnar
dyr var haldin í Stapa miðviku-
daginn 18. maí. Kynningin var
liður í átakinu Nám er vinnandi
vegur sem samþykkt var af ríkis-
stjórninni 19. apríl sl. Í því felst
að öllum umsækjendum um nám
í framhaldsskóla að 25 ára aldri,
sem uppfylla skilyrði, verður
tryggð skólavist í haust. Einnig
verða sköpuð ný námstækifæri
fyrir allt að 1.000 atvinnuleit-
endur á öllum aldri haustið 2011
og næstu tvö skólaár þar á eftir.
Fyrstu önnina gefst atvinnuleit-
endum kostur á að stunda nám án
þess að greiða skólagjöld og halda
atvinnuleysisbótum svo auðveld-
ara reynist að fara úr atvinnuleysi
í nám. Nám er í raun framtíðar-
fjárfesting sem hver og einn tekur
í sjálfum sér og skapar það mikil
tækifæri fyrir viðkomandi.
Alls tóku 10 skólar og símennt-
unarmiðstöðvar þátt í kynning-
unni auk Vinnumálastofnunar og
Menntagáttar. Námskynningin var
opin öllum sem höfðu áhuga og
um 600 manns mættu. Kynningin
var vel heppnuð og vonandi verður
hún að árlegum viðburði til eflingar
menntunar á Suðurnesjum.
Vel sótt námskynning í Stapa
Sannkallaðir stórtónleikar verða sunnudagskvöld-
ið 5. júní á Sjóaranum síkáta
í Grindavík. Þá verður söng-
konan Guðrún Gunnarsdótt-
ir ásamt hljómsveit og Ragga
Bjarna með tónleikana „Óður
til Ellýjar“ í íþróttahúsinu kl.
20:30 og verður ekkert til sparað
til að gera þessa tónleika sem
glæsilegasta. Meðal annars mun
barnabarn Ellýjar koma fram
og segja frá ömmu sinni.
Þann 28. desember síðastliðinn
hefði söngkonan Ellý Vilhjálms
orðið 75 ára en sem kunnugt er á
hún ættir að rekja til Suðurnesja.
Af því tilefni hefur söngkonan
Guðrún Gunnarsdóttir ákveð-
ið að heiðra minningu Ellýj-
ar með þessum tónleikum sem
fluttir hafa verið víðar og fengið
feikna góða dóma. Guðrún gaf
út plötu árið 2003 með upptöku
af tónleikunum „Óður til Ellýj-
ar“ og hlaut sú útgáfa Íslensku
tónlistarverðlaunin sem besta
platan í flokknum „Ýmis tónlist“
það árið.
Það gefst því einstakt tækifæri í
Grindavík á sjómannadeginum 5.
júní að heyra lögin hennar Ellýj-
ar flutt af landsliði tónlistarfólks,
þeim Guðrúnu Gunnars, Agnari
Má Magnússyni, Sigurði Flosa-
syni, Birgi Bragasyni og Hannesi
Friðbjarnarsyni. Sérstakur gestur
á tónleikunum er heiðursmað-
urinn Ragnar Bjarnason.
Miðaverð aðeins 2.500 kr. í for-
sölu. 3.000 kr. við innganginn.
Forsala miða fer fram í Kvikunni
á opnunartíma hússins milli kl.
10:00 – 17:00. Sími: 420-1190.
„Sjóarinn síkáti er bæjarhátíð okkar Grindvíkinga
sem við leggjum mikinn metnað í. Hún tókst virki-
lega vel í fyrra en þá komu yfir tuttugu þúsund gestir.
Dagskráin hefur aldrei verið glæsilegri en í ár, hér er
hin eina og sanna Sjómannadagshelgi með öllu til-
heyrandi. Ég vil taka skýrt fram að þetta er fyrst og
fremst fjölskylduhátíð en ekki unglingafylleríssam-
koma. Hér er ströng gæsla og 20 ára aldurstakmark
á tjaldsvæðinu,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, upp-
lýsingafulltrúi Grindavíkurbæjar um bæjarhátíð-
ina Sjóarann síkáta sem haldin verður í Grindavík
helgina 3.-5. júní nk.
Sjóarinn síkáti hefur fest sig í sessi sem ein skemmtileg-
asta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins. Dagskráin er
ótrúlega fjölbreytt og jafnframt verður mikið lagt upp
úr því að virkja bæjarbúa til þátttöku en bænum hefur
verið skipt upp í fjögur litahverfi og fara bæjarbúar
hamförum í skreytingum þessa dagana.
„Grindavík er eitthvert öflugasta bæjarfélag landsins
og með tilkomu nýja tjaldsvæðisins sem opnað var
í hitteðfyrra og svo nýju þjónustuhúsi í þessari viku
erum við einnig að stimpla okkur á kortið sem öflugur
ferðamannabær en hér er ótrúlega margt skemmtilegt
að sjá og gera. Segja má að bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti
marki upphafið á skemmtilegu sumri hér suður með
sjó,“ segir Þorsteinn.
Upphitun hefst á miðvikudagskvöldinu en fimmtudag-
inn ber upp á uppstigningardag og þann dag er einnig
nóg um að vera. Svo verður líf og fjör á föstudagskvöld-
inu með skrúðgöngu litahverfanna niður á bryggju,
bryggjuballi og skemmtunum. Á laugardeginum er
bærinn undirlagður af ýmsum skemmtunum fyrir
alla fjölskylduna. Má þar nefna ratleik, leiktæki fyrir
börnin, glæsilega barnadagskrá, landsþekkta skemmti-
krafta, keppnin Sterkasti maður á Íslandi, Brúðubíllinn
verður á sínum stað, leiktæki og andlitsmálun fyrir
krakkana, svo fátt eitt sé talið. Foreldrar og fullorðnir
fá sinn skammt en þarna verða ýmsar uppákomur og
sýningar. Um kvöldið verða svo böll á skemmtistöðum
bæjarins. Á sunnudeginum verða hefðbundin hátíða-
höld á vegum Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavík-
ur ásamt flottri dagskrá á hátíðarsviðinu og ýmsu
fleiru. Þessa helgi verður einnig Íslandsmeistaramót
í flökun, netagerð, sjómanni, golfmót, sundmót, fót-
boltamót, körfuboltamót og ýmislegt fleira. Sjóaranum
síkáta lýkur svo með glæsilegum minningartónleikum
Guðrúnar Gunnarsdóttur og Ragga Bjarna um Ellý
Vilhjálms í íþróttahúsinu á sunnudagskvöldinu.
Þorsteinn hvetur Suðurnesjamenn til þess að fjöl-
menna til Grindavíkur en hægt er að nálgast dagskrá
Sjóarans síkáta á www.sjoarinnsikati.is
„Sérstaklega finnst okkur gaman að sjá brottflutta
Grindvíkinga mæta til heimahaganna. Þá eru líka
sjómenn og fjölskyldur þeirra í öðrum bæjarfélögum
einnig hvattir til þess að koma til Grindavíkur til að
halda upp á daginn því hvergi á landinu eru flottari
hátíðahöld til heiðurs íslenska sjómanninum en hér í
Grindavík,“ sagði Þorsteinn að endingu.
Flottustu hátíðahöld landsins til
heiðurs íslenska sjómanninum
Óður til Ellýjar á Sjóar-
anum síkáta í Grindavík