Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 19
Fimmtudagurinn 26. maí 2011 VÍKURFRÉTTIR 19 ›› Sjóarinn síkáti haldinn í Grindavík 3.-5. júní nk.: ›› Nám er vinnandi vegur: Fisktækniskóli Suðurnesja Starfstengt nám á framhaldsskólastigi Innritun á haustönn 2011 Námsbrautir í boði: Fiskvinnslubraut Sjómennska Sjókokkur/matsveinanám Netagerðarnám Nánari upplýsingar í síma 4125940 / 4125968 og á netföng nannabara@mss.is / olijon@fss.is og larus@fss.is Einnig á heimasíðu skólans á facebook.com . Fisktækniskóli Suðurnesja, Víkurbraut 56, 240 Grindavík svíkur eingan og gerir allt vitlaust „Skelltu nú gömlu í gammósíurnar og bjódd’enni á alvöru ball“ SJÓMAN NADAGS BALL Hafnargötu 19 • 421 4601 • www.rain.is • rain@rain.is Aðgangseyrir 30 silfurpeningar eða aðeins um 1.500 krónur á núvirði. Námskynningin Nám er vinn-andi vegur – Skólinn opnar dyr var haldin í Stapa miðviku- daginn 18. maí. Kynningin var liður í átakinu Nám er vinnandi vegur sem samþykkt var af ríkis- stjórninni 19. apríl sl. Í því felst að öllum umsækjendum um nám í framhaldsskóla að 25 ára aldri, sem uppfylla skilyrði, verður tryggð skólavist í haust. Einnig verða sköpuð ný námstækifæri fyrir allt að 1.000 atvinnuleit- endur á öllum aldri haustið 2011 og næstu tvö skólaár þar á eftir. Fyrstu önnina gefst atvinnuleit- endum kostur á að stunda nám án þess að greiða skólagjöld og halda atvinnuleysisbótum svo auðveld- ara reynist að fara úr atvinnuleysi í nám. Nám er í raun framtíðar- fjárfesting sem hver og einn tekur í sjálfum sér og skapar það mikil tækifæri fyrir viðkomandi. Alls tóku 10 skólar og símennt- unarmiðstöðvar þátt í kynning- unni auk Vinnumálastofnunar og Menntagáttar. Námskynningin var opin öllum sem höfðu áhuga og um 600 manns mættu. Kynningin var vel heppnuð og vonandi verður hún að árlegum viðburði til eflingar menntunar á Suðurnesjum. Vel sótt námskynning í Stapa Sannkallaðir stórtónleikar verða sunnudagskvöld- ið 5. júní á Sjóaranum síkáta í Grindavík. Þá verður söng- konan Guðrún Gunnarsdótt- ir ásamt hljómsveit og Ragga Bjarna með tónleikana „Óður til Ellýjar“ í íþróttahúsinu kl. 20:30 og verður ekkert til sparað til að gera þessa tónleika sem glæsilegasta. Meðal annars mun barnabarn Ellýjar koma fram og segja frá ömmu sinni. Þann 28. desember síðastliðinn hefði söngkonan Ellý Vilhjálms orðið 75 ára en sem kunnugt er á hún ættir að rekja til Suðurnesja. Af því tilefni hefur söngkonan Guðrún Gunnarsdóttir ákveð- ið að heiðra minningu Ellýj- ar með þessum tónleikum sem fluttir hafa verið víðar og fengið feikna góða dóma. Guðrún gaf út plötu árið 2003 með upptöku af tónleikunum „Óður til Ellýj- ar“ og hlaut sú útgáfa Íslensku tónlistarverðlaunin sem besta platan í flokknum „Ýmis tónlist“ það árið. Það gefst því einstakt tækifæri í Grindavík á sjómannadeginum 5. júní að heyra lögin hennar Ellýj- ar flutt af landsliði tónlistarfólks, þeim Guðrúnu Gunnars, Agnari Má Magnússyni, Sigurði Flosa- syni, Birgi Bragasyni og Hannesi Friðbjarnarsyni. Sérstakur gestur á tónleikunum er heiðursmað- urinn Ragnar Bjarnason. Miðaverð aðeins 2.500 kr. í for- sölu. 3.000 kr. við innganginn. Forsala miða fer fram í Kvikunni á opnunartíma hússins milli kl. 10:00 – 17:00. Sími: 420-1190. „Sjóarinn síkáti er bæjarhátíð okkar Grindvíkinga sem við leggjum mikinn metnað í. Hún tókst virki- lega vel í fyrra en þá komu yfir tuttugu þúsund gestir. Dagskráin hefur aldrei verið glæsilegri en í ár, hér er hin eina og sanna Sjómannadagshelgi með öllu til- heyrandi. Ég vil taka skýrt fram að þetta er fyrst og fremst fjölskylduhátíð en ekki unglingafylleríssam- koma. Hér er ströng gæsla og 20 ára aldurstakmark á tjaldsvæðinu,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, upp- lýsingafulltrúi Grindavíkurbæjar um bæjarhátíð- ina Sjóarann síkáta sem haldin verður í Grindavík helgina 3.-5. júní nk. Sjóarinn síkáti hefur fest sig í sessi sem ein skemmtileg- asta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins. Dagskráin er ótrúlega fjölbreytt og jafnframt verður mikið lagt upp úr því að virkja bæjarbúa til þátttöku en bænum hefur verið skipt upp í fjögur litahverfi og fara bæjarbúar hamförum í skreytingum þessa dagana. „Grindavík er eitthvert öflugasta bæjarfélag landsins og með tilkomu nýja tjaldsvæðisins sem opnað var í hitteðfyrra og svo nýju þjónustuhúsi í þessari viku erum við einnig að stimpla okkur á kortið sem öflugur ferðamannabær en hér er ótrúlega margt skemmtilegt að sjá og gera. Segja má að bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti marki upphafið á skemmtilegu sumri hér suður með sjó,“ segir Þorsteinn. Upphitun hefst á miðvikudagskvöldinu en fimmtudag- inn ber upp á uppstigningardag og þann dag er einnig nóg um að vera. Svo verður líf og fjör á föstudagskvöld- inu með skrúðgöngu litahverfanna niður á bryggju, bryggjuballi og skemmtunum. Á laugardeginum er bærinn undirlagður af ýmsum skemmtunum fyrir alla fjölskylduna. Má þar nefna ratleik, leiktæki fyrir börnin, glæsilega barnadagskrá, landsþekkta skemmti- krafta, keppnin Sterkasti maður á Íslandi, Brúðubíllinn verður á sínum stað, leiktæki og andlitsmálun fyrir krakkana, svo fátt eitt sé talið. Foreldrar og fullorðnir fá sinn skammt en þarna verða ýmsar uppákomur og sýningar. Um kvöldið verða svo böll á skemmtistöðum bæjarins. Á sunnudeginum verða hefðbundin hátíða- höld á vegum Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavík- ur ásamt flottri dagskrá á hátíðarsviðinu og ýmsu fleiru. Þessa helgi verður einnig Íslandsmeistaramót í flökun, netagerð, sjómanni, golfmót, sundmót, fót- boltamót, körfuboltamót og ýmislegt fleira. Sjóaranum síkáta lýkur svo með glæsilegum minningartónleikum Guðrúnar Gunnarsdóttur og Ragga Bjarna um Ellý Vilhjálms í íþróttahúsinu á sunnudagskvöldinu. Þorsteinn hvetur Suðurnesjamenn til þess að fjöl- menna til Grindavíkur en hægt er að nálgast dagskrá Sjóarans síkáta á www.sjoarinnsikati.is „Sérstaklega finnst okkur gaman að sjá brottflutta Grindvíkinga mæta til heimahaganna. Þá eru líka sjómenn og fjölskyldur þeirra í öðrum bæjarfélögum einnig hvattir til þess að koma til Grindavíkur til að halda upp á daginn því hvergi á landinu eru flottari hátíðahöld til heiðurs íslenska sjómanninum en hér í Grindavík,“ sagði Þorsteinn að endingu. Flottustu hátíðahöld landsins til heiðurs íslenska sjómanninum Óður til Ellýjar á Sjóar- anum síkáta í Grindavík

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.