Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.2011, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 01.09.2011, Qupperneq 16
16 FIMMTudagurInn 1. sepTeMber 2011 • VÍKURFRÉTTIR Parinu unga er því ekkert að van- búnaði, þau eru full eftirvæntingar enda styttist óðfluga í að stóri dag- urinn renni upp. Brúðkaupið fer fram á Ljósanótt 2. september nk. og verður gestum hátíðarinnar boð- ið að fylgjast með hluta af undir- búningi s.s. förðun, hárgreiðslu og ljósmyndun á veitingastaðnum í Duushúsi og hefst undirbúning- urinn þar kl. 10.00 og stendur til ca 14.00. Að lokinni athöfn í Njarð- víkurkirkju ca kl. 17.00 keyra þau í gegnum bæinn að Duushúsum þar sem ljósmyndarinn tekur nokkrar myndir af nýgifta parinu. Þátturinn Ísland í dag á Stöð 2 hefur fylgt parinu eftir við undir- búninginn en sjá má þættina inni á visir.is. Prýði – í höndum meistara er nafn á hópi þjónustuiðngreina innan Samtaka iðnaðarins. Um er að ræða samstarfsvettvang fimm fagfélaga. Hlutverk Prýði er annars vegar að stýra sameiginlegu markaðsstarfi út á við og hins vegar öflugu fag- starfi og stefnumótun í mennta- málum. Tilgangur Prýðis með verkefninu er fyrst og fremst að kynna þá fag- mennsku sem félagsmenn búa yfir og undirstrika mikilvægi þess að versla við fagmann í viðkomandi fagi. Fagfélögin sem standa að baki Prýði eru: Meistarafélag í hárgreiðslu, Ljósmyndarafélag Íslands, Félag ís- lenskra gullsmiða, Félag íslenskra snyrtifræðinga og Klæðskera- og kjólameistarafélagið. Hvernig finnst parinu svo að gifta sig í sviðsljósinu ef svo má að orði komast? „Fyrst og fremst erum við að taka þátt í þessu verkefni og mjög gaman að koma að þessu. Auðvitað hefur þetta verið sýnt í sjónvarpinu en heilt yfir hefur þetta bara verið þægilegt og ekkert aukið á stressið sem fylgir undir- búningnum. Verkefnið eitt og sér fannst okkur vera spennandi þegar við vorum beðin um að taka þátt í þessu. Okkur finnst mikilvægt að verslað sé við fagfólk en það hefur kannski færst í aukana á þessum Stóri dagurinn á morgun ›› Magnús og Guðrún í brúðkaupsverkefninu Prýði: rúðkaupsverkefnið Prýði, hópur þjón- ustuiðngreina innan SI, hefur verið í full- um gangi í sumar. Tilvonandi brúðhjón, Magnús Sverrir Þor- steinsson og Guðrún Sædal Björgvinsdóttir, standa í ströngu við undir- búninginn og hafa notið aðstoðar fagmanna innan Prýði. Þau hafa rætt við ljósmyndarann Írisi Pétursdóttur um fyrirkomulag mynda- töku, farið í margvíslegar snyrtimeðferðir hjá snyrtistofu Huldu og hjá Ragnheiði á snyrtistof- unni Coco, mátað föt hjá klæðskerunum Birnu Huld í Reykjanesbæ sem saumar brúðarkjólinn og Berglindi í Klæðskerahöllinni sem sér um jakkafötin á Magnús. Síðan var ákveðin brúð- argreiðsla í samráði við hárgreiðslumeistara á stofunni Hár og rósir. Fjóla gullsmiður sér svo um að hjálpa þeim að velja réttu hringana. síðustu og verstu að fólk reyni að sleppa vel og telur að betra sé að versla ekki við fagfólkið.“ Þau segjast fyrst núna finna fyrir smá fiðringi en fram að þessu hefur ekki gefist tími til þess. Það hefur allt verið á fullu í því að undirbúa og skipuleggja. „Nú fer þetta hins vegar að skella á og þá eykst stressið aðeins, annað væri óeðlilegt“ segja brúðhjónin verðandi, Magnús Sverrir Þorsteinsson og Guðrún Sædal Björgvinsdóttir, sem ganga munu í hnapphelduna á Ljósanótt. eythor@vf.is Fjóla Þorkelsdóttir gullsmiður í Keflavík leggur brúðhjón- unum til hringana. Hér eru þau Guðrún og Magnús að velja sér hringa fyrir stóra daginn. Berglind í Klæðskera- höllinni sér um að sauma fötin á Magnús fyrir brúðkaupsdaginn. Sigurrós Antonsdóttir í Hári og rósum sér um hárgreiðslu brúðarinnar. Hér eru þær Sigurrós og Rósa Haraldsdóttir að prófa greiðslu á Guðrúnu fyrir stóra daginn. Sjónvarpsþátturinn Ísland í dag á Stöð 2 hefur fylgst með verkefninu og gert nokkur innslög í þáttinn um samstarfsverkefnið Prýði.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.