Víkurfréttir - 01.09.2011, Qupperneq 24
24 FIMMTudagurInn 1. sepTeMber 2011 • VÍKURFRÉTTIR
Happy-face til
góðgerðarmála
›› Listakonan Lína Rut:
›› Suðsuðvestur:
UMSJÓNARMAÐUR
Í KARLAKLEFA ÓSKAST
Við leitum að karlmönnum sem:
• eru heilsuhraustir, stundvísir, einstaklega samviskusamir
og þjónustulundaðir
• eru eldri en 25 ára
• búa yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu,
önnur tungumál mikill kostur
• geta tileinkað sér þá gæða- og öryggisstaðla sem við störfum
samkvæmt og hafa næmt auga fyrir því sem betur má fara
Bláa Lónið er eitt helsta aðdráttarafl íslenskrar ferðaþjónustu með um
80% markaðshlutdeild á ferðamarkaði og yfir 400.000 gesti á ári.
Innan raða þess starfa úrvals starfsmenn sem búa yfir mikilli hæfni
í mannlegum samskiptum, eru agaðir og fágaðir í framkomu og sinna
starfi sínu af mikilli samviskusemi. Lögð er mikil áherslu á upplifun
gesta, gæði þjónustunnar og umhverfisins og skiptir hreinlæti þar
höfuðmáli. Bláa Lónið er tóbakslaus vinnustaður.
Starfið felst í að hafa umsjón með ásýnd búningsklefa og sturtu-
aðstöðu karla. Starfið krefst vilja til að veita framúrskarandi þjónustu,
mikillar hæfni í mannlegum samskiptum og almenns líkamlegs hreystis
þar sem gestafjöldi er mikill og í mörg horn að líta.
Um framtíðarstörf er að ræða í 2-2-3 vaktakerfi. Möguleiki er á hluta-
störfum með öðru skipulagi. Nánari upplýsingar veitir Helga Jóhanna
Oddsdóttir í síma 420-8800 á milli kl. 13 og 15 virka daga.
Umsóknir skulu eingöngu sendar í gegn um heimasíðu Bláa Lónsins:
www.bluelagoon.is/Um-fyrirtaekid/Atvinna/.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og þeim öllum svarað.
Umsóknarfrestur er til og með 9. september nk.
Að Baldursgötu 14 hefur lista-konan Lína Rut aðsetur en
hún hefur í gegnum tíðina fengist
við myndlist og skúlptúra og m.a.
sýnt á Ljósanótt undanfarin fjög-
ur ár. Á komandi Ljósanótt mun
Lína vera með sýningu á vinnu-
stofu sinni þar sem fólk getur not-
ið myndlistar hennar og skúlptúra
auk þess sem hún bryddar upp
á nýjung þetta árið. Hún hefur
búið til Happy-face kall sem hún
hyggst selja og hluti af ágóðanum
mun renna til góðgerðarmála.
„Núna um helgina er ég að fara
að kynna þennan kall sem heitir
Happy-face og hugsunin er sú að
þú getir keypt þér fallega vöru
og styrkt gott málefni um leið.
Aðallega hafði ég hugsað um að
styrkja fötluð og veik börn,“ segir
Lína en fígúran mun kosta 14.500
og mun hluti af söluverðinu fara
til góðgerðarmála eins og áður
segir. Einnig er Lína að kynna til
leiks ný gjafabox sem hægt er að
hengja lokin af upp á vegg sem
málverk. „Ég held að þarna sé ég
með eitthvað nýtt í höndunum,
ég veit ekki til þess að svona sé
til,“ segir Lína en gjafaboxin má
endurnýta og geyma má alls kyns
dót í þeim.
Lína kemur aðeins að verkefninu
Klikkaður kærleikur þar sem sam-
eina á tónleika og listasýningar af
ýmsu tagi. Þar lánar hún Spiral
hönnun mynd af Happy-face kall-
inum og þær munu þrykkja hana á
boli og selja til styrktar góðra mál-
efna. „Þetta er bara fyrsta skrefið
með Happy-face og það eru margar
hugmyndir í gangi. Ég vil senda
þessa fígúru á flakk. Nú t.d. lána ég
þeim hjá Spiral hönnun hann og
þær nýta hann eins og þær vilja. Nú
á haustmánuðum þá mun Happy-
face taka þátt í vekefni sem teng-
ist félagi krabbameinssjúkra barna
sem heitir Kraftur, þau munu þá
nýta mína hönnun og selja eins og
þeim lystir. Svo er annað spennandi
verkefni en þar ætlar fatahönn-
uðurinn Hildur Sumarliðadótt-
ir að koma á Ljósanótt og kynna
barnafatalínu sem andlit Happy-
face prýðir.“ Lína á sjálf tvo sérstaka
drengi sjálf og segir hugmyndina
um að styrkja börn með sérþarfir
hafa blundað lengi í sér. „Þó maður
geti ekki gert mikið þá vill maður
samt hjálpa. Mig langaði að gera
eitthvað sem væri að skila inn pen-
ingum allt árið. Ég hef tekið þátt
í því að gefa listaverk og þá selst
það á ákveðna summu sem hverfur
bara í einhverja hít því þörfin er
svo mikil. Þannig að ég hugsaði um
að gera eitthvað sem tikkar inn allt
árið,“ segir Lína.
Lína var önnum kafin við undir-
búning á komandi sýningu þegar
blaðamann bar að garði en hún
hafði ekki haft tíma til að punta sig
enda birtist útsendari Víkurfrétta
óvænt inn á vinnustofu til hennar.
Þegar kom að því að stilla sér upp
fyrir myndatöku þá vildi hún endi-
lega bregða aðeins á leik og setti
upp nýtt andlit, ánægt og risastórt
bleikt andlit.
Lína segist vona að vörurnar nái að
safna fjármunum til styrktar fötl-
uðum, langveikum börnum og for-
eldrum þeirra á Íslandi.
Hún mun kappkosta við að hanna
og framleiða fallegar og nýtanleg-
ar vörur þannig að kaupandinn
styrki gott málefni um leið og hann
eignast fallega og/eða skemmtilega
vöru. Að endingu vonar Lína að
Happy-face eigi eftir að vaxa og
dafna og eigi eftir að finna sér
marga samstarfsaðila í framtíðinni.
Föstudaginn 2. september kl. 18:00 opnar sýningin S.L.Á.T.U.R. (samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík) í Suð-
suðvestur, Keflavík.
Á sýningunni verða ný verk eftir þá Pál Ivan Pálsson, Jesper Pedersen,
Þráin Hjálmarsson, Magnús Jensson, Hallvarð Ásgeirsson Herzog, Þorkel
Atlason, Guðmund Stein Gunnarsson og Áka Ásgeirsson. Verkin eru á
ýmsu formi og taka mislangan tíma.
Dagskrá helgarinnar:
Opnun/Gjörningar: föstudag kl. 18:00
Sýning: laugardag kl 11:00-18:00
Tónleikar: laugardag kl. 15:00
Sýning opin á sunnudag frá kl.12:00 – 16:00
Sýning, gjörningar og
tónleikar á Ljósanótt
Gleðilega Ljósanótt!