Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.2011, Qupperneq 26

Víkurfréttir - 01.09.2011, Qupperneq 26
26 FIMMTudagurInn 1. sepTeMber 2011 • VÍKURFRÉTTIR Íslenska sjávarútvegssýningin 2 0 11 Smárinn, Kópavogur • September 22-24 www.icefish.is Eini viðburðurinn sem nær til íslenska sjávarútvegsins í heild sinni * Alþjóðlegar VIP-sendinefndir verða á staðnum * Íslensku sjávarútvegsverðlaunin verða afhent í fimmta sinn þann 22. september 2011 Forðist biðraðir og sparið fé! Skráið ykkur á Netinu á www.icefish.is til þess að spara 20%! Allt fyrir atvinnumenn í sjávarútvegi frá veiðum til vinnslu og dreifingar á fullunnum afurðum Nánari upplýsingar veitir Marianne Rasmussen-Coulling í síma +44 (0) 1329 825335, netfang: mrasmussen@mercatormedia.com Íslenska sjávarútvegssýningin er atburður á vegum Mercator Media Samstarfsaðili um flutninga SkipuleggjandiAlþjóðleg útgáfa Opinber íslensk útgáfa Opinbert flugfélag/loftflutningafélag & hótelkeðja Icefish 2011_140wx90h_Aug22nd_Icefish 22/08/2011 08:10 Page 1 Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á söluturn- inum Bitanum á Iðavöllum en þar hefur eigandinn Anton Már Ólafsson komið sér upp mynda- legri ísbúð sem býður upp á fjöl- breytt úrval af öllu því helsta sem ísbúðir á höfuborgarsvæð- inu bjóða upp á. Anton segist hafa verið með þessa flugu í hausnum í dágóðan tíma og telur það vel geta gengið að vera með alvöru ísbúð á Suður- nesjunum. „Hér getur fjölskyldan komið og allir fá eitthvað við sitt hæfi. Við erum með gamaldags- ís, súkkulaði, jarðarberja, og svo blandaðan ís en það hefur ekki verið í boði hjá okkur áður,“ sagði Anton þegar blaðamaður Víkur- frétta heimsótti Bitann. „Það er sjálfsafgreiðsla í krapinu og ég hef reynt að stíla inn á fjöl- breytni. Við erum með gríðarlegt úrval af sælgæti og dýfum sem ekki hafa verið til hérna áður. Ég hef skynjað það að eftir þessar breytingar, en við skiptum yfir í Kjörís, að bæjarbúum líkar sá ís mun betur,“ Anton segist jafn- framt vera ánægður með sumarið á Bitanum og hann hefur orðið var við aukinn straum ferðamanna þó þeir mættu koma í auknum mæli niður til Reykjanesbæjar. „Viðbrögðin hafa verið frábær og jafnvel betri en ég þorði að vona. Áður var ein ísvél en nú eru komnar tvær sem og það eru sex útfærslur í boði og meðal ann- ars svokallaður tvistur þar sem tveimur bragðtegundum er bland- að saman. Suðurnesjamenn hafa því loks eignast alvöru ísbúð þar sem úrvalið er eins og best verður á kosið,“ sagði Anton að lokum. Suðurnesjamenn hafa eignast alvöru ísbúð Viðskipti og atVinnulíf Ljósanótt, menningar- og fjöl-skylduhátíð í Reykjanesbæ verður haldin í tólfta sinn frá 1. til 4. september. Reykjanesbær hefur ávallt haft það að leiðarljósi að Ljósanótt sé fjölskylduhátíð og við skipulagningu hennar er lögð áhersla á að dagskráratriði höfði til fólks á öllum aldri. Hátíðarhöldin hafa alla jafna farið vel fram og ánægjulegt að sjá að fjölskyldur úr öllum áttum sameinast með okkur í Reykjanesbæ á þessum tímamótum. Í tengslum við hátíðina verður rekið athvarf í öryggismiðstöð að Hafnar- götu 8. Að athvarfinu standa Fjölskyldu- og félagsþjónustan, Útideildin, Lögreglan og Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ. Athvarfið verður starfrækt föstudags- og laugardagskvöld eftir að skipulagðri dag- skrá lýkur. Börn og ungmenni sem eru ein á ferli og/eða eru undir áhrifum áfengis eða vímuefna verða færð í athvarfið. Mikilvægt er að foreldrar og unglingar standi saman og taki ábyrga afstöðu gagnvart unglingadrykkju hvort sem um er að ræða á Ljósanótt eða ekki. Lögreglan mun vera með öflugt eftirlit gagnvart unglingadrykkju á Ljósanótt þar sem ekki verður samþykkt að unglingar séu með áfengi um hönd. Þessar aðgerðir eru fyrst og fremst til verndar fyrir börnin okkar en jafnframt til stuðnings for- eldrum í uppeldishlutverki sínu. Mikilvægt er að foreldrar standa saman um að virða útivistartímann því það er sannreynt að ákveðin hætta fylgir því að börn séu eftirlitslaus úti eftir að rökkva tekur. Þann 1. september breytist útivistartími barna og skv. barnaverndarlögum skulu þá börn 12 ára og yngri ekki vera lengur úti en til kl. 20.00 nema í fylgd með fullorðnum og börn á aldrinum 13-16 ára skuli ekki vera ein á almannafæri eftir klukkan 22.00. Foreldrar og unglingar sýnum ábyrgð í verki og segjum Nei við unglinga- drykkju og eigum góðar fjölskyldustundir á Ljósanótt. Hátíðarkveðjur María Gunnarsdóttir Forstöðumaður barnaverndar Reykjanesbæjar ›› María Gunnarsdóttir skrifar: Stöndum saman og segjum nei við unglinga- drykkju á Ljósanótt ›› Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum: Fróðlegur fyrirlestur hjá Mið-stöð símenntunar á Suður- nesjum á þriðjudaginn 6. sept. um veðurfar á Suðurnesjum. Fyr- irlesari er Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur og veðurbloggari með meiru. Í fyrirlestrinum verður farið í ein- kenni veðurlags á Suðurnesjum. Rakið hver eru áhrif fjalla og fjarða á hita, vind, úrkomu og snjóalög. Skoðað hversu mikil áhrif sjórinn og sjávarhitinn hefur á veðurfar og hvaða afleiðingar hlýnandi veður hefur fyrir Reykjanesið. Einnig verður fjallað um hvaða gagn má hafa af veðurspám og hvernig þekking fólks á staðbundnu veðri getur aukið gagnsemi þeirra. Fyrirlesturinn verður þriðjudaginn 6. september kl. 19-22 hjá MSS, Krossmóa 4, 3. hæð. Skráning er á www.mss.is Veðurfar á Suðurnesjum býður gestum Ljósanætur í kjötsúpu á hátíðarsvæðinu frá kl. 19 til 20.30 á föstudagskvöldinu. Gleðilega Ljósanótt! skolamatur.is ÆFINGAR UMFN Ængar heast samkvæmt ængatöu mánudaginn 5. september. Skráning fer svo fram þriðjudaginn 13. september kl. 18:00 í íþróttamiðstöð Njarðvíkur. Ængataan er birt á heimasíðu félagsins www.umfn.is. Auglýsingadeild í síma 421 0001 Fréttadeild í síma 421 0002 Afgreiðsla í síma 421 0000 vf.is • m.vf.is • kylfingur.is Víkurfréttir Ekki er vika án Víkurfrétta!

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.