Frjáls verslun - 01.09.2012, Side 8
8 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
2 V Í S B E N D I N G • 4 4 T B L 2 0 1 2
Röð 12 Röð 11 Röð 10 Bæjarfélag Eink.12 Eink.11 Eink. 10 Meðaltal Staða
1 1 1 Garðabær 9,0 8,7 8,1 8,6 **
2 4 5 Akureyri 7,2 7,1 6,2 6,8 *
3 2 6 Snæfellsbær 6,8 7,4 5,5 6,6 *
4 6 4 Hornafjörður 6,7 6,8 6,2 6,6 *
5 5 14 Akranes 6,7 7,0 4,6 6,1 +
6 3 3 Dalvíkurbyggð 6,7 7,3 6,4 6,8 *
7 9 7 Eyjafjarðarsveit 6,3 5,9 5,5 5,9
8 7 18 Þingeyjarsveit 6,0 6,3 4,3 5,5
9 11 2 Seltjarnarnes 5,7 5,4 7,5 6,2 +
10 13 8 Vestmannaeyjar 5,4 5,1 5,4 5,3
11 16 20 Fjallabyggð 5,4 4,8 3,9 4,7
12 24 12 Ölfus 5,4 4,0 4,9 4,8
13 15 27 Fjarðabyggð 5,1 4,9 3,0 4,3
14 20 31 Borgarbyggð 5,1 4,2 2,8 4,0
15 10 11 Húnaþing vestra 5,1 5,5 4,9 5,2
16 18 26 Árborg 5,0 4,6 3,0 4,2
17 8 21 Reykjavík 5,0 5,9 3,8 4,9
18 26 19 Mosfellsbær 4,8 3,6 4,2 4,2
19 22 15 Hveragerði 4,6 4,1 4,6 4,4
20 17 33 Vogar 4,5 4,6 2,8 4,0
21 38 17 Vesturbyggð 4,4 2,0 4,3 3,6
22 23 32 Kópavogur 4,3 4,1 2,8 3,7
23 21 9 Rangárþing eystra 4,2 4,1 5,1 4,5
24 12 10 Bláskógabyggð 3,9 5,4 4,9 4,7
25 33 22 Garður 3,9 2,8 3,3 3,3
26 14 29 Norðurþing 3,9 5,0 2,9 3,9
27 19 16 Skagafjörður 3,8 4,3 4,5 4,2
28 29 35 Hafnarfjörður 3,7 3,0 2,3 3,0
29 25 23 Ísafjarðarbær 3,7 3,7 3,3 3,6
30 27 25 Grindavíkurbær 3,7 3,6 3,0 3,4
31 28 30 Stykkishólmur 3,6 3,5 2,9 3,3
32 30 34 Rangárþing ytra 3,4 3,0 2,7 3,0
33 34 28 Reykjanesbær 3,4 2,5 2,9 2,9
34 39 36 Álftanes 3,1 1,7 2,2 2,3
35 37 38 Fljótsdalshérað 2,7 2,1 1,0 1,9
36 36 24 Sandgerði 2,5 2,4 3,2 2,7
hægar en tekjurnar og staðan batnaði nærri
10% á þennan mælikvarða.
Lengi vel hefur mælikvarðinn skuldir
á íbúa verið talinn gefa góða vísbendingu
um fjárhagslega stöðu sveitarfélags. Í árslok
2011 var hún svipuð og á fyrra ári og nam
1,845 þúsundum króna en var um 1,840
þúsund krónur á mann að meðaltali yfir
landið allt árið 2010. Að raungildi er
þetta minnkun um 5%. Nettóskuldir, þ.e.
skuldir að frádregnum veltufjármunum,
voru 519 milljarðar króna í árslok.
Að þessu sinni er fyrst og fremst horft
á nettóskuldir á íbúa. Nokkur sveitarfélög,
einkum á Suðurnesjum, eiga talsverðar
peningaeignir og eðlilegt að tekið sé tillit til
þess þegar horft er á stöðuna.
Skuldugasta sveitarfélagið samkvæmt
þessum mælikvarða (sjá töflu 3) er
Reykjanesbær með 2,7 milljónir í skuld
á íbúa. Salan á skuldabréfinu fyrrnefnda
lækkar skuldirnar í 2,5 milljónir á íbúa
og Reykjanesbær er því enn skuldugasta
sveitarfélagið. Í höfuðborginni eru
nettóskuldir um 2,4 milljónir króna á
íbúa, en skuldir Orkuveitunnar eru afar
háar. Sandgerði, Fjarðabyggð, Álftanes og
Fljótsdalshérað eru öll með skuldir upp á
2,1 til 2,3 milljónir króna á mann. Þetta
hlutfall segir ekki allt. Sum sveitarfélög
hafa staðið í miklum framkvæmdum og
vænta þess að fá meiri tekjur til baka en
hin.
Einnig má horfa á hlutfall skulda af
tekjum ársins. Hlutfallið sýnir hversu
lengi sveitarfélögin væru að borga skuldir
sínar ef þau þyrftu ekkert að sinna rekstri
eða nýjum framkvæmdum. Hér er miðað
við að hlutfallið sé ekki hærra en 100%.
Eftirlitsnefndin hefur miðað við að
hlutfallið fari ekki yfir 150%. Hjá mörgum
sveitarfélögum er hlutfallið hærra en 200%
í árslok 2011 (sjá töflu 3) sem er mjög
alvarlegt veikleikamerki.
Fólksfjöldi
Sveiflur hafa verið í mannfjölda að
undanförnu. Fólki fjölgaði um 0,5% á
árinu 2010 og um 0,3% árið 2011. Þó
voru flutningar frá landinu meiri en til
þess. Fækkun ber það með sér að íbúarnir
telji að betra sé að búa annars staðar og
getur verið til vitnis um að ekki sé allt eins
og best verður á kosið í sveitarfélaginu sem
fækkar í.
Það er heppilegt að fólksfjöldi aukist
hóflega. Ef hann eykst of hratt er hætt við
að erfitt verði að veita öllum nýju íbúunum
þjónustu strax. Gatnagerð og aðrar
framkvæmdir vegna nýbygginga geta líka
komið niður á fyrri íbúum.
Tekjur og afkoma
Tekjur sveitarfélaganna á íbúa eru nokkuð
mismunandi. Mestar eru þær í Snæfellsbæ,
1.074 þúsund krónur á mann og litlu
minni í Fjarðabyggð eða 1.008 þús. kr. á
mann. Þessi tvö sveitarfélög voru einnig
tekjuhæst árið 2010. Tekjurnar eru innan
við 600 þúsund krónur á íbúa í Vogum,
Garði, Hafnarfirði og Kópavogi. Það er
að sjálfsögðu ekki markmið í sjálfu sér
að sveitarfélög afli mikilla skatttekna,
á næstunni er augljóst að sveitarfélög
verða mörg bæði að draga úr þjónustu og
fullnýta skattstofna.
Eðlilegt má telja að afgangur af rekstri
sé nálægt 10%. Allmörg sveitarfélög
voru með milli 10 og 15% af tekjum í
rekstrarafgang.
Útsvarsprósenta var víðast hækkuð úr
13,28% í 14,48%. Ekki er hægt að segja
að mikil fjölbreytni sé í útsvarsprósentunni
árið 2011. Lægst var hún hjá stærri
sveitarfélögum 13,66% í Garðabæ og
hæst 14,48%, en það er hún hjá flestum
sveitarfélögum á landinu.
Draumasveitarfélagið
Í umfjöllun sinni um sveitarfélög hefur
Vísbending útnefnt draumasveitarfélagið,
en það er það sveitarfélag sem er best
statt fjárhagslega samkvæmt nokkrum
mælikvörðum (sjá skilgreiningar um
einkunnir í kassa á bls. 4).
Einkunnagjöfin endurspeglar erfitt
árferði. Aðeins eitt sveitarfélag nær einkunn
yfir 8,0, en það er Garðabær með 9,0,
sem er ágætiseinkunn. Garðabær er því
draumasveitarfélagið þriðja árið í röð.
Tafla1: Einkunnir 36 stærstu
sveitarfélaganna
Útreikningar Vísbendingar
Í stuttu máli
Einkunnagjöfin endurspeglar erfitt árferði. Aðeins eitt sveitarfélag nær einkunn yfir 8,0, en það er Garðabær með 9,0, sem er ágætiseink unn.
Næsthæst er Akureyri með 7,2 í einkunn. Sex
sveitar félög fá milli 6,0 og 7,0, Snæfells bær
með 6,8, Hornafjörður, Akranes og Dalvík með
6,7, Eyjafjarðarsveit með 6,3 og Þing eyjarsveit
með 6,0. Níu sveitarfélög til viðbótar ná einkun-
ninni 5,0.
Eðlilegt er að spyrja hvað það sé sem gerir
Garðabæ gott sveitarfélag? Útsvarsprósent
an er lægri þar en annars staðar. Hjá fjöl
skyldu með fimm milljón króna árstekjur var
útsvarið 41 þúsund krónum lægra í Garða bæ
en í Hafnarfirði. Þetta jafngildir um það bil 2%
hærri ráðstöfunartekjum. Afkoma er hófleg
og skuldir sem hlutfall af tekjum eru 67%.
Það eina sem veikir bæjarfélagið í þessari
einkunnagjöf er að veltufjárhlutfall er 145%,
sem er fullhátt því að öllu jöfnu væri betra að
greiða niður skuldir eða lækka útsvar meira
þegar peningastaðan er rúm.
Á botninum eru Fljótsdalshérað, Sandgerði
og Álftanes með einkunn frá 2,5 til 3,1. Staða
allra þessara sveitarfélaga er mjög þröng.
Álftanes fær þó lækkun skulda við samein
ingu við Garðabæ.
Verður Garðabær enn draumur?
Vísbending veltir því fyrir sér áhrifum sam ein
ingar Garðabæjar við Álftanes og er ljóst að
einkunn sameiginlegs bæjarfélags ins lækk ar
verulega frá því sem Garðabær stendur í
núna en verður komin upp fyrir 9,0 árið 2016
ef áætlanir ganga eftir. Blaðið tekur tölur úr
áætlun Garðars Jónssonar ráðgjafa, en hann
skrifaði skýrslu um áhrif sameiningarinnar
á fjármál sam einaðs sveitarfélags. Með því
að setja þær inn fæst, að á næsta ári lækkar
einkunnin úr 9,0 í 5,5. Á árinu 2014 hækkar
hún hins vegar á ný og fer í 8,7 og verður
komin í 9,1 árið 2016, ef áætlanir Garðars
ganga eftir. Samkvæmt því hafa íbúar beggja
sveitarfélaga grætt á sameiningunni.
tímaritið Vísbending:
Tímaritið Vísbending útnefnir á
hverju ári draumasveitarfélagið
en það er það sveitarfélag
sem er best statt fjár hags ega
samkvæmt nokkrum mæli
kvörð um. Garðabær er drauma
sveitarfélagið; þriðja árið í röð.
Drauma-
sveitar-
félagið
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, barðist mjög fyrir sameiningunni við Álftanes. Eðlilegt er að spyrja hvað það
sé sem gerir Garðabæ svo gott sveitarfélag. Útsvarsprósentan er
lægri þar en annars staðar. Hjá fjölskyldu með fimm milljón króna
árstekjur var útsvarið 41 þúsund krónum lægra í Garðabæ en í
Hafnarfirði. Munar um minna.
gunnar ein r son,
bæjarstjóri Í garðabæ
Gunnar Einarsson.