Frjáls verslun - 01.09.2012, Síða 9
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 9
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jó úin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
L
iv Bergþórsdóttir, fram
kvæmdastjóri Nova,
var valin mark aðs
maður ársins 2012 og
þess má geta að þrjú
fyrirtæki, sem hún hefur unni ð
hjá, hafa unnið til mark aðs verð
launa.
„Fyrsta starfið mitt við mark aðs
mál var hjá Sláturfélagi Suður
lands en þar var unnið gott og
fag legt markaðsstarf. SS var
valið markaðsfyrirtæki ársins
1997 hjá Ímark en ég get ekki
sagt að hlutverk mitt hafi skipt
máli í því samhengi. Þetta var
100 ára gamalt fyrirtæki, þetta
var fyrst og fremst góður skóli og
ég blaut á bak við eyrun. Finnur
Árnason var sölu og markaðs
stjóri SS á þeim tíma, en hann
er nú forstjóri Haga. Hann er að
mínu mati besti markaðsmaður
lands ins.
Ég hóf síðan störf hjá Tali þegar
það félag var stofnað. Þar kynnt
ist ég aftur fjölda snillinga sem
kenndu manni margt. Þórólfur
Árnason var frábær stjórnandi
og þar lærði maður að vaxa sem
stjórnandi og setja starfsfólkið í
fyrsta sæti.“
Nova var stofnað árið 2006 og
hefur Liv verið framkvæmdastjóri
frá upphafi. Fyrirtækjamenningin
þykir vera markaðshneigð og
síðastliðin tvö ár hafa viðskipta
vinir Nova verið ánægðustu
viðskiptavinirnir á Íslandi sam-
kvæmt Íslensku ánægjuvoginni
auk þess sem Nova er í hópi
fyrirmyndarfyrirtækja VR þar sem
ánægja starfsmanna er mæld.
Nova var valið markaðsfyrirtæki
ársins 2009 og aftur tilnefnt til
verðlaunanna árið 2011. Þá hlaut
Liv í fyrra stjórnunarverðlaun
Stjórnvísi á sviði markaðsmála.
„Ég er fyrst og fremst þakklát
starfsfólki Nova og viðskiptavin
um fyrirtækisins fyrir hversu vel
hefur gengið.“
Góður undirbúningur
Liv segir það vera samspil margra
þátta sem geri það að verk um að
fyrirtæki nái árangri. „Þetta snýst
um að láta allt sem fyrirtækið
gerir vinna vel saman, það er
ekki eitthvað eitt sem skiptir máli
heldur allt. Liðsheild in, andinn
og stemningin í hópn um skiptir
gríðarlega miklu máli. Í fyrirtæki
eins og Nova skiptir miklu máli
að þessir tveir annars ólíku
heimar, tæknihluti fyrirtækisins
og markaðshluti þess, vinni
vel saman. Jóakim Reynisson
er framkvæmdastjóri tækni
sviðs Nova og við höfum unnið
saman ásamt fleira góðu fólki að
uppbyggingu Nova: Jóakim er
markaðssinnaðasti tæknimaður
sem ég hef unnið með.“
Liv segir að áður en fyrirtækið
hóf starfsemi sína hafi undirbún
ingur verið mikill.
„Stefna okkar og markmið voru
skýr og við vissum hvað við
ætluðum okkur. En samkeppnin
er hörð og það þýðir ekkert að
slaka á og halda að maður hafi
náð einhverjum árangri. Þetta er
langhlaup.“
markaðsmaður
ársins
ÍMARK valdi Liv Bergþórsdóttur, framkvæmdastjóra Nova,
markaðsmann ársins 2012. Liv segir að samspil margra
þátta ráði velgengni fyrirtækisins.
2012liv
Í stuttu máli
Liv Bergþórsdóttir. „Í fyrirtæki eins og Nova skiptir miklu máli að þessir
tveir annars ólíku heimar, tæknihluti fyrirtækisins og markaðshluti
þess, vinni vel saman.“
„Það þýðir ekkert að
slaka á og halda að
maður hafi náð ein-
hverjum árangri.“