Frjáls verslun - 01.09.2012, Side 15
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 15
Ostar, bækur, kaffi og vín í
jólakörfurnar
Í desember er annasamt í Ostabúðinni við Skólavörðustíg. Mikið er að gera í girnilegu jóla körf
un um og í veislunum, sem eru ýmist í heimahúsum, fyrirpartíum eða hvers kyns móttökum.
Jólakörfurnar
– mjög vinsælar um árabil
Jóhann Jónsson, framkvæmda
stjóri Ostabúðarinnar, er sann-
færður um að jólakörfurnar muni
alltaf halda vinsælum sínum.
„Skýringin er líklega sú að þetta
eru bæði fallegar gjafir og sýni
legar. Körfurnar eru flottar og
persónulegar gjafir sem bjóða
upp á að gefandinn gefi hug
mynda fluginu lausan tauminn og
velji ýmislegt góðgæti. Gjarnan
er skemmtilegum hlutum stungið
með, eins og t.d. geisladiskum
og bókum. Það er að byrja að
koma upp aftur eftir að hafa
dregist aðeins saman eftir
2008. Svo er sígilt að láta góða
flösku af víni, léttu eða sterku,
fylgja með. Annars er þetta bara
spurn ing um hversu miklu fólk vill
kosta til og hvað það kýs að hafa
í körfunum.
Stærri körfurnar geta hæglega
nýst yfir jól og áramót, þær end
ast alveg nógu lengi til þess.
Franskir ostar og forréttir
Best er að panta körfurnar með
góðum fyrirvara en rétt fyrir jól
erum við með tvær til þrjár teg
undir af tilbúnum körfum fyrir þá
sem þurfa að grípa smart gjöf
á síðustu stundu. Mörg fyrirtæki
eru farin að gefa starfsmönnum
sínum körfurnar viku fyrir jólin.
Þá er hugmyndin sú að gefa fólki
kost á að njóta góðgætisins á
aðventunni.
Persónulega myndi ég velja
franska osta og ýmsa forrétti
sem eru í miklu uppáhaldi hjá
mér. Fólk gefur forréttunum
almennt ekki mikinn gaum. Það
hefur borið meira á því að gef
ið sé kjötstykki með þessu, til
dæmis hamborgarhryggur eða
hangikjöt en bitarnir kannski eitt
og hálft upp í þrjú eða fjögur kíló
og sumir vilja hugsanlega ekki
fyrirfram völdu tegundina í aðal-
réttinn. Þetta þarf aðeins um-
hugsunar við. Svo fæst eðalkaffi
hjá Kaffifélaginu hér við hliðina
sem ég mæli hiklaust með í
körfurnar. Skólavörðustígurinn
hefur sannað sig sem frábær
verslunargata og samvinnan
skiptir öllu máli.“
„Mörg fyrirtæki eru
farin að gefa körfurn
ar viku fyrir jólin.
Þá er hugmyndin að
gefa fólki kost á að
njóta góðgætisins á
aðventunni.“
Ostabúðinni við Skólavörðustíg.
Gjafakörfurnar eru sígild og
skemmtileg jólagjöf.
Í stuttu máli