Frjáls verslun - 01.09.2012, Page 17
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 17
Í stuttu máli
„Skyndimenntun“
í HáSkólum landSinS
Stolið fyrir
Sex milljarða á ári
Ótrúlegar
gunnarS
43 þúSund í jÓlagjafir
E
ru háskólar að verða skyndbita staðir? Er boðið upp á skyndimenntun
í háskólum landsins? Það er að minnsta kosti skoðun Guðmundar
Ævars Oddssonar, doktorskandídats við Missouriháskóla í Bandaríkj
un um. Hann hélt þessu fram í viðtali við Morgunblað ið og sagði að
íslenskir háskólar stefndu frá því að vera þekkingarsamfélög yfir í að
verða „skyndimenntunarstaðir“. Hann segir að undirrótin að þessu sé ofuráhersla
á hagræðingu og vöruvæðingu háskólmamenntunar. Athyglisverð kenning. Er
lögð of mikil áhersla á fjölda nemenda og þeim boðið upp á of mikla hraðsuðu?
Það er nú það!.
Í
bók Svavars Gestssonar Hreint út sagt segir frá
ótrúlegum stjórnarmyndunarviðræðum Stein-
gríms Hermannssonar og Svavars Gestssonar
við Gunnar Thoroddsen þar sem unnið var að
gerð málefnasamnings ríkisstjórnar Gunnars sem
var við völd frá 8. febrúar 1980 til 26. maí 1983: „Við
Steingrímur spurðum Gunnar um málefnin á einum af
fyrstu fundum okkar. Þegar Gunnar svaraði tók hann
sér langan umhugsunarfrest og talaði hægt. Hann
var svo ábúðarmikill að ég var sannfærður um að nú
loksins kæmu kröfurnar sem hann vildi halda á lofti:
fleiri álver og stækkun herstöðvarinnar “ eða hvað?
„Sannleikurinn er sá,“ sagði Gunnar, „að það eru eink
um tvö mál sem ég ber fyrir brjósti.“ Við Steingrímur
sátum eins og drengir á skólabekk tilbúnir með blað
og blýant að skrifa niður boðskapinn: „Sannleikurinn
er sá, að það eru einkum tvö mál sem ég vil leggja
áherslu á. Það er í fyrsta lagi“ „ og það mátti heyra
saumnál detta “ ég var löngu hættur að anda: „Það
er í fyrsta lagi að ég hefði talið nauðsynlegt að flytja
skipaviðgerðir inn í landið.“ Ég reyndi að fela það hvað
ég var feginn og skrifaði skipaviðgerðir inn í landið
en beið jafnframt spenntur, að ekki sé meira sagt,
eftir framhaldinu: „Í annan stað,“ hélt Gunnar áfram
með nýja og enn listrænni pásu, „í annan stað,“ og nú
kemur það: „Í annan stað teldi ég að kanna ætti hvort
ekki er unnt að flytja flugvélaviðgerðir inn í landið.“
Ég reyndi að láta á engu bera og forðaðist að líta á
Steingrím Hermannsson meðan ég skrifaði samvisku
samlega: „Flugvélaviðgerðir inn í landið.“ Það voru
léttstígir menn sem töltu niður tröppurnar á Víðimel eftir
þetta samtal.“ Rannsóknarsetur verslunarinnar hefur metið horfurnar í jólaversluninni í
ár og áætlar að hún aukist um 7% frá
síðustu jólum og að raunaukningin sé
aðeins um 2,5%. Áætlað er að heildar
veltan í smásöluverslun í nóvember og
desember verði tæplega 67 milljarðar
króna án virðisaukaskatts. Jafnframt að
hver Íslendingur eyði að meðaltali um
43 þúsund krónum til jólagjafa. Sérstök
nefnd komst að þeirri niðurstöðu að
jólagjöfin í ár verði íslensk tónlist.
„Sannleikurinn er
sá,“ sagði Gunnar,
„að það eru eink
um tvö mál sem ég
ber fyrir brjósti.“
kröfur