Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2012, Síða 17

Frjáls verslun - 01.09.2012, Síða 17
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 17 Í stuttu máli „Skyndimenntun“ í HáSkólum landSinS Stolið fyrir Sex milljarða á ári Ótrúlegar gunnarS 43 þúSund í jÓlagjafir E ru háskólar að verða skyndbita staðir? Er boðið upp á skyndimenntun í háskólum landsins? Það er að minnsta kosti skoðun Guðmundar Ævars Oddssonar, doktorskandídats við Missouri­háskóla í Bandaríkj­ un um. Hann hélt þessu fram í viðtali við Morgunblað ið og sagði að íslenskir háskólar stefndu frá því að vera þekkingarsamfélög yfir í að verða „skyndimenntunarstaðir“. Hann segir að undirrótin að þessu sé ofuráhersla á hagræðingu og vöruvæðingu háskólmamenntunar. Athyglisverð kenning. Er lögð of mikil áhersla á fjölda nemenda og þeim boðið upp á of mikla hraðsuðu? Það er nú það!. Í bók Svavars Gestssonar Hreint út sagt segir frá ótrúlegum stjórnarmyndunarviðræðum Stein- gríms Hermannssonar og Svavars Gestssonar við Gunnar Thoroddsen þar sem unnið var að gerð málefnasamnings ríkisstjórnar Gunnars sem var við völd frá 8. febrúar 1980 til 26. maí 1983: „Við Steingrímur spurðum Gunnar um málefnin á einum af fyrstu fundum okkar. Þegar Gunnar svaraði tók hann sér langan umhugsunarfrest og talaði hægt. Hann var svo ábúðarmikill að ég var sannfærður um að nú loksins kæmu kröfurnar sem hann vildi halda á lofti: fleiri álver og stækkun herstöðvarinnar “ eða hvað? „Sannleikurinn er sá,“ sagði Gunnar, „að það eru eink­ um tvö mál sem ég ber fyrir brjósti.“ Við Steingrímur sátum eins og drengir á skólabekk tilbúnir með blað og blýant að skrifa niður boðskapinn: „Sannleikurinn er sá, að það eru einkum tvö mál sem ég vil leggja áherslu á. Það er í fyrsta lagi“ „ og það mátti heyra saumnál detta “ ég var löngu hættur að anda: „Það er í fyrsta lagi að ég hefði talið nauðsynlegt að flytja skipaviðgerðir inn í landið.“ Ég reyndi að fela það hvað ég var feginn og skrifaði skipaviðgerðir inn í landið en beið jafnframt spenntur, að ekki sé meira sagt, eftir framhaldinu: „Í annan stað,“ hélt Gunnar áfram með nýja og enn listrænni pásu, „í annan stað,“ og nú kemur það: „Í annan stað teldi ég að kanna ætti hvort ekki er unnt að flytja flugvélaviðgerðir inn í landið.“ Ég reyndi að láta á engu bera og forðaðist að líta á Steingrím Hermannsson meðan ég skrifaði samvisku­ samlega: „Flugvélaviðgerðir inn í landið.“ Það voru léttstígir menn sem töltu niður tröppurnar á Víðimel eftir þetta samtal.“ Rannsóknarsetur verslunarinnar hefur metið horfurnar í jólaversluninni í ár og áætlar að hún aukist um 7% frá síðustu jólum og að raunaukningin sé aðeins um 2,5%. Áætlað er að heildar­ veltan í smásöluverslun í nóvember og desember verði tæplega 67 milljarðar króna án virðisaukaskatts. Jafnframt að hver Íslendingur eyði að meðaltali um 43 þúsund krónum til jólagjafa. Sérstök nefnd komst að þeirri niðurstöðu að jólagjöfin í ár verði íslensk tónlist. „Sannleikurinn er sá,“ sagði Gunnar, „að það eru eink­ um tvö mál sem ég ber fyrir brjósti.“ kröfur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.