Frjáls verslun - 01.09.2012, Síða 18
18 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
Eigið fé heimilanna í húsnæði minnk aði um ríflega 340 milljarða króna á
árunum 2007 til 2011. Á sama tíma jukust skuldirnar um 420 milljarða
króna. Útlit fyrir áframhaldandi 5 til 6% verðbólgu næstu árin og enn
meiri eignabruna heimila vegna verðtryggingarinnar. Seðlabankinn
bregst við með hækkun stýrivaxta sem hefur aukið fjármagnskostn
að heimila um þrjá milljarða króna á aðeins ári.
L
íkja má eignabruna heimila við
náttúruhamfarir. Það er sama
hvað hver segir, vandi þeirra sem
keyptu húsnæði á bóluárunum
fyrir hrun er þjóðfélagsvandi sem
líkja má við náttúruhamfarir og að þúsundir
fjölskyldna sem keyptu íbúðir á hæsta verði
fyrir hrun búi á hamfarasvæðum.
Fjárhagsstaða þeirra sem keyptu íbúðir á
árunum fyrir hrun er í rúst. Eigið fé heimila í
hús næði minnkaði um ríflega 340 milljarða
króna á árunum 2007 til 2011 og skuldirnar
jukust á sama tíma um 420 milljarða króna
vegna verðtryggðra lána í mestu kreppu
lýð veldisins.
Slæm eiginfjárstaða húseigenda þeirra,
sem keyptu íbúðir á bólu árunum, skýrist af
háu íbúðaverði á árunum 20058 og háum
verð tryggð um lánum til að kaupa þessar
íbúðir.
Færa má rök fyrir því að greiðsluvandi
margra væri mjög mikill þótt ekki hefði komið
til hruns ins – og jafnvel að þúsundir fjöl
skyldna ættu í erfiðleikum við þær aðstæður.
Vandinn er tvenns konar; greiðsluvandi
af stökkbreyttum, verðtryggðum lánum og
eigin fjárvanda. Eigið féð er svo til gufað
upp – það fór að vísu til lánardrottna – og
fjöl skyldur geta sig hvergi hreyft.
Þegar neyðarlögin voru sett haustið 2008
hefði verið affærasælast að frysta vísitölu
neyslu verðs í öllum lánasamningum – eða að
minnsta kosti setja þak á hana, t.d. að hún
gæti í mesta lagi hækkað um 2%.
Það segir sig sjálft að einhliða verðtrygging
gengur ekki upp í mikilli verðbólgu. Gífurleg
ar eignatilfærslur verða frá lántakendum til
þeirra sem lána – og eftir standa þúsundir
fjölskyldna með fjárhaginn í rúst.
Vandi lántakenda er núna sá sami og var
hjá lánardrottnum fyrir tíma verðtrygg ing ar
innar þegar lántakendur högnuðust á óða
verðbólgu. Á sama tíma hafa þeir, sem tóku
gengisbundin lán hjá bönkunum í út
lán a bólunni, fengið nokkra hæstaréttardóma
sér í hag þannig að stökkbreytingin hefur
gengið til baka.
Frá upphafi árs 2008 hefur lánskjaravísi
talan hækkað um rúmlega 42%. Margir hafa
orðið að bæta vöxtum ofan á höfuðstólinn
vegna greiðsluerfiðleika og lánin hafa hækk
að enn meira. Laun hafa ekki hækkað svona
mikið. Launavísitala hefur að vísu hækkað
um 33%, en á höfuðborgarsvæðinu hafa laun
hækkað minna. Margir þurftu að taka á sig
kjaraskerðingu í upphafi kreppunnar með 10
til 15% launalækkun, yfirvinna minnkaði og
atvinnuleysi jókst.
FjórðuNgur
heimila skuldar ekki
Gróft á litið má áætla að um fjórðungur
Í stuttu máli
Er náttúruhamfarir
Eignabruni
heimila
TexTi: jÓn G. HauKsson