Frjáls verslun - 01.09.2012, Side 27
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 27
Enginn hefur allt. Hver er þá besti síminn? Það fer alveg eftir því hvað þú vilt gera með hann, hvað
þér þykir mikilvægast. Ef þú ert
heimsborgari skaltu fá þér nýja
Windowssímann. Nokia 920; sá
sími hefur flest tíðnisvið, plús NFC,
virkar alls staðar, frá Jeríkó til Jap
ans. Til að senda póst og skrifa
hefur iPhone 5 vinninginn. Ef þú
vilt góðan skjá þá er það Nokia
920; hann er ekki bara með besta
og fljótasta skjáinn heldur er hann
með eina snertiskjárinn núna sem
hægt er að nota fingravettlinga
við. Frábært í vetur.
Ef hraði er það sem skiptir máli
þá er það Samsung Galaxy SIII;
hann er með stærsta örgjörvann.
Ef það er stórt og mikið minni
fyrir myndir og tónlist þá hefur
Nokia 808 PV vinninginn. Hann
er með bestu myndavélina og
myndbands upptökutækið – og
hljóðið er meira að segja tekið
upp í víðóma og Dolby. Ef þú
leggur upp úr korti, leiðsögn og
gps hafa Nokiasímarnir vinn
ing inn, enda á Nokia stærsta
kortafyrirtæki veraldar, Navteq.
Hljómgæði? Þá er það
iPhone 5 og Nokia 808
PV. Samsung Galaxy
SIII er langbestur
til að njóta
hreyfimynda,
enda með
stóran
og flottan
skjá.
Hann og
iPhone 5
eru snjallastir til
að vafra á verald
arvefnum en póstforrit
iPhone þykir það besta.
Ef smáforritin, svokölluð
öpp, eru málið þá hefur iPhone
5 vinn inginn. Samsungsíminn
kemur þar fast á hælana en
Nokiasímarnir eru hins vegar ekki
í sömu deild. Samsung er með
öflugustu rafhlöðuna og stærsta
sýrikerfið, Android frá Google.
Nú er bara að velja og hafna.
Allir þessir símar eru fram
úr skar andi. Sækist þú
eftir frábærri myndavél,
mörg um smáforritum
eða besta skján
um? Enginn
hef ur allt.
Þóranna Jónsdóttir segir að undirnefndir séu eitt af því sem gjarnan er lagt til í leiðbeiningum um góða
stjórnarhætti og að til séu þrjár
tegundir af undirnefndum: Endur-
skoðunarnefnd, starfskjaranefnd
og valnefnd.
„Það er mikilvægt að hafa í
huga að upprunaleg þörf fyrir
þess ar nefndir myndaðist í lönd
um þar sem stjórnir eru aðeins
öðru vísi skipaðar en á Íslandi;
það er að segja þar sem bæði
utan aðkomandi stjórnarmenn
og framkvæmdastjórar fyrirtækj
anna sitja í stjórnum þeirra. Þegar
þannig háttar er mikilvægt að
það séu einungis þeir sem eru
utanaðkomandi og þar af leiðandi
óhlutdrægir sem fara með skoðun
á ársreikningum og fjárreiðum
félagsins sem er það sem endur-
skoðunarnefndin gerir – að það
séu bara þeir sem eru utanaðkom
andi sem gera ráðstafanir um
starfskjör stjórnenda en ekki
stjórn endurnir sjálfir og því getur
starfs kjaranefnd skipt máli.
Á Íslandi, þar sem eru mest
megnis utanaðkomandi stjórnar-
menn, má alveg setja spurningar
merki við það hvort undirnefndir
séu mikilvægar og hvernig þær
bæta starfsemi stjórnanna. Þannig
ætti starfskjaranefnd að vera óþörf
þar sem stjórnarmenn eru utan
aðkom andi og óháðir stjórnend
um. Endur skoðunarnefnd mætti
rétt læta ef stjórn sér ástæðu til að
vanda sérstaklega til verka við
skoðun á reikningshaldi félagsins,
en það má aldrei gleymast að
undirnefndir eru alltaf á forræði
og ábyrgð stjórnarinnar sem
heildar.“
Undirnefndir í öðrum löndum
DR. ÞóRanna jónsDóTTiR
– framkvæmdastjóri rekstrar og stjórnunar hjá Háskólanum í Reykjavík
PÁll sTeFÁnsson
– ljósmyndari
STJÓRNUNAR-
HÆTTIR
GRÆJUR
Snjallasti snjallsíminn?
BÆTTU SMÁ DENVER Í LÍF ÞITT
Verð frá 44.900 kr.
Þessi ferð gefur frá 2.700 til 8.100 Vildarpunkta aðra leiðina.
+ Bókaðu núna á icelandair.is
„Þannig ætti
starfs kjaranefnd
að vera óþörf þar
sem stjórnarmenn
eru utan aðkom
andi og óháðir.“