Frjáls verslun - 01.09.2012, Page 36
36 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
nefnt við Hönnu Birnu að það sé ekki í anda samstöðustjórnmála
að fara í formannsslag rétt fyrir kosningar.
Í ljósi reynslunnar hefur Hanna Birna sjálfsagt talið brýnt að lýsa
nærri strax yfir stuðningi við Bjarna eftir að ljóst var að hún hafði
feng ið glæsi leg an stuðn ing í prófkjörinu í Reykjavík. Bjarni hlýtur
að kunna að meta það við hana og gefa henni svigrúm í samræmi
við sterka stöðu hennar meðal kjósenda Sjálfstæðis flokksins.
almenningur óþreyjufullur eftir lausnum
En varðandi Sjálfstæðisflokkinn og stöðu hans í næstu kosningum
er það að segja að blikur á lofti í efnahagsmálum heimsins –
sem og Íslands – gera að verkum að almenningur er býsna
óþreyjufullur eftir lausn um. Eldra fólk hefur áhyggjur af því að
ungt og efnilegt fólk sé að flytja úr landi og komi ekki aftur.
Yngra fólkið er sligað af skuldum og lifir af launum sem tæpast
duga til að standa undir fyrri væntingum um lífskjör. Þá er
skort ur á gjaldeyri, sá gamli vandi, enn á ný eitt helsta efnahags
vanda málið. Sjálf stæðis flokk urinn boðar að þennan vanda megi
leysa með því að auka fjárfestingu til að skapa störf og meiri
út flutningstekjur. Það kann þó að reynast hæg ara sagt en gert í
umhverfi gjaldeyrishafta.
Kjósendur eru líklegir til að vilja heyra Sjálfstæðisflokkinn útfæra
betur hugmyndir um lausnir í efnahagsmálum og um stöðu
Íslands í Evrópu. Samkvæmt skoðanakönnunum núna virðast
marg ir kjós endur vilja gefa Sjálfstæðisflokknum nýtt tækifæri en
þó getur brugðið til beggja vona; flokkurinn kemst ekki til áhrifa
nema aðrir þing flokkar vilji starfa með honum í ríkisstjórn. Það þurfa
talsmenn hans að hafa í huga þegar þeir leggja til atlögu við stjórnar
flokkana í kosn ingabaráttunni.
SAMFYLKINGIN
Framboðslistar Samfylkingarinnar liggja nú fyrir. Stærsta breytingin hjá þeim er sú að Jóhanna Sigurðar dóttir hverf ur af þingi og hættir sem formaður. Nýr for maður verður kosinn í póstkosningu fyrir næsta landsfund sem haldinn verður í febrúar. Nýverið gaf Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kost á sér í embættið en
um hríð átti Árni Páll Árnason, fyrr verandi ráðherra, einn sviðið sem
formannsefni. Ekki er talið líklegt að fleiri eigi eftir að bjóða sig fram.
Formannskosningarnar munu ekki bara snúast um persónulega
kosti frambjóðendanna heldur er líka tekist á um það innan Sam
fylkingarinnar hvort flokkurinn eigi að vera vinstri eða miðju flokkur.
Til dæmis hefur Árni Páll lýst þeirri skoðun að Samfylkingin eigi að
ganga óbundin til kosninga en ekki festa sig í kosningabandalagi
við VG. Það er í nokkurri andstöðu við skoðun Jóhönnu sem hefur
sagt að Samfylkingin eigi bara að vera í stjórnar samstarfi sem tryggi
vinstristjórn í landinu. Guðbjartur tekur undir þetta sjónarmið
Jóhönnu enda er talið að hann njóti stuðnings hennar sem og margra
forystumanna Samfylkingarinnar sem standa nærri Jóhönnu. Árni
Páll skilgreinir Samfylkinguna sem frjálslyndan miðjuflokk sem
standi vörð um velferðarkerfið en í því orðalagi felst stuðningur við
frjálst markaðshagkerfi. Aftur á móti hefur Jóhanna ítrekað lýst yfir
andúð sinni á íhaldinu og sérhagsmunaöflunum en þau orð notar
fólk af vinstri vængnum gjarnan um hagsmuni atvinnulífsins sem
það telur að eigi frekar að stjórnast af félagslegum sjónarmiðum en
hagnaðarvoninni.
Árni Páll á það líka sameiginlegt með Hönnu Birnu Kristjáns
dótt ur að tala fyrir samvinnustjórnmálum á þingi og vill auka
samráð við hagsmunaaðila til að greiða fyrir lausn deilumála. Það
sjónar mið á sér hins vegar takmarkaðan stuðning meðal þeirra
stjórnarliða sem vilja gagngerar breytingar á samfélaginu. Þeir telja
að niðurstaða kosninga sem tryggi ríkisstjórn meirihluta á þingi feli
í sér umboð til að breyta í samræmi við stefnu stjórnarflokkanna og
án samráðs við hagsmunaaðila eða þá sem eru í minnihluta. Þetta
fólk er ekki líklegt til að styðja Árna Pál í formannskosningunum
heldur sameinast um Guðbjart í þeirri von að hann standi vörð um
vinstri áherslurnar í stefnu flokksins.
forsíðuefni
„Blikur eru á lofti í efnahags
málum heimsins – sem og Ís
lands – sem gerir að verkum
að almenningur er býsna
óþreyju fullur eftir lausnum.
Eldra fólk hefur áhyggjur af
því að ungt og efnilegt fólk sé
að flytja úr landi og komi
ekki aftur.“
Árni Páll Árnason. Sterk staða í formannskjöri eftir sigurinn í Kragan
um. En núverandi forysta Samfylkingar virðist ekki styðja hann.