Frjáls verslun - 01.09.2012, Síða 40
40 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
Oft er talað um að fyrstu 90100 dagarnir í starfi stjórn enda skeri úr um hvort þeir muni verða farsælir í starfi eða ekki. Þetta er
sá tími sem gefst til að sanna sig í nýjum
verk efnum eða á nýjum vettvangi. Sagan
geymir fjölmörg dæmi um þetta og ritaðar
hafa verið ótal bækur um það hvernig
stjórn endur eiga að bera sig að við þessar
aðstæður.
Fyrstu 100 dagar Roosevelts
Árið 1932 atti Franklin D. Roosevelt kappi
við Herbert Hoover í forsetakosningum
í Bandaríkjunum. Bandaríkin gengu á
þess um tíma í gegnum mikla lægð í kjölfar
kreppunnar miklu 1929. Þriðjungur þjóðar
innar var án atvinnu og erfitt hafði reynst
að fá hjól atvinnulífsins til að snúast á ný.
Roosevelt gekk fram í kosningabaráttunni
með skýr markmið sem hann nefndi
Nýja samninginn eða The New Deal og
hafði betur. Eftir að Roosevelt komst til
valda hófst hann strax handa við að koma
stefnumálum sínum í framkvæmd. Á
tíma bilinu 8. mars til 16. júní tókst honum
ásamt sínu fólki að koma 15 mikilvægum
stefnumálum gegnum þingið sem lögðu
grunn að endurreisn efnahagslífsins. Síðar
hefur verið vitnað til þessa tímabils sem
fyrstu 100 daganna (First 100 Days). Þótt
Roosevelt ætti eftir að vinna stærri sigra
síðar á ferlinum hafa menn metið það svo
að þessi fyrstu skref hafi markað upphafið
að áframhaldandi velgengni hans.
Samræmi milli orða og athafna skapar
traust og trúverðugleika sem auðveldar
mönnum að fá fólk til fylgis við sig.
Það sem skiptir máli
Fjölmargar bækur hafa verið ritaðar um
það hvernig stjórnendur eiga að bera
sig að fyrstu 90100 dagana, eða fyrstu
þrjá mánuðina í nýju hlutverki, vilji þeir
ná árangri. Einnig er að finna ógrynni
upp lýsinga í greinum á netinu um þetta
málefni.
Michaels Watkins, sem skrifaði bókina
The First 90 Days, er á þeirri skoðun að
það sé ekki einungis hæfni stjórnandans
sem ræður úrslitum um hvort honum tekst
að ná árangri eða ekki. Mistökin felast
einnig í því að menn meta ekki stöðuna eða
umhverfið rétt eða þá skortir sveigjanleika
til að bregðast rétt við aðstæðum. Verkefni
eru ólík og aðstæður breytilegar og því
verður að meta aðstæður og gera nýjar
áætlanir í hvert sinn. Watkins ráðleggur
stjórnendum að huga að 10 mikilvægum
atriðum vilji þeir auka líkur á góðum
árangri. Flestar þær uppskriftir sem ég
hef rekist á í þessu sambandi ber að sama
brunni og fela í sér svipaðar áherslur.
10
mikilvæg atriði
1. Skiptu um hlutverk – Það getur
verið mikil áskorun að hætta í
fyrra starfinu og þeim verkefnum
sem því fylgdu og stíga inn í
það nýja, sérstaklega ef staðan er
innan sama fyrirtækis. Einnig er
ekki sjálfgefið að stjórnendur átti
sig á því að aðferðir sem gáfust
vel í fyrra starfi eru ekki endilega
lykillinn að árangri á nýjum
vett vangi. Það er því mikilvægt
að endurmeta aðstæður og gera
áætlanir og hegða sér í samræmi
við aðstæður á nýjum stað.
2. Lærðu hratt – Það er mikilvægt
að læra eins hratt og kostur er um
allt sem skiptir máli um fyrir tæk ið,
markaði, vörurnar, tækn ina, kerfin
og skipulagið. En líka um fyrir
tækis menninguna og pólitíkina
í fyrirtækinu og í kring um það.
Í þessu felst að þú þarft að gefa
Sigrún Þorleifsdóttir
stjórnunarráðgjafi hjá attentus –
mannauði og ráðgjöf ehf.
Fyrstu 100 dagarnir
stjórnun
Stjórnendur á tímamótum:
Það eru tímamót í lífi allra stjórnenda þegar þeir taka við nýju starfi,
nýjum verkefnum eða þegar nýtt ár gengur í garð. Slík tíma mót
fela í sér tækifæri. Oftar en ekki byggist starfsframi stjórn andans á
því hvernig haldið er á spilum við þessar aðstæður og hvaða árang-
ur næst. En hvernig geta stjórnendur undirbúið sig og aukið líkur á
góðum árangri?
Franklin D. Roosevelt. Fyrstu 100 dagarnir.