Frjáls verslun - 01.09.2012, Page 41
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 41
þér tíma til að hitta og ræða við
stjórn endur og starfsmenn. Yfir þig
hellist mikið magn upplýsinga og
lykilatriði er að ná að greina hvað
skiptir máli og tileinka sér það.
3. Rannsakaðu aðstæður – Það er
ekki til ein uppskrift sem tryggir
árangur. Það er nauðsynlegt að
rannsaka aðstæður í hverju til
felli fyrir sig og klæðskerasníða
lausnina í takt við tækifæri og
ógnanir. Það getur verið varasamt
að koma inn með fyrirfram
ákveð ið plan. Gefðu þér tíma til
að kanna og meta aðstæður og
aðlagast ef þörf krefur.
4. Smásigrar eru mikilvægir –
Smásigrar auka traust og skapa
trúverðugleika. Þeir auðvelda
þér að fá fólk til fylgis við þig og
hugmyndir þínar þar sem fólk
upplifir að góðir hlutir séu að
gerast. Þetta getur reynst nauð syn
legt til að undirbúna jarð veg inn
fyrir viðameiri breytingar. Það
er því mikilvægt að grípa strax
tækifæri til að vinna að úrbótum,
með hagræðingu eða með því að
auka tekjur eða draga úr kostnaði
og gera árangurinn sýnilegan.
5. Tryggðu þér stuðning – það er
mikilvægara en nokkuð annað að
yfirmenn þínir, stjórn, forstjóri eða
framkvæmdastjóri, séu með þér
í liði og að þú njótir stuðnings.
Væntingar þeirra til þín þurfa því
að vera alveg skýrar og áform þín
þurfa að vera þeim ljós. Þetta þýðir
að það er nauðsynlegt fyrir þig
að hafa greiðan aðgang að þeim
og eiga mörg og góð samtöl um
aðstæðurnar, væntingar þeirra,
leiðir og aðföng. Eins þarftu stuðn
ing varðandi persónulega þróun
ef til dæmis þú vilt sækja þér við
bótarþekkingu eða þjálfun.
6. Vertu í takt og samkvæmur
sjálfum þér – Því meiri ábyrgð
sem þér er falin í fyrirtækinu
því meiri ábyrgð berð þú á því
að samræmi sé í framtíðarsýn,
stefnu, skipulagi, ferlum og hæfni
starfsfólks. Ef ljóst er að gera þarf
breytingar á einhverjum þessara
þátta til að ná árangri er nauð
synlegt að horfast í augu við það,
ræða um það opinskátt og taka
á málum, jafnvel þó að það geti
reynst mikil áskorun.
7. Byggðu upp teymið – Ef þú ert
að taka við teymi sem fyrir er þá
er nauðsynlegt að vega og meta
bæði liðsmenn og skipulag. Það
kann að vera nauðsynlegt að gera
breytingar í takt við áherslur og
markmið. Hæfni þín til að velja
rétta fólkið er mikilvæg og hversu
hratt þú horfist í augu við erfiðar
ákvarðanir varðandi mönnun
og gerir breytingar skiptir miklu
máli. Uppbyggingu teymis þarf að
skipuleggja og vinna kerfisbundið
og stefnumiðað.
8. Sæktu þér liðsauka – Árangur
þinn mun ekki eingöngu ráðast
af því hversu vel þér tekst að
vinna með þínum yfir og undir
mönnum. Stuðningur annars
starfsfólks í fyrirtækinu og aðila
utan fyrirtækisins er einnig mjög
mikilvægur. Það er því mikil
vægt að greina sem fyrst hvar er
mikilvægt fyrir þig að eiga stuðn
ingsmenn og liðsauka. Leggja þarf
áherslu á að byggja upp og rækta
tengsl og samband við þessa aðila
með góðum samskiptum.
9. Haltu jafnvægi – Vegna álags
ins sem fylgir því að vera í
stjórnunarstöðu, takast á við
ný verkefni og gera breytingar
er nauðsynlegt að vera í góðu
andlegu jafnvægi. Hættan á
að gera mistök, missa yfirsýn,
einangrast og taka slæmar ákvarð
anir eykst ef andleg og líkamleg
heilsa er ekki góð. Það er því
mikil vægt að huga að eigin heilsu
og gefa sér reglulega tíma fyrir
fjölskyldu og vini, til að hreyfa sig,
borða hollan mat og hvíla sig, þrátt
fyrir að álag sé mikið og lítill tími
aflögu.
10. Hugsaðu um aðra – Það er
líka mikilvægt að hugsa um
fólkið í kringum sig. Hvernig
getur þú hjálpað því að vaxa og
ná sínum besta árangri? Hvort
sem það eru undirmenn, yfir
menn eða jafningjar. Því meiri
árangri sem þau ná, því meiri
verður árangur þinn. Allt hefur
þetta keðjuverkandi áhrif.
Varð andi góðan árangur þá
er það tvímælalaust eitt af því
áhrifamesta, þegar upp er staðið,
hvernig þér tekst að virkja fólkið
með þér.
Hægara sagt en gert
Það er ekki margt á þessum lista sem
kem ur á óvart. Það sem kemur á óvart
er hversu fáum tekst að fylgja þessum
einföldu leiðbeiningum þegar á hólminn
er komið. En hvers vegna? Ég er sammála
þeim sem halda því fram að við horfum
of sjaldan í spegilinn. Afleiðingin er sú að
við þekkjum okkur ekki sérlega vel. Eigin
styrkleika og veikleika og hvaða áhrif okk
ar eigin hæfni hefur á árangur. Athyglin er
á fólkinu í kringum okkur, yfirmönnum,
undirmönnum og jafningjum, jafnvel
fyrrverandi stjórnendum eða aðstæðum í
umhverfinu. Okkar eigin frammistaða er
ekki það sem fær mesta athygli.
Með því að taka okkur tíma reglulega,
undirbúa okkur betur, vega og meta stöð
ugt eigin frammistöðu, draga lærdóm af
því sem er að gerast og horfa markvisst
fram á veginn getum við aukið líkur á
góð um árangri. Það vita allir að íþróttafólk
dregst aftur úr ef það æfir ekki. Mörgum
stjórnendum reynist vel að nýta sér aðstoð
stjórnendaþjálfara (Executive Coach) eða
leiðbeinanda (Mentor) við þessar aðstæður
og mörg erlend stórfyrirtæki gera það að
skilyrði þegar nýir stjórnendur taka við
störfum.
Það væri þó bæði ósanngjarnt og ósatt
að fullyrða að þeir sem ekki nýta fyrstu
100 dagana vel eigi ekki möguleika á að ná
góðum árangri síðar. Mistök eru oft lykill
inn að mikilvægum lærdómi. Mörg um sem
farið hafa illa af stað hefur tekist að rétta
úr kútnum. Því fylgir þó óneitanlega meiri
áhætta og það getur tekið lengri tíma að
koma málum áfram. Það leikur því enginn
vafi á að góð byrjun gefur góða forgjöf,
gerir eftirleikinn auðveldari og minni tími
fer til spillis. Því ættu ekki bara stjórnendur
heldur líka stjórnmálamenn að huga að
þessu um þessar mundir.
BæKuR um FysTu 90-100
Dagana:
the new Leader’s 100-day action
Plan. Höfundur: George B.
Bradt o.fl.
the first 90 days: Critical success
strategies for new Leaders at all
Levels. Höfundur: Michael Watkins.
Your first 100 days in a new
executive job: Powerful first steps
on the Path to Greatness.
Höfundur: Robert Hargrove.
Your first 100 days: How to make
maxim um impact in your new
leadership role. Höfundur: Niamh
O’Keeffe.