Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 47
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 47
mynd uðust biðraðir við skrifstofu LÍÚ
þar sem menn biðu næturlangt til þess
að tryggja skipi sínu siglingu. Flutningur
á ísuðum fiski með gámum jókst einnig
hröðum skrefum og verð féll reglulega á
uppboðsmörkuðunum. Framan af voru
engin höft á útflutningi með gámum en
síðan gerði t.d. utanríkisráðuneytið til raun
til að takmarka útflutninginn. Ís lenskir
fiskverkendur og fiskverkafólk mót mæltu
þessum aukna útflutningi auk þess sem
sjómönnum og útgerðarmönnum sjálf
um þótti nóg um. Að lokum var Afla
miðl un stofnuð árið 1990 að frumkvæði
utanríkisráðherra. Hlutverk Aflamiðlunar
var að hafa stjórn á og takmarka útflutning
á ísuðum fiski með fiskiskipum og í gámum.
Í stjórn Aflamiðlunar voru skipaðir fulltrúar
LÍÚ, Samtaka fiskvinnslustöðva, ASÍ og
sjómanna. Ég var ráðinn framkvæmdastjóri
Aflamiðlunar og gegndi því starfi í fjögur ár.
Þetta var býsna líflegt starf og kynntist ég að
sjálfsögðu mörgum í sjávarútvegi á þessum
tíma. Það tókst, að ég held, merkilega vel að
hafa hemil á útflutningnum. Jafnumdeild
og Aflamiðlun var, þá reis ekki dómsmál
vegna hennar fyrr en 1994. Í kjölfarið var
Aflamiðlun dæmd ólögleg vegna þess að
utanríkisráðuneytinu var óheimilt að fram
selja valdið sem fólst í að takmarka leyfi til
útflutnings.“
togaraútgerð sem gekk ekki
Vilhjálmur segir að sér hafi fundist kominn
tími til að takast á við ný verkefni vorið
1994. Fjölskyldan dvaldi um sumarið í
Bremer haven og sá Vilhjálmur þá um rekst
ur Isey GMBH fyrir Samúel G. Hreins son,
en Isey var stærsti innflytjandi ísaðs fisks í
Þýskalandi.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, 59 ára forstjóri HB
Granda, byrjaði að vinna í fiskverkun 11 ára.
Hann var framkvæmdastjóri Tanga á Vopna
firði þegar það fyrirtæki var sameinað HB
Granda fyrir átta árum.
Forstjóri HB Granda
Nafn: Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Starf: Forstjóri HB Granda.
Fæddur: 14. desember 1953.
Maki: Steinunn Ósk Guðmundsdóttir,
þroskaþjálfi og sérkennari.
Börn: Vilhjálmur Ingi, heilsunuddari og íþrótta
fræðingur, Anna, nemandi við MH. Fósturbörn Vil
hjálms: Guðmundur Arnar og Fanney Þórðarbörn.
Foreldrar: Vilhjálmur K. Sigurðsson og Sigríður
Vilhjálmsdóttir.
Menntun: Útgerðartækni frá Tækniskóla Íslands
og próf frá Stýrimannaskólanum og Verslunar
skólanum.