Frjáls verslun - 01.09.2012, Page 58
58 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
Evrópska fyrir tækja vik an var að þessu sinni tileinkuð frum kvöðlastarfi kvenna, þ.e. mikilvægi þess að konur stofni og reki fyrirtæki. Boðið var til ráðstefnu í Brussel
þar sem frumkvöðlar og fulltrúar ný sköp
unarfyrirtækja komu saman og ræddu
stuðn ingskerfi nýsköpunar og fjármögnun.
Mennta og menningarmálaráðherra ESB,
Androulla Vassiliou, setti ráðstefnuna og
sagði í ávarpi sínu að margt hefði unn
ist í réttindabaráttu kvenna. Stað reynd in
væri hins vegar sú að í öllum menningar
sam félögum væri konan yfirleitt sá aðili
sem bæri ábyrgð á rekstri heimilisins. Og
sá rekstur passaði oft illa við kröfur at
vinnulífsins. Þess vegna, sagði Vassiliou,
styð ur framkvæmdastjórn ESB aðgerðir sem
auð velda kvenfólki að taka fyrstu skrefin í
eigin atvinnurekstri.
Hún talaði einnig um efnahagslegt mikil
vægi þess að virkja frumkvöðlakraft kvenna.
Það ætti sérstaklega við nú þegar Evrópa
glímdi við mikinn efnahagsvanda og at
vinnu leysi. Vassilious sagði að 85% nýrra
starfa yrðu til í litlum eða meðalstórum
fyrir tækjum. Það væri því lykilatriði að hlúa
vel að öllu frumkvöðlastarfi.
hvers vegna að leggja áherslu á
frumkvöðlastarf kvenna?
Kvenkyns frumkvöðlar eru auðlind sem
enn hefur ekki verið nýtt til fulls. Tölurnar
segja allt sem segja þarf. Af þeim íbúum
Evrópu (EU25) sem eru sjálfstætt starfandi
í dag eru einungis 34,4% konur og hlutur
þeirra í sprotafyrirtækjum er 30%. Auðvelt
er að færa rök fyrir því að enn sé mikið til af
vannýttri frumkvöðlaorku í þessum hópi. Ef
tekst að virkja hana mun það leiða til aukins
hagvaxtar og fjölgunar starfa.
Rétt er að taka fram að undanfarin ár hefur
kvenkyns frumkvöðlum fjölgað umtalsvert.
Sem dæmi má nefna að árið 2000 voru kon
ur einungis 10% af sjálfstætt starfandi að
ilum á Kýpur. Tíu árum seinna var hlutfallið
komið upp í 30%.
hvað er til bragðs?
Fjörugar pallborðsumræður fóru fram um
hvernig hægt væri að veita kvenkyns frum
kvöðlum stuðning í skólakerfinu. Fulltrúar
Íslands í umræðunum voru þær Vilborg
Kristine Helen Falgren frá Háskólanum í Reykjavík var á ráðstefnunni.
Ráðstefnuhúsið í hjarta Brussel.
frumkvöðLar