Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 61
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 61
Vilborg einarsdóttir,
framkvæmdastjóri mentor ehf.
svanhildur pálsdóttir,
hótelstjóri Hótels Varmahlíðar.
Vilborg Einarsdóttir, fram-kvæmdastjóri og einn af eigendum Mentor, var talsmaður evrópsku
fyrirtækjavikunnar 2012 í Bruss el.
Viðskiptavinir fyrir tækisins eru
um þúsund skólar en Mentor er
starfandi í fimm löndum.
Vilborg sagði að Mentor væri
dæmi um lítið sprotafyrirtæki
sem yxi og dafnaði og yrði
al þjóðlegt fyrirtæki sem seldi
lausnir út um allan heim. Byrjað
var í einum skóla á Íslandi árið
1990, síðan sameinaðist Mentor
sænsku fyrirtæki árið 2007 og
bresku fyrirtæki 2012.
„Það er mikill kostur að byggja
upp fyrirtæki á Íslandi. Við er
um með stuðningsnet sem
hjálpar til við uppbygginguna,
endur greiddur þróunarkostn
aður skiptir miklu máli sem og
stuðningur til dæmis frá Ís
lands stofu, Samtökum iðnaðar
ins, Nýsköpunarmiðstöð og
Tækniþróunarsjóði.“
Vilborg sagði að það skipti miklu
máli í rekstrinum, og sér staklega
hjá frumkvöðlum, að hafa sterka
framtíðarsýn. Ef fram tíðarsýnin
væri fyrir hendi yrðu vandamálin
minni en ella.
„Það er líka áskorun okkar sem
erum frumkvöðlar og leiðtogar
að miðla framtíðarsýninni til
starfs manna, viðskiptavina og
um hverfisins. Við hjá Mentor
íhug um hvernig skólastarf verður
eftir fimm til sjö ár og hvað við
þurfum að gera í dag til þess að
verða tilbúin með þá tækni og
nýsköpun sem skólarnir þurfa til
að geta breytt námskrá sinni og
kennslufræði í takt við nýja tíma.
Við þurfum að huga að upp
byggingu frumkvöðlamenn ing ar
þannig að það verði eftir sókn ar
vert að verða frumkvöðull á Íslan-
di. Þá skiptir máli að hafa góðar
fyrirmyndir í atvinnulífinu þannig
að börnin okkar stígi fram og
segist vilja feta í þeirra fótspor.“
Svanhildur Pálsdóttir, hótelstjóri Hótels Varmahlíðar, fjallaði um það að vera „alþjóðafædd“.
Hún talaði um þetta hugtak (e.
born global) og sagði að um
væri að ræða lítil og meðalstór
fyrirtæki sem næðu miklum vexti
á erlendum mörkuðum burtséð
frá heimamarkaðnum. „Þessi
fyrirtæki líta á heiminn sem
eitt markaðssvæði; þau líta á
heimamarkað sem stuðning en
ekki sem „issue“ í sjálfu sér. Það
sem skiptir mestu máli í þessu
sambandi er að stjórnandinn
eða stofnandi fyrirtækisins er
þannig þenkjandi að hann lítur
á fyrirtækið sem alþjóðlegt
fyrirtæki; hann byggir það upp
með því markmiði að það verði
alþjóðlegt.“
Svanhildur sagði að heima
markaðurinn skipti Hótel
Varmahlíð og ferðaþjónustuna
talsvert miklu máli. 8590%
gesta væru þó erlend og sagðist
hún jú starfa á alþjóðlegum
markaði. „Ég starfa líka á stærri
heimamarkaði, sem er íslenski
ferðaskrifstofumarkaðurinn,
en fyrirtæki þar sjá að miklu
leyti um alþjóðleg samskipti fyrir
mína hönd. Til að ná í gegn á
alþjóðlegum markaði þurfum við
í ferðaþjónustunni að vera með
fæturna ansi djúpt í rótunum og
sérstöðunni.“
Skýr FRamTÍðaRsýn
mikilvæg
Að lítA á FyRiRTæKið
Sem Alþjóðlegt
„Það er mikill
kostur að byggja
upp fyrirtæki á
Íslandi.“
„Heimamarkaðurinn skiptir Hótel Varmahlíð
miklu máli, en 8590% gesta eru þó erlendir.“
Vilborg Einarsdóttir, framkvæmda
stjóri Mentor ehf.
Svanhildur Pálsdóttir, hótelstjóri Hótels Varmahlíðar.