Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 67
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 67
TexTi: KrisTinn jÓn arnarson Myndir: ýMsir
ÁHugaverðustu
græjurnar
Árið 2012 verður talið eitt það áhugaverðasta í tækniheimin-
um þegar fram líða stundir. Við segjum hér frá athyglisverð-
ustu græjunum og því markverðasta sem átti sér stað í fram-
þróun tækninnar og notumst m.a. við þær græjur sem PC
World tilnefndi fyrr á árinu.
Á
rið 2012 var stórt ár fyrir þrjú af
stærstu tæknifyrirtækjum heims,
Apple, Micro soft og Google.
Þetta var t.d. fyrsta árið eftir fráfall
Steves Jobs hjá Apple og því
ákveðinn vendipunktur í sögu fyrirtækisins.
Apple kom með fjölda nýrra vara sem flestar
hafa fengið góðar viðtökur á árinu og átt sinn
þátt í að gera Apple að verð mæt asta fyrirtæki
heims miðað við markaðsvirði.
Microsoft gaf út nýtt stýrikerfi, Windows 8,
í þremur mismun andi útgáfum – fyrir tölvur,
spjald tölvur og snjallsíma. Þar að auki gaf
fyrirtækið út sína eigin spjaldtölvu, Surface,
en Microsoft hefur hingað til ekki framleitt
eigin tölvur.
Google tók risastökk á snjall símamarkaði,
en þrír af hverj um fjórum snjallsímum sem
seldir voru á heimsvísu á þriðja ársfjórðungi
2012 voru með Androidsnjallsímastýrikerfi
Google. Barátta risanna þriggja heldur því
áfram af fullum krafti og erfitt að spá um
framhaldið.
Árlega höfum við útnefnt bestu græjurn
ar í Frjálsri verslun með hliðsjón af lista
PC World. Að þessu sinni hefur PC World
hins vegar ekki gefið út formlegan lista,
heldur tilnefndi fyrr á árinu nokkrar nýjar
og framúrskarandi græjur. Við fylgj um
þeirri forskrift og segjum frá vörunum sem
PC World út nefndi. Að auki bætum við við
nokkrum af þeim stærstu sem hafa komið
út síðan, en listi PC World kom út áður en
iPhone 5, iPad mini og Windows 8 komu á
markað.
Fást græjurnar hér á landi?
Við röðun á listann göngum við úr skugga
um að hægt sé með góðu móti að kaupa
viðkomandi græjur hér á landi og nefnum
verð þeirra sem við finnum hjá innlendum
netverslunum.
Við reynum eftir fremsta megni að finna
hagkvæmasta verð ið hjá viðurkenndum sölu
að ila, en getum þó ekki ábyrgst að vöruna sé
ekki að finna ann ars staðar á betra verði eða
að verð hafi ekki breyst frá því að blaðið fór
í prentun.