Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 76
76 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
Hjónin Guðrún Jóhannsdóttir og Aðalsteinn Árnason reka fimm fataverslanir á Akureyri.
Ein þeirra er í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi, hinar fjórar í miðbæ Akureyrar. Hjá
þeim starfa um þrjátíu manns í allt, þar af tíu í fullri vinnu, aðrir í hlutastörfum. Guðrún
hefur staðið í verslunarrekstri um langa hríð, hún fagnar þrjátíu ára kaupmannsafmæli
sínu í vor en fyrstu verslun sína opnaði hún í miðbæ Akureyrar 2. maí 1983.
É
g ætlaði aldrei út í
þennan bissness,
var í allt öðru og ekki
á þeim buxunum
að skipta um starf,“
segir Aðalsteinn, en hann kom
inn í reksturinn eftir að þau
Guð rún kynntust um miðjan
tí unda áratuginn.
Verslun þeirra á Glerártorgi
heitir Gallerí stelpur og er eins og
nafnið gefur til kynna sér verslun
með kvenfatnað. Við Ráðhústorg
ið eru þrjár af versl unum þeirra;
Gallerí, sem að hluta er rekin í
samstarfi við NTC í Reykjavík,
GS Akureyri og Outlet Akureyri.
Í þeirri síðastnefndu er til sölu
fjölbreyttur og ódýr fatnaður á
bæði kynin. GS Akureyri er kven
fataverslun þar sem m.a. eru í
boði dönsk og spænsk merki og
flytja þau fatn aðinn að hluta til
sjálf inn. Áður ráku þau verslun
undir nafninu Fargo þar sem Out-
let Akureyri er nú og segj ast að
líkindum opna hana á ný síðar.
reka fimm fataverslanir á akureyri
hjónin Guðrún Jóhannsdóttir og aðalsteinn Árnason:
TexTi oG Myndir: MarGréT ÞÓra ÞÓrsdÓTTir
„Álagningin er
minni hér fyrir
norðan, þó svo
að við þurfum að
greiða aukalega
fyrir flutning frá
Reykjavík og til
Akureyrar.“
versLun