Frjáls verslun - 01.09.2012, Síða 78
78 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
Þröstur Elliðason hefur náð góðum árangri í fiskrækt á Jöklusvæðinu í Jökulsárdal
og Jökuls árhlíð eftir að Kárahnjúkavirkjun var reist
Þröstur Elliðason, fiskeldis fræðingur og for stjóri Strengja, hefur náð ótrúlegum árangri
í fiskrækt á Jöklusvæðinu í
Jökuls árdal og hefur veiðin
marg faldast þar á undanförnum
árum. Þar sem áður beljaði
fram mórautt jökulvatn Jökulsár
á Brú, sem neðar nefndist
Jökulsá á Dal, um hrikalegan
farveg rennur nú blátær berg-
vatnsá stóran hluta ársins.
Vatnsfall þetta nefnist í dag
legu tali Jökla og það og hliðar
árnar Laxá, Fossá og Kalda,
sem renna í Jöklu í Jökuls árhlíð
neðan brúarinnar á þjóðvegi 1,
hafa verið vettvangur merki-
legrar fiskræktartilraunar sem
Þröstur hóf á árinu 2007.
Markmiðið er að gera vatna
svæði Jöklu að gjöfulu laxveiði
svæði og hefur árangur verið
fram ar vonum. Í fyrrasumar voru
færðir til bókar 565 veiddir laxar
á svæðinu en sl. sumar dró
held ur úr veiðinni og veiddust
384 laxar. Sennilega skýrist
þetta mest af því að Jökla fór á
yfirfall í Hálslóni mánuði fyrr en
í fyrra og var því óveiðandi að
kalla frá þeim tíma, þótt berg
vatns árnar, Laxá, Kaldá og Fögru
hlíðará hafi verið í góðu lagi.
Eru það mikil umskipti frá því
sem var þegar nokkrir tugir laxa
veiddust árlega í hliðaránum.
Jöfn stígandi hefur verið í lax-
veiðinni öll árin frá 2007 en þá
veiddust 122 laxar á svæðinu.
Það er Veiðiþjónustan Strengir
sem er leigutaki Jökluvæðisins
og Fögruhlíðarár, sem rennur til
sjávar skammt frá ósi Jöklu, en
síðastnefnda áin var aðallega
þekkt fyrir góða bleikjuveiði til
skamms tíma.
varð að blátærri bergvatnsá
TexTi: eiríKur s. eiríKsson / Myndir: eiríKur s. eiríKsson oG fleiri
BeLjanDi jöKuLFLjót
Laxveiði