Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 80
80 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
Hvað er viðskiptagreind?
Hugtakið viðskiptagreind tekur til
hugbúnaðar, tækni og ferla sem
nýtast til að bæta ákvarð anatöku
og þar með árangur fyrir tækja og
stofnana. Við skipta greindarkerfi
eru upp lýs ingakerfi sem eru
hönnuð og innleidd með þetta
fyrir aug um. Upplýsingatækni
hefur alltaf miðað að því að bæta
ákvarð anatöku og árangur en
það sem gerir viðskiptagreind og
viðskiptagreindarkerfi sér stök
eru möguleikar þeirra til að
bæta afkomu og árangur.
Vaxandi markaður
Viðskiptagreind (Business In
telligence) og viðskiptagreind
arkerfi hafa verið að ryðja sér til
rúms síðustu árin. Samkvæmt
greiningarfyrirtækinu Gartner
varði viðskiptalífið um heim
allan 12 milljörðum dollara í
kaup á við skiptagreindarkerfum
árið 2011. Þetta er vöxtur upp
á 16% frá árinu áður. Á Íslandi
hefur þróunin einnig verið upp
á við en en þó ekki vaxið eins
mikið. Fjölmörg dæmi sýna að
beiting þessara kerfa getur
breytt samkeppnisforsendum
og stórbætt innsýn stjórnenda í
rekstur og rekstrarumhverfi. Því
miður eru þó einnig dæmi þess
að innleiðing þessara kerfa skili
ekki þeim úrbótum sem sóst var
eftir. Þessi grein mun m.a. fjalla
um hvað stjórnendur verða að
gera áður en farið er í innleið
ingu viðskiptagreindarkerfa.
Meginboðskapurinn er að góð
innleiðing viðskiptagreindar
kerfa byggist á rekstrarþekk
ingu, góðri undirbúningsvinnu,
breytingastjórnun og breyttri
notkun á upplýsingatækni.
Til hvers að innleiða við-
skiptagreindarkerfi?
Þörf fyrir betri upplýsingar rekur
á eftir innleiðingu viðskipta
greindarkerfa. Örar breytingar
og gífurlegt flæði upplýsinga
sem fylgir nútímaviðskiptum
kallar á hraðar ákvarðanir sem
byggðar eru á staðreyndum en
ekki tilfinningum. Ef stjórnendur
hika eða hafa ekki réttan grund-
völl fyrir ákvörðunum er hætt við
því að keppinautar nái forskoti.
Ofgnótt upplýsinga á marg-
víslegu formi
Stjórnendur hafa aldrei haft úr
eins miklu magni af upplýsing-
um að moða. Gagnasöfn stækka
og nýjar upplýsingalindir koma
stöðugt til. Þar má nefna upplý s
ingar um hegðun viðskipta vina,
frammistöðu birgja, upplýsingar
um keppinauta og arðsemi vöru
o.s.frv. Gögn liggja oft í fleiri
ólík um kerfum, með mismun
andi uppbyggingu, framsetn
ingu og áreiðanleika.
Hluti vandans er sá að þau
kerfi sem notuð eru í dag til
skrán ingar á upplýsingum í
fyrirtækjum, eins og t.d. fjár mála
kerfi og sölukerfi, eru hönn uð til
að styðja við viðskipta ferli, skrá
gögn rétt og auka skil virkni. Þau
eru hins vegar sjaldnast hönnuð
til að tengja saman gögn frá
mis munandi kerfum, greina þau
eða birta niðurstöður og skýrslur.
Jafnvel hin svokölluðu heildar
kerfi (ERPkerfi) voru upp haf
lega smíðuð sem skráningar
kerfi en ekki greiningarkerfi.
Þetta kallar á þróun sérhæfðra
viðskiptagreindarkerfa sem
taka til sín upplýsingar úr öðrum
kerfum, vinna úr þeim og koma
þeim til skila í réttu formi til
notkunar við ákvarðanatöku.
Þetta er einnig skýringin á
því að svo til allir birgjar sem
selja heildarkerfi hafa keypt eða
þróað tækni til viðskiptagreind
ar. Þar má til dæmis nefna kaup
SAP á Business Objects, kaup
IBM á Cognos og Oracle á
Hyperion og þróun Microsoft
á tækjum tengdum viðskipta-
greind.
Dæmi um notkun viðskipta-
greindarkerfa
Það eru til mörg dæmi um
not kun á viðskiptagreind í
fyrir tækjum, þar sem stjórn
end ur nýta sér rekstrargögn
við ákvarðanatöku og gerð
áætlana m.a. Mörg íslensk
fyrirtæki úr ólíkum atvinnugrein
um hafa á undanförnum árum
byggt upp gríðarlega öflugt
viðskipta greindarumhverfi hjá
sér. Þarfirnar geta verið mjög
misjafnar eftir tegund fyrirtækja,
til að mynda framleiðslufyrirtæki
hefur áhuga á því að skoða
innkaupa, fram leiðslu og
sölukostnað og sölu tölur og
gera innkaupa, framleiðslu og
söluáætlanir, greina breyt-
ingar á gögnum frá birgjum,
birgðakostnaði, sölutölum o.fl.
á milli tímabila. Skoða áhrif
gengisbreytinga, vöruþróunar,
markaðshlutdeild ar o.fl. Til að
hafa yfirsýn yfir þessa þætti
þarf mismunandi lausnir og
fer það eftir stærð og afkomu
fyrirtækja hvaða kerfi hentar
best. Það nýjasta í þessum
heimi eru innbyggð ir tölfræðipa-
kkar sem auka greiningargetu til
muna og eiga enn eftir að ryðja
sér til rúms á markaðnum, t.d.
greina sölutölur úr einstökum
kerfum sem eru svo nýttar til að
gera söluspár, innkaupaáætlan-
ir og þess háttar.
Mörg íslensk fyrirtæki hafa
á undanförnum árum verið að
byggja upp gríðarlega öflugt
viðskiptagreindarumhverfi. Má
nefna Ríkislögreglustjóraem-
bættið sem nýtir sér viðskipta-
greind til að vinna upp lykiltölur
meðal annars um afbrotatatöl-
fræði til birtingar í ársskýrslum,
á vef lögregluembættisins og
til almennrar upplýsingagjafar
vegna fyrirspurna sem berast
embættinu. Vínbúðirnar hafa
verið öflugar í að nýta sér
viðskiptagreind við skoðun
á lykilmælistærðum í rekstri
Hvers VeGna viðsKiPtagreinD?
Þörf fyrir betri upplýsingar við rekstur fyrirtækja ekur á eftir innleiðingu viðskipta-
greindarkerfa. Örar breytingar og gífurlegt flæði upplýsinga sem fylgir nútímavið skiptum
kallar á hraðar ákvarðanir sem byggðar eru á staðreyndum en ekki tilfinn ingum. Það
hefur sýnt sig að æðstu stjórnendur fyrirtækja og stofnana líta oft á við skipta greind sem
kaup á nýrri upp lýsingatækni. Viðskiptagreind byggist á mörgu öðru en tækni. Við skipta-
greind snýst miklu frekar um að breyta ákvarð anatöku til hins betra.
TexTi: dr. Páll ríKHarðsson oG siGríður ÞÓrðardÓTTir / Myndir: Geir Ólafsson
Dr. Páll Ríkharðsson, Háskólanum
í Reykjavík. Dósent og forstöðu
maður meistaranáms í stjórnunar
reikningsskilum og viðskiptagreind.Sigríður Þórðardóttir, forstöðu
maður viðskiptagreindar hjá
Advania.
viðskiptargreind