Frjáls verslun - 01.09.2012, Side 96
96 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012
A
pplicon er hugbún
að arfyrirtæki sem
sérhæfir sig í inn
leiðingu, ráðgjöf,
þjónustu og þróun
á lausnum fyrir SAP, Vigor og
Microsoftviðskiptahugbúnað.
Fyrirtækið, sem er í eigu Ný
herja, hefur starfsstöðvar á
Íslandi, Danmörku og í Svíþjóð
og í heild starfa um 150 manns
hjá fyrirtækinu. Guðjón Karl
Þórisson er sölu og markaðs
stjóri. „Starf mitt er fjölbreytt og
skemmtilegt. Ásamt því að starfa
í stjórnendateymi félagsins og
koma að stefnumótun tek ég
þátt í alþjóðlegu samstarfi með
systurfélögum og stærstu birgj
um okkar að markaðssetningu
hér heima og ber ábyrgð á
mark aðsmálum sem og tekju
öfl un með sölu verkefna og
hug búnaðarleyfa.
Það er gríðarlega gaman að
starfa í hugbúnaðargeiranum
þessa dagana en mjög hröð
þró un er á sviði viðskiptagreind
ar, fjármálalausna sem og
snjall símavæðingar og hefur
fyrirtækið unnið að því að fóta
sig á þeim markaði. Alþjóðleg
áhersla félagsins er í fjármála
geiranum en auk þess að
þjón usta fjármálastofnanir og
tryggingafélög hér heima með
hugbúnaðarlausnum eru starfs-
menn þessa dagana uppteknir
við að ljúka innleið ingu á banka-
lausnum fyrir fjár málastofnun í
Svíþjóð og eru bundnar vonir
við aukna sölu á bankalausnum
fyrirtækisins í kjölfarið á því
verk efni. Á íslenska markaðn
um stöndum við mjög sterk í
fjárhagslausn um, mannauðs
lausnum, lausn um fyrir opinbera
geirann og orkugeirann með
öflugum hug búnaði frá SAP og
Vigor. Einnig er mikil vakning hér
heima gagnvart viðskiptagreind
og snjallsímalausnum þar sem
Applicon stefnir að því að vera
í fararbroddi í sölu, ráðgjöf og
þjón ustu á þeim markaði í fram
tíðinni.“
Guðjón Karl er uppalinn Borg
firðingur, ættaður úr Skaftafells
og Þingeyjarsýslum. Hann er í
sambúð með Halldóru Gunnars
dóttur, fyrirtækjaráðgjafa hjá
Íslandsbanka, og saman eiga
þau tvo drengi. „Ég lauk prófi
í rekstrarfræði frá Viðskipta
háskólanum á Bifröst árið 2000
og síðar BScprófi í alþjóða
markaðs fræðum frá Tæknihá
skólanum árið 2005 og hef
starfað við ýmislegt í gegnum
tíðina. Áður en ég fór í há skóla
vann ég einn vetur á skíða
svæði í Austurríki og naut þess
að ferðast um Evrópu. Það var
lærdómsríkur og skemmtilegur
tími. Eftir háskóla hef ég starfað
í hugbúnaðargeiranum en áður
en ég gekk til liðs við Applicon
var ég hjá Landsteinum og
síðar Landsteinum Streng við
sölu á viðskiptalausnum. Ég
hef verið í stjórn golfklúbbsins
Kjalar í Mosfellsbæ undanfarin
ár en þar hefur mikil uppbygg
ing átt sér stað og stendur
klúbburinn á tímamótum þetta
árið. Mikill kraftur í starfinu og
framundan er uppbygging á ung
linga og afreksstarfi auk þess
að styrkja og bæta aðstöðu við
nýjan 18 holu völl klúbbsins.
Ásamt því að njóta þess að
eyða tíma með fjölskyldunni,
ferð ast, stunda skíði, badmin-
ton, fótbolta og ýmsa líkams-
rækt má segja að golfið sé
stærsta áhugamálið. Ég spila
golf heima á sumrin og reyni
að komast í golfferðir erlendis
í góðum félagsskap þegar
færi gefst. Sumrinu var varið í
golfferð með góðum félögum til
Spánar í vor, en ég naut þess
einnig að vera í barneignarfríi
með fjölskyldunni. Fríið var
notað í að þræða tjaldsvæði
lands ins í blíðviðri sumarsins og
njóta útiverunnar. Í lok sumars
skellti ég mér á Íslandsmót í
golfi og tók þátt í sveitakeppn
inni í 2. deildinni með golf
klúbbn um Jökli í Ólafsvík með
ágætum árangri. Markmið
næsta árs verður að bæta
sig aðeins í golfi nu, keppnis
skapið blundar enn í mér þó að
æfingar hafi minnkað svolítið í
seinni tíð, en þetta verður bara
skemmtilegra með árunum.“
guðjón karl þórisson
– sölu- og markaðsstjóri Applicon ehf.
Nafn: Guðjón Karl Þórisson
Fæðingarstaður: Akranes, 6.
apríl 1976
Foreldrar: Þórir páll Guðjónsson og
Helga Karlsdóttir
Maki: Halldóra Guðríður Gunnarsdóttir
Börn: Kristján Karl, fjögurra ára,
og Helgi Þór, eins árs
Menntun: Rekstrarfræðingur og BSc í
alþjóðamarkaðsfræðum
„Sumrinu var varið í golfferð með góðum félögum til Spánar í vor, en ég naut þess einnig
að vera í barneignarfríi með fjölskyldunni. Fríið var notað í að þræða tjaldsvæði landsins í
blíðviðri sumarsins og njóta útiverunnar.“
fóLk