Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.05.2010, Side 6

Víkurfréttir - 27.05.2010, Side 6
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 21. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR6 Í pallasmíðina Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Festingarvörur – mikið úrval. Mikið úrval af skrúfum. Ryðfríar Torx tréskrúfur. Suðurnes Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18 Laugard. 10-14 Keflavíkurkirkja fagn-aði 95 ára afmæli um miðjan febrúar. Var þá horft til baka og rifjuð upp saga kirkjunnar. Þar kom auðvit- að margt áhugavert fram. Meðal annars fundum við lesendabréf frá fimmta ára- tugnum úr tímaritinu Faxa, þar sem kvartað var undan því að klukkurnar utan á kirkjuturninum væru aldrei réttar. Þetta þótti mörgum kyndugt, því eins og glöggir bæjarbúar vita sýna klukk- urnar þrjár hver sinn tíma og eru alveg óhagganleg- ar - jafnvel þótt tíminn líði án afláts. Þær eru því bara réttar tvisvar á sólarhring - sem er alls ekki nógu gott. Nú viljum við gera löngu tímabæra bót á þessu máli og koma klukkunum í lag. Stór og góður hópur sjálfboða- liða við kirkjuna, sem kallar sig Safnaðarfélag Keflavík- urkirkju efnir til kirkjumark- aðar á lóð Keflavíkurkirkju sunnudaginn 30. maí nk. Dagur þessi er reyndar merki- legur fyrir margra hluta sakir. Kirkjulundur, safnaðarheim- ili Keflavíkurkirkju fagnar 10 ára afmæli 1. júní og verður haldið upp á afmælið á þess- um degi. Þá er þetta dagur barnsins og hefur Keflavík- urkirkja staðið í fararbroddi þeirra sem fagnað hafa þeim degi hér í bæ, undanfarin ár. Á kirkjumarkaðnum verð- ur margt gagnlegt til sölu og efnt verður til tombólu. Hinir heppnu geta unnið til vinn- inga af ýmsum toga, m.a. ávís- anir sem gilda til að láta bóna bílinn, fara í hárgreiðslu eða kaupa eitthvað fallegt í versl- unum í Reykjanesbæ. Trúð- arnir Essí og Gússí koma í heimsókn og margt annað skemmtilegt verður í boði fyrir börnin. Auðvitað verða flottar afmælisveitingar, þar á meðal afmæliskaka. Sr. Björn Jóns- son kemur færandi hendi með málverk af Keflavíkurkirkju og Velferðarsjóðnum berast höfð- inglegar gjafir sem afhentar verða við hátíðlega athöfn. Nú ættu bæjarbúar að fjöl- menna í Keflavíkurkirkju og slá nokkrar flugur í einu höggi: Eignast eitthvað fallegt, fagna með kirkjunni sinni, skemmta sér og síðast en ekki síst - leggja sitt af mörkum til þess að koma klukkunum utan á turni kirkjunnar í gang. Þetta gengur auðvitað ekki lengur! Anna Sigríður Jóhannesdóttir BRÉF TIL BLAÐSINS Póstfangið er: vf@vf.is Anna Sigríður Jóhannesdóttir skrifar Þetta þótti mörgum kyndugt, því eins og glöggir bæjarbúar vita sýna klukkurnar þrjár hver sinn tíma og eru alveg óhagganlegar - jafnvel þótt tíminn líði án afláts. 74,5 milljóna króna tap varð á rekstri A-hluta bæjarsjóðs Grindavíkurbæjar á síðasta ári en samanlagt 144,7 millj- ónir á samstæðunni, sam- kvæmt ársreikningi 2009 sem samþykktur var á bæj- arstjórnarfundi í fyrradag. Í áætlun hafði verið reiknað með 52,4 milljóna króna tapi á A-hluta. Helstu frávik í reikn- ingi voru þau að skatttekjur urðu 27 milljónum krónum lægri en áætlun gerði ráð fyrir. Framlög Jöfnunarsjóðs voru 14,1 milljón hærri og laun og launatengd gjöld 39,6 millj- ónum króna hærri. Aðrar tekjur og annar rekstrarkostn- aður var 19,3 milljónum kr. óhagstæðari en áætlun gerði ráð fyrir og fjármagnsliðir voru 20,6 milljónum kr. hag- stæðari. 145 milljóna tap Klukkurnar á kirkjuturninum Alls komu 81 hegning-arlagabrot til kasta lög- reglunnar á Suðurnesjum í apríl síðastliðnum. Það er nokkur fækkun brota á milli ára en í apríl 2009 voru þau 113 talsins. Um- ferðarlagabrotum fækkar einnig úr 325 í 202. Fjöldi fíkniefnamála helst svip- aður á milli ára, voru 19 nú í apríl samanborið við 18 í sama mánuði 2009. Þetta kemur fram í afbrota- tölfræði frá Ríkislögreglu- stjóra. Hegningarlaga- og umferðar- lagabrotum fækkar í apríl

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.