Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.05.2010, Síða 20

Víkurfréttir - 27.05.2010, Síða 20
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 21. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR20 VÍKURFRÉTTIR EHF. Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17. Athugið að föstudaga er opið til kl. 15. Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild. FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN ER Í SÍMA 898 2222 FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN ER Í SÍMA 898 2222 Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Blaðamaður: Ellert Grétarsson, sími 421 0004, elg@vf.is Auglýsingadeild: Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is Útlit, umbrot og prenvistun: Víkurfréttir ehf. Hönnunardeild Víkurfrétta: Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is Skrifstofa Víkurfrétta: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og kylfingur.is 141 776 UM HV ERFISMERKI PRENTGRIPUR VÍKURFRÉTTIR Í SÍMANN! m.vf.is FRÉTTIR HS Veitur hf og HS Orka hf urðu til 1. desember 2008 við uppskiptingu á Hitaveitu Suðurnesja hf. Uppskiptingin er ekki tilkomin vegna ákvörðunar eigenda Hitaveitu Suðurnesja hf heldur vegna lagasetningar Alþingis. Samkvæmt lögum nr. 58 frá 7. júní 2008 var orkufyrirtækjum gert skylt að aðgreina samkeppnisþáttinn þ.e.a.s. framleiðslu og sölu á raforku frá einkaleyfisstarfsemi þ.e.a.s. dreif- ingu orkunnar til viðskiptavina, tengingu þeirra við dreifikerfið og þjónustu við þá. HS Veitur hf eru nú 66,75% í eigu Reykjanesbæjar, 16,58% í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, 15,42% í eigu Hafnarfjarðarbæjar og 1,25% í eigu 4 sveitar- félaga. HS Orka hf er nú 98,53% í eigu Magma Energy Sweden AB og 1,47% í eigu 4 sveitarfélaga. HS Veitur hf dreifa raforku til íbúa og fyrirtækja sem Landsnet (alfarið í opinberri eigu) afhendir inn á dreifikerfið og innheimtir gjöld fyrir dreif- ingu og flutning raforkunnar. Að teknu tilliti til fastagjalds má áætla að 60% raforkukostnaðar heimila sé vegna dreifingar og flutnings en um 40% raforkan sjálf sem er á lögbundnum sam- keppnismarkaði. Af orkureikningi hvers meðal heimilis (rafmagn, heitt og kalt vatn) má gera ráð fyrir að um 85% renni til HS Veitna hf en um 15% til HS Orku hf. Ákvarðanir um gjaldskrá HS Veitna hf eru teknar af stjórn sem alfarið er skipuð opinberum aðilum. HS Veitur hf dreifa heitu vatni á Suðurnesjum, sem framleitt er af HS Orku hf í Svartsengi. HS Veitur hf dreifa heita vatninu annarsvegar frá dælustöð á Fitjum og hinsvegar frá tanki við Grindavík og selja til einstaklinga og fyrirtækja samkvæmt gjaldskrá sem fyrirtækið setur um þjónustu sína. HS Orka hf getur ekki hækkað verðið á vatninu umfram verðlagsþróun og er skuldbundin til að framleiða og afhenda heitt vatn um ókomna framtíð. Uppsagnarfrestur er 25 ár en „þó er HS Orku hf óheimilt að segja upp þeim hluta samnings er lítur að öflun og afhendingu vatns til dreifingar í hitaveitu HS Veitna hf á núverandi dreifiveitusvæð- um“ eins og segir í samningi aðila. Sama gildir um ferska vatnið í Reykjanesbæ og Garði og um heita vatnið. Í Grindavík, Sandgerði og í Vogum annast HS Veitur hf vatnsöflunina en sveitarfélögin annast dreifingu og sölu innan sveit- arfélaganna með eigin vatnsveitum. HS Orka hf framleiðir raforku fyrir stóriðju og fyr- ir almennan markað. Samkeppni ríkir á almennum markaði og hækki HS Orka hf verðið umfram aðra geta viðskiptavinir auðveldlega keypt raforkuna af öðrum söluaðilum, Orkuveitu Reykjavíkur, Orku- sölunni eða einhverjum öðrum. HS Orka hf framleiðir heitt vatn og aflar ferskvatns fyrir HS Veitur hf á Suðurnesjum. Tryggt er með orkukaupasamningi að innkaupsverð hækkar ekki umfram verðlagsþróun. Þær auðlindir sem félagið nýtir nú eru annarsvegar í eigu Reykjanesbæjar og ríkissjóðs (Reykjanes) og Grindavíkurbæjar (Svartsengi). Eignarhald á HS Orku hf hefur ekki og getur því ekki haft áhrif á orkuverð til almennings á svæðinu þar sem búið er að tryggja verðið á þeirri orku sem HS Veitur hf þurfa að afla sér til langs tíma. Með eignarhaldi öflugra aðila á HS Orku hf eiga að geta skapast möguleikar til frekari framkvæmda, sem ekki voru til staðar þegar félagið var í meiri- hlutaeigu aðila sem vildi selja sinn hlut og gat því ekki né vildi styðja það til nýrra verkefna. Frekari virkjanir ættu að auka hagkvæmni rekstrar og gefa tækifæri til raunlækkunar orku þegar til lengri tíma er litið. Þá verða raunhæfari þau markmið að byggja upp fjölskrúðugt atvinnulíf á Suðurnesjum sem byggir á margs konar orkukrefjandi starfsemi. Það er og á að vera fagnaðarefni á þessum tímum ef tækifæri skapast til uppbyggingar, ekki mun af veita til að ná íslensku efnahagslífi upp úr þeirri djúpu lægð sem það nú er í. Á stjórnarfundum og fundum með starfsmönnum hafa nýjir meirihlutaeigendur HS Orku hf lýst því yfir að engar breytingar séu fyrirhugaðar á nafni, rekstrarformi eða starfsmannahaldi félagsins. Það verði helst að um aukin umsvif verði að ræða gangi áform félagsins um stækkun virkjana og nýjar virkjanir upp. Sú uppskipting sem ráðist var í í kjölfar lagasetn- ingarinnar 2008 felur að sjálfsögðu í sér kostn- aðarauka. Til þess að kostnaðaraukinn verði sem minnstur var ákveðið að samnýta sem mest þá þætti frá Hitaveitu Suðurnesja sem nýst gætu báðum félögunum. Má þar nefna húsnæði, hug- búnaðarkerfi, innkaup, afgreiðslu, þjónustuborð, bókhald, innheimtu, yfirstjórn o.fl. Starfsmenn eru því allir áfram starfsmenn HS Orku hf sem sinnir síðan þjónustu fyrir HS Veitur hf samkvæmt ít- arlegum og vel skilgreindum verktakasamningi. Stjórnir félaganna eru hinsvegar algjörlega aðskild- ar og er þess vel gætt, sérstaklega í ljósi gjörbreytts eignarhalds, að ekki sé um hagsmunaárekstra að ræða. Væri reksturinn aðskilin algjörlega myndi það leiða til umtalsverðrar aukningar heildar- kostnaðar sem deilast myndi á bæði félögin og síðan í framhaldinu á viðskiptavini þeirra. Þessi hlutverkaskipti eru því hagkvæm. Það er von okkar að ofangreindar upplýsingar auð- veldi almenningi að átta sig á helstu staðreyndum varðandi félögin og nái að slá aðeins á þær rang- færslur sem alltof mikið er af nú um stundir. Júlíus Jónsson, forstjóri. Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri. 61,3% sölustaða á Suður- nesjum selja ungmenn- unum ekki tóbak, sam- anborið við 79% fyrir ári síðan, samkvæmt nýlegri könnun SamSuð Samtök félagsmiðstöðva á Suður- nesjum). Kannað var hvort ungmenni yngri en 18 ára gætu keypt tóbak hjá söluaðilum þess á Suður- nesjum. Könnunin var framkvæmd undir eftirliti starfsmanna félagsmið- stöðvanna á svæðinu og náði til 31 söluaðila. Könnunin fór þannig fram að 15 til 16 ára ungmenni fóru inn á sölustaði og freistuðu þess að fá keypt tóbak. Ef það fékkst keypt fór starfsmaður á vegum SamSuð í verslunina og fékk tóbakið endurgreitt og gerði söluaðilum grein fyrir því að um könnun hafi verið að ræða. Samkvæmt lögum um tób- aksvarnir má hvorki selja né afhenda einstaklingum yngri en 18 ára tóbak. Einnig er rétt að vekja athygli á því að samkvæmt sömu lögum mega þeir einir sem orðnir eru 18 ára selja tóbak. HS Veitur hf – HS Orka hf Í kjölfar kaupa Magma Energy Sweden AB á hlutabréfum í HS Orku hf hefur skap-ast mikil umræða og gætir þar oftar en ekki mikils misskilnings. Ljóst er að hlutverka- skipting milli ofangreindra félaga er fyrir marga ekki ljós og greinilega þörf á auk- inni upplýsingagjöf. Fyrirtækið mun bæta úr því á næstu misserum fyrir viðskiptavini sína. Við viljum því vekja athygli á nokkrum staðreyndum vegna þessara mála. Júlíus Jónsson og Albert Albertsson skrifa Meirihluti versl- unarmanna virðir takmarkanir á sölu tóbaks Sex tonna trilla sökk við Staðarberg vestan við Grindavík síðastliðinn miðvikudag. Einn maður var um borð og var hon- um bjargað um borð í bát sem var nærstaddur. Þeg- ar björgunarskipið Oddur V. Gíslason kom á staðinn var einungis stefni bátsins upp úr. Trillusjómanni bjargað úr sjáv- arháska

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.