Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.02.2012, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 09.02.2012, Qupperneq 1
vf.is Metan er innlendur og umhverfisvænn orkugjafi sem er helmingi ódýrari en bensín. Nýttu þér kosti metans með Volkswagen. K. Steinarsson – Njarðarbraut 13 420 5000 - heklakef@heklakef.is Das Auto. TM Opið allan sólarhringinn Fitjum NÝTT Morgunverðar-matseðill Aðeins í boði áSubway Fitjum 14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011 Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is 989kr/stk. Tilboðsverð! 339kr/stk. Tilboðsverð! Easy ÞvoTTaEfni aloE vEra 2.7 kg Easy MýkingarEfni 2 l | www.flytjandi.is | sími 525 7700 | VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Víkurfréttir ehf. Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbær Sími 421 0000 - Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan- úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2. Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0 fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB Æsispennandi körfuknattleikir - sjá nánar á bls. 23 Víkurfréttir Grundarvegur 23, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 F i m m t u d A G u R i n n 9 . F E B R Ú A R 2 0 1 2 • 6 . t ö l u B l A ð • 3 3 . á R G A n G u R Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ s. 420 5000 - Fax: 421 5946 ›› Fyrsta alþjóðlega gagnaverið í heiminum sem knúið er með grænni orku opnar á Ásbrú: Suðurnesjarokið kælir þúsundir tölva Upplýsingar í síma 421 0000 Tökum að okkur allt prentverk og hönnun! Fékk gullkorn Frá börnunum Á mánudag var dagur leikskólans hald-inn hátíðlegur í leikskólum landsins. Í tilefni dagsins hefur verið gefið út vegg- spjald, sem afhent var Róberti Ragnarssyni bæjarstjóra, með gullkornum frá börnum á heilsuleikskólanum Króki. Sagt er frá fleiri viðburðum frá degi leikskólans á vef Víkurfrétta, vf.is. Nýr kafli var skrifaður í atvinnusögu Íslendinga þegar starfsemi hófst með formlegum hætti hjá Verne Global gagnaverinu á Ásbrú, fyrsta græna gagnaveri lands- ins. Oddný Harðardóttir, fjár- málaráðherra og Árni Sigfús- son, bæjarstjóri í Reykjanesbæ klipptu á borða með Jeff Monroe forstjóra Verne Glo- bal í Víkingaheimum í gær. Gagnaverið er á 500 fermetrum í húsi sem Varnarliðið nýtti áður fyrir verslun og aðra starfsemi en bygging húsnæðis- ins hefur staðið yfir frá árinu 2008 og þar starfa um fimm- tán manns. Í fyrsta áfanga sem byggður hefur verið á svæði Verne Global er pláss fyrir fimm þúsund netþjóna. Gagnaverið er fyrsti áfangi uppbyggingar á alþjóðlegri miðstöð gagnavera á Ásbrú sem verður knúin af endurnýjanlegum orkugjöfum. Það er líka sérhannað til þess að nýta vindkælingu á svæðinu sem sparar gríðarlegt magn af orku. Það er því hægt að segja að gagnaverið sé umhverfisvænn hátækniiðnaður. „Þetta alþjóðlega gagnaver er vonandi ísbrjóturinn fyrir eitt- hvað enn meira á þessu sviði. Það skiptir máli fyrir okkur að skapa svona aðilum gott rekstr- arumhverfi og það gerum við með sérstökum fjárfestinga- samningum og einnig sér- reglum t.d. varðandi virðisauka- skatt svo þau standist alþjóðlega samkeppni. Þessi starfsemi mun vonandi ýta undir bjartsýni og opna leið fyrir aðra til að koma hingað,“ sagði Oddný Harðar- dóttir, fjármálaráðherra. „Fyrsta verkefnið í uppbyggingu atvinnumála á Suðurnesjum hefur nú litið dagsins ljós eftir fjögur ár. Gagnaver sem er jafn- framt það fyrsta sinnar tegundar í heiminum sem er knúið áfram með grænni orku. Það er við hæfi að formleg opnun fari fram í Víkingaheimum en víkingar til forna nýttu sér vindinn til að knýja áfram sín fley. Í dag eru nútíma víkingar að nota vind- inn til að kæla gagnver. Þetta hefur mjög sterka þýðingu fyrir Suðurnesjamenn í atvinnu- legu tilliti. Við getum átt von á fleiri smærri tæknifyrirtækjum sem vilja gjarnan tengja sig við svona gagnaver. Verne Global vill sjá fleiri gagnaver koma til landsins því samkeppni á þessu sviði telja forráðamenn fyrir- tækisins að sé til góða og ýti við fleiri aðilum að nýta sér þessa umhverfisvænu þjónustu sem sé staðsett hér á landi,“ sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri. Ítarlegri viðtöl við Oddnýju og Árna má sjá á vf.is. -pláss fyrir fimm þúsund netþjóna í fyrsta áfanga. Stefnt að markvissri stækkun til ársins 2017. Fullbyggt mun gagnaverið skapa um 100 störf. Verne Global selur þjónustu sína til stórra fyrirtækja í Bandaríkjunum og í Evrópu. Það áformar að ganga út á markvissa stækkun og að árið 2017 verði gagnaverið fullbúið í fjórum byggingum. Þegar rekstur verði kominn á fullan skrið sé reiknað með að 100 störf skapist hjá fyrirtækinu. Fyrsti viðskiptavinur Verne Global er bandaríska fyrirtækið Datapipe en það sérhæfir sig í umhverfisvænum lausnum í upplýsingatækni. Um- hverfisstofnun Bandaríkjanna hefur veitt fyrirtækinu viðurkenningu vegna umhverfisstefnu þess og forstjóri Datapipe, Robb Allen, segir Verne gefa fyrirtækinu kost á því að halda áfram forystu í umhverfismálum. Selja stórfyrirtækjum úti í heimi

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.