Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.02.2012, Page 8

Víkurfréttir - 09.02.2012, Page 8
8 FIMMTUdagUrInn 9. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR Tólf bátar, smábíll og vörubíll skemmdust eða eyðilögðust í Sandgerðishöfn í óveðri fyrstu dagana í janúar 1984. Bátarnir, 9 litlir þilfarsbátar og þrír stærri ráku upp í fjöru í óveðrinu, smá- bíllinn fauk út í sjó og einnig vöru- bíllinn með manni innanborðs sem þó bjargaðist. Frá þessu er sagt í fyrsta tölublaði Víkurfrétta í ársbyrjun 1984. Fyrstu bátarnir slitnuðu frá bryggj- unni í Sandgerði um klukkan hálf- sjö um morguninn sem óveðrið skall á og fóru upp í grjót. „Þegar séð var hvað verða vildi fórum við heim og hringdum í viðkomandi aðila og fór Svavar Ingibersson á vörubílnum niður á bryggju og komum við böndum á bátana en hugmyndin var að draga þá frá grjótinu með bílnum. En sjórinn tók vörubílinn eins og eldspýtu- stokk og henti honum út í sjó. Það bjargaði Svavari sem fór niður með vörubílnum að það var maður á bryggjunni sem náði honum strax þegar hann kom út úr bílnum. Var hann orðinn þrekaður en hafði þó meðvitund og var strax fluttur á sjúkrahús. Eftir þetta óhapp komu bátarnir hver af öðrum upp í grjótið og urðu alls níu, auk stóru bátanna. Náðust síðan fjórir litlir út og tveir stærri,“ sagði Páll Jóns- son, eigandi eins bátsins í viðtali við Víkurfréttir. Annar bátseigandi, Preben W. Nil- sen úr Keflavík segir svo frá um sinn bát sem fauk til og frá eins og kork- tappi í rokinu: „Hann (báturinn) var kominn hér upp á bryggjuna og síðan má segja að hann hafi flotið hér um alla bryggjuna, því sjór var yfir öllu. Síðan hvarf hann allt í einu og ég hélt að hann væri sokkinn en þá hafði hann henst út á höfnina Sjórinn tók vörubílinn eins og eldspýtustokk og henti honum út í sjó Margir bátar eyðilögðust við bryggju í Sandgerði, smábíll fauk út í sjó og einnig vörubíll í miklu óveðri í janúar 1984 og í leiðinni hafði hann komið við einhverja báta, því mastrið hafði brotnað. Síðan rak hann hérna upp með öllu og yfir í grjótið og endaði uppi í horni,“ sagði Preben og bætti því við að stór hluti bátaflotans í Sandgerði færi sennilega ekki í róður í bráð. Í forsíðugrein er því velt upp hvort mannleg mistök hafi átt stóran þátt í því hve illa fór. Eigendur bátanna hefðu ekki farið eftir ábendingum og viðvörunum um að svo vont veður væri í aðsigi og ekki gert nægar ráðstafanir til að mæta því. Auk skemmdanna í Sandgerði varð líka nokkuð tjón í Höfnum þegar sjór flæddi upp að sjö húsum. Forsíða VF 12. janúar 1984 „Þegar séð var hvað verða vildi fórum við heim og hringdum í viðkomandi aðila og fór Svavar Ingibersson á vörubílnum niður á bryggju og komum við böndum á bátana en hugmyndin var að draga þá frá grjótinu með bílnum. En sjórinn tók vörubílinn eins og eldspýtustokk og henti honum út í sjó. Það bjargaði Svavari sem fór niður með vörubílnum að það var maður á bryggjunni sem náði honum strax þegar hann kom út úr bílnum. Var hann orðinn þrekaður en hafði þó meðvitund og var strax fluttur á sjúkrahús. Eftir þetta óhapp komu bátarnir hver af öðrum upp í grjótið og urðu alls níu, auk stóru bátanna. Náðust síðan fjórir litlir út og tveir stærri,“ sagði Páll Jónsson, eigandi eins bátsins í viðtali við Víkurfréttir. Úr safni Víkurfrétta frá árinu 1984 • Eignatjón í Sandgerði í janúaróveðri Ljósmyndasafn Víkurfrétta 1984 Ljósmyndasafn Víkurfrétta 1984 Ljósmyndasafn Víkurfrétta 1984 Opinn stjórnmála- fundur í Framsókn Reykjanesbæ Fimmtu-daginn 9. febrúar verður opinn stjórn- málafundur um skulda- og atvinnumál í félagsheimili Framsóknar í Reykjanesbæ, Hafnargötu 62. Ræðumenn fundarins verða alþingismennirnir Eygló Harðar- dóttir og Siv Friðleifsdóttir. Þær munu ræða skulda- og atvinnumál. Fundurinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 20:00. Framsókn í Reykjanesbæ Afmæliskaffi á sunnudaginn hjá Verkalýðsfélagi Grindavíkur Þann 13. febrúar verður Verka- lýðsfélag Grindavíkur 75 ára. Af því tilefni býður Verkalýðsfélagið félögum og velunnurum í afmæliskaffi sem verður haldið í Salthús- inu 12. febrúar frá kl. 14:30- 17:00. Eldri borgarar eru sérstaklega velkomnir. Sérstakir gestir eru Björn Snæbjörnsson form. Starfs- greinasambands Íslands og skemmtikraftarnir Davíð Ólafsson og Stefán Íslandi. ›› FRÉTTIR ‹‹

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.