Víkurfréttir - 09.02.2012, Qupperneq 8
8 FIMMTUdagUrInn 9. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Tólf bátar, smábíll og vörubíll skemmdust eða eyðilögðust
í Sandgerðishöfn í óveðri fyrstu
dagana í janúar 1984. Bátarnir,
9 litlir þilfarsbátar og þrír stærri
ráku upp í fjöru í óveðrinu, smá-
bíllinn fauk út í sjó og einnig vöru-
bíllinn með manni innanborðs
sem þó bjargaðist. Frá þessu er
sagt í fyrsta tölublaði Víkurfrétta
í ársbyrjun 1984.
Fyrstu bátarnir slitnuðu frá bryggj-
unni í Sandgerði um klukkan hálf-
sjö um morguninn sem óveðrið
skall á og fóru upp í grjót. „Þegar
séð var hvað verða vildi fórum við
heim og hringdum í viðkomandi
aðila og fór Svavar Ingibersson á
vörubílnum niður á bryggju og
komum við böndum á bátana en
hugmyndin var að draga þá frá
grjótinu með bílnum. En sjórinn
tók vörubílinn eins og eldspýtu-
stokk og henti honum út í sjó. Það
bjargaði Svavari sem fór niður með
vörubílnum að það var maður á
bryggjunni sem náði honum strax
þegar hann kom út úr bílnum. Var
hann orðinn þrekaður en hafði þó
meðvitund og var strax fluttur á
sjúkrahús. Eftir þetta óhapp komu
bátarnir hver af öðrum upp í
grjótið og urðu alls níu, auk stóru
bátanna. Náðust síðan fjórir litlir
út og tveir stærri,“ sagði Páll Jóns-
son, eigandi eins bátsins í viðtali við
Víkurfréttir.
Annar bátseigandi, Preben W. Nil-
sen úr Keflavík segir svo frá um sinn
bát sem fauk til og frá eins og kork-
tappi í rokinu: „Hann (báturinn)
var kominn hér upp á bryggjuna og
síðan má segja að hann hafi flotið
hér um alla bryggjuna, því sjór var
yfir öllu. Síðan hvarf hann allt í einu
og ég hélt að hann væri sokkinn en
þá hafði hann henst út á höfnina
Sjórinn tók vörubílinn
eins og eldspýtustokk
og henti honum út í sjó
Margir bátar eyðilögðust við
bryggju í Sandgerði, smábíll
fauk út í sjó og einnig vörubíll
í miklu óveðri í janúar 1984
og í leiðinni hafði hann komið við
einhverja báta, því mastrið hafði
brotnað. Síðan rak hann hérna upp
með öllu og yfir í grjótið og endaði
uppi í horni,“ sagði Preben og bætti
því við að stór hluti bátaflotans
í Sandgerði færi sennilega ekki í
róður í bráð.
Í forsíðugrein er því velt upp hvort
mannleg mistök hafi átt stóran þátt
í því hve illa fór. Eigendur bátanna
hefðu ekki farið eftir ábendingum
og viðvörunum um að svo vont
veður væri í aðsigi og ekki gert
nægar ráðstafanir til að mæta því.
Auk skemmdanna í Sandgerði varð
líka nokkuð tjón í Höfnum þegar
sjór flæddi upp að sjö húsum.
Forsíða VF 12. janúar 1984
„Þegar séð var hvað verða vildi fórum við heim og hringdum í viðkomandi
aðila og fór Svavar Ingibersson á vörubílnum niður á bryggju og komum
við böndum á bátana en hugmyndin var að draga þá frá grjótinu með
bílnum. En sjórinn tók vörubílinn eins og eldspýtustokk og henti honum
út í sjó. Það bjargaði Svavari sem fór niður með vörubílnum að það var
maður á bryggjunni sem náði honum strax þegar hann kom út úr bílnum.
Var hann orðinn þrekaður en hafði þó meðvitund og var strax fluttur á
sjúkrahús. Eftir þetta óhapp komu bátarnir hver af öðrum upp í grjótið
og urðu alls níu, auk stóru bátanna. Náðust síðan fjórir litlir út og tveir
stærri,“ sagði Páll Jónsson, eigandi eins bátsins í viðtali við Víkurfréttir.
Úr safni Víkurfrétta frá árinu 1984 • Eignatjón í Sandgerði í janúaróveðri
Ljósmyndasafn Víkurfrétta 1984
Ljósmyndasafn Víkurfrétta 1984
Ljósmyndasafn Víkurfrétta 1984
Opinn stjórnmála-
fundur í Framsókn
Reykjanesbæ
Fimmtu-daginn 9.
febrúar verður
opinn stjórn-
málafundur
um skulda- og
atvinnumál
í félagsheimili Framsóknar í
Reykjanesbæ, Hafnargötu 62.
Ræðumenn fundarins verða
alþingismennirnir Eygló Harðar-
dóttir og Siv Friðleifsdóttir. Þær
munu ræða skulda- og atvinnumál.
Fundurinn er öllum opinn og
hefst stundvíslega kl. 20:00.
Framsókn í Reykjanesbæ
Afmæliskaffi á
sunnudaginn hjá
Verkalýðsfélagi
Grindavíkur
Þann 13. febrúar
verður Verka-
lýðsfélag
Grindavíkur
75 ára. Af því
tilefni býður
Verkalýðsfélagið félögum og
velunnurum í afmæliskaffi
sem verður haldið í Salthús-
inu 12. febrúar frá kl. 14:30-
17:00. Eldri borgarar eru
sérstaklega velkomnir.
Sérstakir gestir eru Björn
Snæbjörnsson form. Starfs-
greinasambands Íslands og
skemmtikraftarnir Davíð
Ólafsson og Stefán Íslandi.
›› FRÉTTIR ‹‹